Þerney
Þerney er eyja á Kollafirði. Þerney er nefnd eftir kríunni, sem fyrrum var nefnd „þerna“. Hún er um 0,54 ferkílómetrar að stærð.
Þerney er notuð sem sumarleyfisstaður fyrir dýr sem Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn hefur á sínum vegum. Þangað fara þau í tveimur hópum, fyrri helmingurinn um miðjan júlí og seinni helmingurinn miðjan ágúst. Reynt er að miða við að dýrin fái jafn langt frí og starfsfólk í garðinum eða um mánuð.[1]
Í Þerney var kirkja á 13. öld. Á 18. öld var leiguliði bóndans verðlaunaður með konungsúrskurði fyrir garðhleðslu í eyjunni. Danskar kýr sem komu til Íslands 4. júlí 1933 voru fluttar til Þerneyjar í einangrun og einnig voru fluttar þangað karakúlkindur þann 10. júlí sama ár. Skömmu seinna fór að koma fram hringskyrfi á nautgripunum og breiddist sýkin út í nautgripi bóndans þar og sýktist fólk líka. Öllu búfénu var slátrað nema einum kálfi.
Þerney er ásamt Lundey, Akurey og Engey á Náttúruminjaskrá.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Engey, Akurey, Þerney og Lundey“. Reykjavíkurborg. Sótt 16.12.2022.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Þerney Nat.is Geymt 9 júní 2007 í Wayback Machine
- Þrír menn drukkna við Þerney; frétt í Morgunblaðinu 1931
- Karakúl kindur og enskir nautgripir; frétt í Morgunblaðinu 1933
- Álfsnes - Glóra - Niðurkot - Urðarkot - Háheiði - Víðines - Þerney