1964
Útlit
Árþúsund: | 2. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Árið 1964 (MCMLXIV í rómverskum tölum)
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- 4. mars - Hljómsveitin Hljómar hélt tónleika í Háskólabíói og nutu mikilla vinsælda í kjölfarið.
- 13. mars - Sextíu þjóðþekktir einstaklingar sendu frá sér áskorun til íslenskra stjórnvalda um að takmarka sjónvarpsútsendingar Kanasjónvarpsins.
- 15. apríl - Verslunarfélagið Íslensk Ameríska var stofnað.
- 9. maí - Verkamannasamband Íslands var stofnað.
- 21. júní - Keflavíkurganga á vegum hernámsandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
- 16. júlí - Filippus prins, hertogi af Edinborg heimsótti Ísland.
- 17. ágúst - Liverpool FC spilaði við KR á Íslandi og vann 5-0.
- 4. nóvember - Bjarni Benediktsson fór í opinbera heimsókn til Ísraels.
- Byggðasafn Árnesinga opnaði.
- Hjartavernd var stofnuð.
- Íslensk málnefnd var stofnuð.
- Tívolí í Reykjavík var lagt niður.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 24. ágúst - Svandís Svavarsdóttir, stjórnmálamaður.
- 10. nóvember - Magnús Scheving, íþróttamaður, leikari og framleiðandi.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 10. september - Dóra Þórhallsdóttir, forsetafrú (f. 1893)
- 31. desember - Ólafur Thors, stjórnmálamaður (f. 1892)
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 11. janúar - Landæknir Bandaríkjanna lýsti því yfir að reykingar væru hættulegar heilsu manna.
- 20. janúar - Meet the Beatles, önnur breiðskífa Bítlanna, kom út í Bandaríkjunum.
- 29. janúar - 9. febrúar - Vetrarólympíuleikarnir 1964 fóru fram í Innsbruck, Austurríki.
- 25. febrúar - Cassius Clay ( sem breytti skömmu síðar nafninu í Muhammad Ali) vann heimsmeistaratitillinn í hnefaleikum.
- 21. mars - Ítalía vann Eurovision.
- 27. mars - Gríðarstór jarðskjálfti, sá næststærsti sem mældur hefur verið, varð nálægt Anchorage, Alaska. 125 létust og eyðilagðist borgin mikið.
- 31. mars - 1. apríl - Valdarán í Brasilíu: Herforingjastjórn steypti af stóli lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum.
- 13. apríl - Sidney Poitier varð fyrsti þeldökki leikarinn til að vinna óskarsverðlaun fyrir aðalhlutverk í kvikmynd.
- 26. apríl - Tanganjika og Sansibar sameinuðust í Tansaníu.
- 28. maí - Frelsissamtök Palestínu voru stofnuð.
- 12. júní - Nelson Mandela og 7 aðrir voru dæmdir í fangelsi í Suður-Afríku.
- 17. - 21. júní - Evrópukeppnin í knattspyrnu fór fram.
- 6. júlí - Malaví hlaut sjálfstæði frá Bretlandi.
- 27. júlí - Víetnamstríðið: Bandaríkin fjölguðu í herliði sínu um 5.000 hermenn og varð fjöldi þeirra 21.000.
- 13. ágúst - Síðustu aftökurnar fóru fram í Bretlandi.
- 27. ágúst - Kvikmyndin Mary Poppins var frumsýnd. Hún sló metsölu.
- 4. september - Brúin yfir Firth of Forth opnaði í Skotlandi.
- 21. september - Malta fékk sjálfstæði frá Bretlandi.
- 10. - 24. október: Sumarólympíuleikarnir 1964 fóru fram í Tókíó, Japan.
- 14. október - Leoníd Brezhnev tók við sem leiðtogi Sovétríkjanna þegar hann steypti Níkíta Khrústsjov af stóli.
- 3. nóvember -
- Forsetakosningar í Bandaríkjunum: Lyndon B. Johnson sitjandi forseti vann sigur.
- Herinn framdi valdarán í Bólivíu.
- 21. nóvember - Verrazano-Narrows-brúin, stærsta hengibrú heims á þeim tíma, opnaði í New York.
- Fyrsta Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun var haldin.
- Skæruliðasamtökin FARC voru stofnuð í Kólumbíu.
- Hljómsveitin The Moody Blues var stofnuð.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 7. janúar - Nicolas Cage, bandarískur leikari.
- 17. janúar - Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna.
- 15. febrúar - Chris Farley, bandarískur leikari og grínisti (d. 1997)
- 6. apríl - David Woodard, bandarískur rithöfundur, tónskáld og leiðari.
- 20. apríl - Crispin Glover, bandarískur leikari.
- 20. apríl - Andy Serkis, breskur leikari.
- 25. apríl - Hank Azaria, bandarískur leikari og raddleikari.
- 30. maí - Tom Morello, bandarískur gítarleikari.
- 15. júní - Courteney Cox, bandarísk leikkona.
- 18. júní - Uday Hussein, íraskur leiðtogi, sonur Saddam Hussein (d. 2003)
- 20. júlí - Chris Cornell, bandarískur söngvari og tónlistarmaður (d. 2017)
- 22. júlí - David Spade, bandarískur leikari og grínisti.
- 26. júlí - Sandra Bullock, bandarísk leikkona.
- 6. ágúst - Adam Yauch, bandarískur rappari (d. 2012)
- 2. september - Keanu Reeves, bandarískur leikari.
- 16. september - Molly Shannon, bandarísk leikkona.
- 3. október - Clive Owen, breskur leikari.
- 9. október - Guillermo del Toro, mexíkóskur leikstjóri.
- 14. nóvember - Patrick Warburton, bandarískur leikari.
- 24. nóvember - Garret Dillahunt, bandarískur leikari.
- 25. nóvember - Mukhriz Mahathir, malasískur stjórnmálamaður.
- 29. nóvember - Don Cheadle, bandarískur leikari.
- 4. desember - Marisa Tomei, bandarísk leikkona.
- 8. desember - Teri Hatcher, bandarísk leikkona.
- 18. desember - Steve Austin, bandarískur atvinnuglímukappi.
- 23. desember - Eddie Vedder, bandarískur söngvari.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 9. mars - Paul von Lettow-Vorbeck, þýskur herforingi (f. 1870).
- 11. apríl - Guillermo Subiabre, síleskur knattspyrnumaður (f. 1903).
- 24. apríl - Gerhard Domagk, þýskur örverufræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1895).
- 3. júní - Frans Eemil Sillanpää, finnskur rithöfundur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1888).
- 12. ágúst - Ian Fleming, breskur rithöfundur, best þekktur fyrir bækur sínar um James Bond (f. 1908).