Borgarstjóri Reykjavíkur
Borgarstjóri Reykjavíkur er æðsti embættismaður Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri framkvæmir samþykktir borgarstjórnar og er yfirmaður starfsmanna borgarinnar. Hann er oftast valinn úr hópi borgarfulltrúa þó hann geti líka verið ráðinn. Núverandi borgarstjóri er Einar Þorsteinsson og tók hann við embætti 16. janúar 2024.
Tuttugu og tveir hafa gegnt embætti borgarstjóra Reykjavíkur, þar af átján karlmenn og fjórar konur.
Sögulegt yfirlit
[breyta | breyta frumkóða]Í bæjarstjórnarlögum fyrir Reykjavík sem sett voru árið 1907 var í fyrsta sinn kveðið á um embætti borgarstjóra. Embættið var auglýst árið 1908 og sóttu tveir um stöðuna, þeir Páll Einarsson og Knud Zimsen. Páll var ráðinn til sex ára en að þeim tíma loknum ákvað hann að hætta störfum og Knud Zimsen tók við embættinu. Hann hélt því til ársins 1932. Frá árinu 1935 til 1994 komu allir nema einn af borgarstjórum Reykjavíkur úr röðum Sjálfstæðisflokksins, sem hélt lengi vel hreinum meirihluta í borginni. Í kosningunum 1994 stofnuðu þáverandi félagshyggjuflokkar (Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið, Kvennalistinn og Framsóknarflokkurinn) sameiginlegan framboðslista sem kallaður var Reykjavíkurlistinn undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Reykjavíkurlistinn bauð fram og hélt meirihluta í borginni til ársins 2006 þegar flokkarnir sem mynduðu listann (þá Samfylkingin, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Framsóknarflokkurinn) buðu fram undir eigin merkjum á ný. Nýtt framboð, Besti flokkurinn, sem leiddur var af Jóni Gnarr bauð fram í sveitarstjórnarkosningunum 2010 og varð stærsti flokkurinn í borgarstjórn í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi 2008. Þá mynduðu borgarfulltrúar flokksins meirihluta ásamt Samfylkingunni og varð Jón Gnarr borgarstjóri. Besti flokkurinn bauð ekki fram aftur í sveitarstjórnarkosningunum 2014 en þá varð Samfylkingin stærsti flokkurinn í borgarstjórn og tók Dagur B. Eggertsson við sem borgarstjóri.
Í dag eru í meirihluta í borgarstjórn Samfylkingin, Viðreisn, Píratar og Framsóknarflokkurinn og er Einar Þorsteinsson borgarstjóri. Í minnihluta sitja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins.
Starf
[breyta | breyta frumkóða]Starf borgarstjóra felst í tveimur meginhlutverkum, annars vegar að starfa sem framkvæmdarstjóri Reykjavíkurborgar og hins vegar að koma fram sem opinber fulltrúi hennar. Iðulega er borgarstjóri jafnframt pólitískur leiðtogi meirihluta borgarstjórnar. Svo þarf ekki að vera, enda getur borgarstjóri verið ráðinn á faglegum forsendum eða verið pólitískur fulltrúi sem hefur þó ekki sérstaka leiðtogastöðu.
Hann getur tekið sæti á fundum nefndar borgarinnar og hefur þar bæði málfrelsi og tillögurétt. Einnig gegnir hann skyldum sem prókúruhafi borgarsjóðs og undirritar skjöl varðandi kaup og sölu á fasteignum, lántökur og annað sem varðar fjárhagslegar skuldbindingar og ráðstafanir eftir að borgarstjórn hefur samþykkt þær. Borgarstjóri fer líka með eignarhluta Reykjavíkurborgar í svokölluðum B-hluta fyrirtækjum.
Listi yfir borgarstjóra Reykjavíkur
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Reykjavik.is - Borgarstjórar í Reykjavík frá 1908 Geymt 2 janúar 2009 í Wayback Machine
- Upplýsingasíða um Jón Gnarr Geymt 3 júlí 2011 í Wayback Machine af vef Reykjavíkurborgar
- Öld frá skipun fyrsta borgarstjóra