Úlfarsfell
Úlfarsfell | |
Hæð | 296 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning | Mosfellssveit |
Úlfarsfell er lágt fjall á mörkum Reykjavíkur og Mosfellssveitar og er það 296 metra hátt. Skógrækt hefur verið í hlíðum fjallsins og hefur Skógræktarfélag Mosfellsbæjar umsjón með ræktuninni.[1]
Úlfarsfell er nefnt í fornu skjali, Hítardalsbók frá 1367 og í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns 1704. Nafnið er vafalítið dregið af mannsnafninu Úlfar, samanber Úlfarsá, en fjórir eru nefndir með því nafni í Landnámu.[2]
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Úlfarsfell Gönguleiðir. Skoðað 20. apríl, 2016.
- ↑ Hvaðan dregur Úlfarsfell nafn sitt? Vísindavefur. Skoðað 20. apríl, 2016.
