12. júlí
Útlit
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2024 Allir dagar |
12. júlí er 193. dagur ársins (194. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 172 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- 526 - Felix 4. varð páfi.
- 1153 - Anastasíus 4. varð páfi.
- 1191 - Þriðja krossferðin: Krossfarar náðu Akkó á sitt vald eftir tveggja ára umsátur.
- 1561 - Byggingu Vasilíjdómkirkjunnar í Moskvu lauk. Hún hófst 1534.
- 1573 - Spænskar hersveitir undir stjórn hertogans af Alva náðu Haarlem í Hollandi á sitt vald eftir sjö mánaða umsátur.
- 1636 - 35 Íslendingar voru keyptir lausir úr Barbaríinu.
- 1691 - Antonio Pignatelli varð Innósentíus 12. páfi.
- 1691 - Her Vilhjálms sigraði her Jakobíta á Írlandi í orrustunni við Aughrim.
- 1730 - Lorenzo Corsini varð Klemens 12. páfi.
- 1809 - Þorskafáninn var dreginn að húní í Hafnarstræti og hylltur með fallbyssuskotum.
- 1906 - Dreyfusmálið: Alfred Dreyfus fékk uppreisn æru rúmlega áratug eftir að hafa verið dæmdur sekur fyrir landráð.
- 1920 - Stjórn bolsévika í Rússlandi viðurkenndi sjálfstæði Litháen.
- 1924 - Dóminíska lýðveldið hlaut sjálfstæði frá Bandaríkjunum.
- 1932 - Norskir hermenn lögðu hluta Austur-Grænlands undir sig og kölluðu Eirik Raudes Land.
- 1962 - Hljómsveitin Rolling Stones steig á svið í fyrsta skiptið, á Marquee-klúbbnum í London.
- 1970 - Reyrbátur Thor Heyerdahl, Ra II, náði landi á Barbados.
- 1975 - Saó Tóme og Prinsípe fengu sjálfstæði frá Portúgal.
- 1979 - Kíribatí fékk sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1987 - Konami sendi frá sér tölvuleikinn Metal Gear.
- 1993 - Jarðskjálfti varð við japönsku eyjuna Hokkaidō og olli flóðbylgju sem reið yfir eyjuna Okushiri þar sem yfir 200 fórust.
- 1997 - Japanska teiknimyndin Mononoke prinsessa var frumsýnd.
- 1998 - Frakkar sigruðu Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1998 með 3-0 sigri á Brasilíu.
- 1998 - Skjáborðsumhverfið KDE kom út í útgáfu 1.0.
- 2002 - Bandaríska sjónvarpsþáttaröðin Monk hóf göngu sína.
- 2006 - Ísraelskar hersveitir réðust inn í Líbanon í kjölfar þess að Hezbollah tók tvo ísraelska hermenn til fanga.
- 2006 - Evrópuráðið sektaði Microsoft um 280 milljónir evra fyrir að neita að gefa upp tæknilegar upplýsingar um stýrikerfið.
- 2011 - Reikistjarnan Neptúnus lauk við fyrstu ferð sína umhverfis sólu frá því hún var uppgötvuð.
- 2013 - Malala Yousafzai ávarpaði Sameinuðu þjóðirnar í New York á 16 ára afmælisdegi sínum og krafðist réttinda til menntunar fyrir alla.
- 2016 - 23 létust þegar tvær lestar rákust saman rétt hjá Bari á Ítalíu.
- 2017 - Fyrrum forseti Brasilíu, Lula da Silva, var dæmdur í 9 og hálfs árs fangelsi fyrir spillingu.
- 2019 – Árásin á Asasey Hotel: 26 létust þegar bílsprengja sprakk og árásarmenn hófu skothríð á Asasey Hotel í Kismajó í Sómalíu.
- 2020 - Flóðin í Kína 2020: 141 voru taldir af eða týndir og 28.000 heimili eyðilögðust.
- 2021 - Flóðin í Evrópu 2021: 229 fórust í Þýskalandi, Belgíu og Rúmeníu eftir miklar rigningar og flóð.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 100 f.Kr. - Júlíus Sesar, rómverskur hershöfðingi og stjórnmálamaður (d. 44 f.Kr.).
- 1596 - Mikael Rómanov, Rússakeisari (d. 1645).
- 1607 - Jean Petitot, svissneskur listmálari (d. 1691).
- 1688 - Benedikt Þorsteinsson lögmaður (d. 1733).
- 1782 - Oddur Hjaltalín, íslenskur læknir (d. 1840).
- 1817 - Henry David Thoreau, bandarískur rithöfundur og heimspekingur (d. 1862).
- 1892 - Bruno Schulz, pólskur rithöfundur (d. 1942).
- 1895 - Buckminster Fuller, bandarískur arkitekt (d. 1983).
- 1904 - Pablo Neruda, síleskt skáld og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1973).
- 1918 - Ian Proctor, enskur skútuhönnuður (d. 1992).
- 1922 - Michael Ventris, enskur arkitekt (d. 1956).
- 1937 - Lionel Jospin, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands.
- 1937 - Bill Cosby, bandarískur leikari.
- 1942 - Páll Zóphoníasson, fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
- 1948 - Richard Simmons, bandarískur leikari.
- 1961 - Masaaki Mori, japanskur knattspyrnumaður.
- 1967 - Rebekka A. Ingimundardóttir, leikkona og leikmyndahönnuður.
- 1967 - John Petrucci, bandarískur gítarleikari.
- 1975 - Carolina Kasting, brasilísk leikkona.
- 1976 - Inga Rannveig, íslenskur ljósmyndari.
- 1991 - James Rodríguez, kólumbískur knattspyrnumaður.
- 1995 - Luke Shaw, enskur knattspyrnuleikari.
- 1997 - Malala Yousafzai, pakistönsk baráttukona.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 1536 - Erasmus frá Rotterdam, hollenskur heimspekingur (f. 1466).
- 1682 - Jean Picard, franskur stjörnufræðingur (f. 1620).
- 1712 - Richard Cromwell, verndari Bretlands (f. 1626).
- 1804 - Alexander Hamilton, bandarískur stjórnmálamaður, féll í einvígi (f. 1755 eða 1757).
- 1926 - Gertrude Bell, breskur fornleifafræðingur og njósnari (f. 1868).
- 1935 - Alfred Dreyfus, franskur hermaður (f. 1859).
- 1972 - Vilhjálmur Þór, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1899).
- 1994 - David Malcolm Lewis, enskur fornfræðingur (f. 1928).
- 2008 - Egill Jónsson, bóndi og alþingismaður (f. 1930).