23. nóvember
Útlit
Okt – Nóvember – Des | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
2024 Allir dagar |
23. nóvember er 327. dagur ársins (328. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 38 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- 1589 - Jakob 6. Skotakonungur gekk að eiga Önnu af Danmörku.
- 1648 - Krýning Friðriks 3. fór fram í Danmörku.
- 1654 - Blaise Pascal lenti í slysi sem leiddi til þess að hann fékk opinberun og gerðist trúaður.
- 1688 - 1500 fylgjendur Gamla siðar brenndu sig lifandi til að komast hjá handtöku þegar her Rússakeisara settist um klaustur þeirra við Onegavatn.
- 1700 - Giovanni Francesco Albani varð Klemens 11. páfi.
- 1838 - Vígður var nýr kirkjugarður í Reykjavík, Hólavallagarður við Suðurgötu.
- 1912 - Kólumbíska knattspyrnufélagið Deportivo Cali var stofnað.
- 1916 - Karlakór KFUM var stofnaður. Síðar var nafni hans breytt í Karlakórinn Fóstbræður.
- 1939 - Suðaustur af Íslandi var háð fyrsta sjóorrusta í heimsstyrjöldinni síðari, er þýsku herskipin Gneisenau og Scharnhorst sökktu breska skipinu HMS Rawalpindi. Þar fórust um 270 menn, en 23 var bjargað.
- 1947 - Tyrone Power kvikmyndaleikari kom við á Íslandi og vakti heimsóknin mikla athygli.
- 1953 - Félag íslenskra teiknara var stofnað.
- 1971 - Alþýðulýðveldið Kína tók sæti Lýðveldisins Kína í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
- 1976 - Flugvél frá Olympic Airways fórst á Ólympsfjalli með þeim afleiðingum að fimmtíu létust.
- 1976 - Jacques Mayol setti met í fríköfun þegar hann kafaði niður á 100 metra á 3:39 við eyjuna Elbu.
- 1980 - Nær 3000 manns létust og 300.000 misstu heimili sín í Irpiníujarðskjálftanum á Ítalíu.
- 1981 - Íran-kontrahneykslið: Ronald Reagan gaf leyniþjónustunni leyfi til að styðja við Kontraskæruliða í Níkaragva.
- 1985 - EgyptAir flugi 648 var rænt af meðlimum hryðjuverkahóps Abu Nidal og flogið til Möltu þar sem egypska sérsveitin réðist á flugvélina með þeim afleiðingum að 60 létust.
- 1988 - Fyrrum forseti Suður-Kóreu, Chun Doo-hwan, baðst opinberlega afsökunar á spillingu í valdatíð sinni og sagðist myndu fara í útlegð.
- 1990 - Örn og Örlygur gáfu út Íslensku alfræðiorðabókina, en hún var með 37 þúsund uppflettiorðum.
- 1991 - Freddie Mercury, söngvari hljómsveitarinnar Queen, lýsti því yfir að hann væri með alnæmi. Hann lést degi síðar.
- 1996 - Ethiopian Airlines flugi 961 var rænt. Flugvélin hrapaði síðan í Indlandshaf þegar hún varð uppiskroppa með eldsneyti. 125 af 175 um borð fórust.
- 1998 - Leikjatölvan Game Boy Color kom út í Evrópu.
- 1999 - Þingið í Kúveit dró til baka lög frá 1985 sem gáfu konum kosningarétt.
- 2001 - Netglæpasáttmálinn var undirritaður í Búdapest.
- 2003 - Rósabyltingin: Eduard Shevardnadze sagði af sér embætti forseta Georgíu eftir mótmælaöldu í kjölfar ásakana um kosningasvindl.
- 2004 - Fjölspilunarleikurinn World of Warcraft kom út í Bandaríkjunum.
- 2005 - Ellen Johnson Sirleaf varð fyrsti lýðræðislega kjörni kvenkyns þjóðarleiðtogi Afríku eftir sigur í þingkosningum í Líberíu.
- 2006 - 215 létust í röð bílasprengjuárása í Sadrborg í Bagdad.
- 2010 - Norðurkóreski herinn gerði stórskotaárás á suðurkóresku eyjuna Yeonpyeong.
- 2011 - Forseti Jemen, Ali Abdullah Saleh, sagði af sér vegna mótmæla gegn stjórn hans.
- 2019 - Þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði Bougainville fór fram. Yfirgnæfandi meirihluti kaus með sjálfstæði.
- 2019 - Síðasti súmötrunashyrningurinn dó í Malasíu.
- 2021 – Blóðtaka úr blóðmerum var stöðvuð á fimm stöðum á Íslandi eftir að myndbönd bárust frá dýraverndunarsamtökum um illa meðferð á merum.
- 2021 - 46 norðurmakedónskir ferðamenn létust í rútuslysi í Búlgaríu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 912 - Ottó 1. keisari (d. 973).
- 1221 - Alfons 10., konungur Kastilíu (d. 1284).
- 1553 - Prospero Alpini, ítalskur lækninr og grasafræðingur (d. 1617).
- 1608 - Francisco Manuel de Melo, portúgalskur rithöfundur (d. 1666).
- 1804 - Franklin Pierce, Bandaríkjaforseti (d. 1869).
- 1896 - Klement Gottwald, tékkneskur stjórnmálamaður (d. 1953).
- 1919 - Peter Frederick Strawson, enskur heimspekingur (d. 2006).
- 1921 - Fred Buscaglione, ítalskur tónlistarmaður (d. 1960).
- 1922 - Joan Fuster, spænskur rithöfundur (d. 1992).
- 1945 - Sturla Böðvarsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1949 - Örn Bárður Jónsson, íslenskur prestur.
- 1964 - Þórunn Egilsdóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1965 - Sergio Vázquez, argentínskur knattspyrnumaður.
- 1967 - Kristján B. Jónasson, íslenskur bókaútgefandi.
- 1968 - Hamid Hassani, íranskur fræðimaður.
- 1971 - Jóhann G. Jóhannsson, íslenskur leikari.
- 1971 - Chris Hardwick, bandarískur leikari.
- 1974 - Katrín Júlíusdóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1976 - Takayuki Chano, japanskur knattspyrnumaður.
- 1987 - Kasia Struss, pólsk fyrirsæta.
- 1992 - Miley Cyrus, bandarísk leikkona.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 955 - Játráður Englandskonungur (f. um 923).
- 1250 - Árni óreiða Magnússon.
- 1457 - Ladislás Posthumus, konungur Bæheims og Ungverjalands (f. 1440).
- 1682 - Claude Lorrain, franskur listmálari (f. um 1600).
- 1814 - Elbridge Gerry, bandarískur stjórnmálamaður (f. 1744).
- 1929 - Johannes Erhardt Böggild, fyrsti sendiherra Dana á Íslandi (f. 1878).
- 1957 - Haraldur Hamar Thorsteinsson, íslenskur rithöfundur (f. 1892).
- 1972 - Guðfinna Þorsteinsdóttir (Erla), íslensk skáldkona (f. 1891).
- 1974 - Páll Ísólfsson, íslenskt tónskáld (f. 1893).
- 1990 - Roald Dahl, breskur rithöfundur (f. 1916).
- 2006 - Alexander Litvinenko, rússneskur leyniþjónustumaður (f. 1962).
- 2007 - Ichiji Otani, japanskur knattspyrnumaður (f. 1912).
- 2012 - Larry Hagman, bandarískur leikari (f. 1931).
- 2013 - Jay Leggett, bandarískur leikari (f. 1963).