Sýslumenn á Íslandi
Sýslumenn á Íslandi eru 9 talsins (voru áður lengst af 24). Verkefni þeirra eru aðfarargerðir, dánarbú, nauðungarsölur, þinglýsingar og leyfi. Hinsvegar er það lögreglustjórn og ákæruvald. Fyrir lagabreytinguna 2014 fóru sumir sýslumenn auk þess með lögreglustjórn í sínum umdæmum. Skipulagsbreytingar hjá lögreglunni sem tóku gildi 1. janúar 2007 fækkuðu umdæmunum og þar með lögreglustjórum en fyrir hafði sýslumaðurinn í Reykjavík verið sá eini sem ekki var einnig lögreglustjóri. Árið 2014 voru sett ný lög um sýslumannsembættin sem þá fækkaði úr 24 í 9. Um leið fluttist lögreglustjórn frá öllum sýslumönnum til embætta lögreglustjóra.
Sýslumannsembættin eru einnig tengiliðir við Tryggingastofnun ríkisins og Hagstofu Íslands vegna þjóðskrár og hlutafélagaskrár.
Aðsetur og umdæmi sýslumanna frá 2007 til 2014
[breyta | breyta frumkóða]Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Reykjavík
- Sýslumaðurinn í Reykjavík:
- Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn á Akranesi:
- Sýslumaðurinn í Borgarnesi:
- Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur og Borgarbyggð.
- Fór einnig með lögreglustjórn í Dalabyggð.
- Sýslumaður Snæfellinga - Stykkishólmi:
- Sýslumaðurinn í Búðardal:
- Dalabyggð.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn á Patreksfirði:
- Reykhólahreppur, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn í Bolungarvík:
- Bolungarvíkurkaupstaður.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn á Ísafirði:
- Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur.
- Fór einnig með lögreglustjórn í Árneshreppi, Bolungarvík, Bæjarhreppi, Kaldrananeshreppi, Reykhólahreppi, Strandabyggð, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð.
- Sýslumaðurinn á Hólmavík:
- Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Bæjarhreppur.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn á Blönduósi:
- Sýslumaðurinn á Sauðárkróki:
- Sýslumaðurinn á Siglufirði:
- Fjallabyggð.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn á Akureyri:
- Grímseyjarhreppur, Dalvíkurbyggð, Arnarneshreppur, Hörgárbyggð, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur.
- Fór einnig með lögreglustjórn í Fjallabyggð
- Sýslumaðurinn á Húsavík:
- Sýslumaðurinn á Seyðisfirði:
- Sýslumaðurinn á Eskifirði:
- Mjóafjarðarhreppur, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur.
- Fór einnig með lögreglustjórn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
- Sýslumaðurinn á Höfn:
- Sveitarfélagið Hornafjörður.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn í Vík:
- Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn á Hvolsvelli:
- Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur.
- Fór einnig með lögreglustjórn í Skaftárhreppi og Mýrdalshreppi.
- Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum:
- Sýslumaðurinn á Selfossi:
- Sýslumaðurinn í Keflavík:
- Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Vogar, að varnarsvæðum undanskildum.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn í Hafnarfirði:
- Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær og Sveitarfélagið Álftanes.
- Var ekki lögreglustjóri.
- Sýslumaðurinn í Kópavogi:
- Kópavogsbær.
- Var ekki lögreglustjóri.
Hin gamla sýsluskipting réði oft mörkum umdæmanna en það er þó ekki algilt.