Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2018
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2018 var haldið í Rússlandi dagana 14. júní til 15. júlí 2018. Frakkland sigraði mótið.
Val á gestgjöfum
[breyta | breyta frumkóða]Rússland sótti árið 2009 formlega um að halda HM í knattspyrnu 2018. Alþjóðaknattspyrnusambandið ákvað að úthluta keppnunum 2018 og 2022 samtímis. Níu umsóknir bárust og voru úrskurðaðar gildar. Fljótlega tilkynntu öll umsóknarlöndin utan Evrópu að þau sæktust aðeins eftir að halda mótið 2020. Vegna reglna Alþjóðaknattspyrnusambandsins um að ekki skyldi halda mótið í sömu heimsálfu tvisvar í röð var því ljóst að evrópsku umsóknirnar fjórar kæmu einvörðungu til greina fyrir 2018 keppnina.
Auk Rússa sóttust Englendingar eftir hnossinu en einnig bárust tvær sameiginlegar umsóknir, annars vegar frá Belgíu og Hollandi en hins vegar frá Portúgal og Spáni. Kosið var milli umsækjendanna í höfuðstöðvum Alþjóðaknattspyrnusambandsins og úrslit tilkynnt þann 2. desember 2010. Engin umsókn fékk hreinan meirihluta í fyrstu umferð, þar sem Rússar fengu 9 atkvæði, Portúgal/Spánn 7, Belgía/Holland 4 og Englendingar ráku lestina með 2 atkvæði. Í annarri umferð var kosið milli þriggja efstu og hlutu Rússar þá 13 atkvæði og þar með gestgjafaréttinn.
Þátttökulið
[breyta | breyta frumkóða]32 þjóðir mættu til leiks frá sex heimsálfum.
|
Knattspyrnuvellir
[breyta | breyta frumkóða]Sankti Pétursborg |
---|
Krestovsky leikvangurinn (Saint Petersburg Stadium) |
Heildarfjöldi: 68,134 |
Kasan |
Kazan leikvangurinn |
Heildarfjöldi: 45,379 |
Samara |
Cosmos leikvangurinn (Samara Arena) |
Heildarfjöldi: 44,918 (nýr leikvangur) |
Saransk |
Mordovia leikvangurinn |
Heildarfjöldi: 44,442 (nýr leikvangur) |
Kalíníngrad |
---|
Kaliningrad leikvangurinn |
Heildarfjöldi: 35,212[1] (nýr leikvangur) |
Nizjny Novgorod |
Nizhny Novgorod leikvangurinn |
Heildarfjöldi: 44,899 (nýr leikvangur) |
Volgograd |
Volgograd leikvangurinn |
Heildarfjöldi: 45,568 (endurbyggður) |
Jekaterinburg |
Central leikvangurinn (Ekaterinburg Arena) |
Heildarfjöldi: 35,696[1] (uppfærður) |
Moskva | |
---|---|
Luzhniki-leikvangurinn | Otkrytiye Arena (Spartak Stadium) |
Heildarfjöldi: 81,000 | Heildarfjöldi: 45,360 |
Rostov við Don | Sotsjí |
Rostov leikvangurinn | Fisht Olympic leikvangurinn (Fisht Stadium) |
Heildarfjöldi: 45,000 (nýr leikvangur) |
Heildarfjöldi: 47,659 |
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Riðlakeppnin
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var í átta riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit.
A-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Heimamenn Rússar byrjuðu með látum og unnu 5:0 sigur á Sádi-Aröbum í opnunarleik mótsins. Það var stærsti sigur heimaþjóðar í fyrsta leik frá því að Ítalir unnu Bandaríkin 7:1 á HM 1934. Rússneska liðið bætti um betur og tryggði sér sæti í næstu umferð með 3:1 sigri á Egyptum. Afríska liðið hafði mætt til leiks með miklar væntingar en meiðsli stjörnu þeirra, Mohamed Salah skömmu fyrir mótið setti strik í reikninginn. Úrúgvæ sýndi engan stjörnuleik í 1:0 sigrum á Sádum og Egyptum, en tryggðu sér svo toppsætið í riðlinum með 3:0 sigri á gestgjöfunum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Úrúgvæ | 3 | 3 | 0 | 0 | 5 | 0 | +5 | 9 | |
2 | Rússland | 3 | 2 | 0 | 1 | 8 | 4 | +4 | 6 | |
3 | Sádí-Arabía | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 7 | -5 | 3 | |
4 | Egyptaland | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 6 | -4 | 0 |
14. júní 2018 15:00 | |||
Rússland | 5:0 | Sádi-Arabía | Luzhniki-leikvangurinn, Moskva Áhorfendur: 78.011 Dómari: Néstor Pitana, Argentínu |
Gazinsky 12, Cheryshev 43, 90+1, Dzyuba 71, Golovin 90+4 |
15. júní 2018 12:00 | |||
Egyptaland | 0:1 | Úrúgvæ | Jekaterinburgska Huvudska stadion, Jekaterinburg Áhorfendur: 27.015 Dómari: Björn Kuipers, Hollandi |
Giménez 89 |
19. júní 2018 18:00 | |||
Rússland | 3:1 | Egyptaland | Krestovsky stadion, Sankti Pétursborg Áhorfendur: 64.468 Dómari: Enrique Cáceres, Paragvæ |
Fathy 47 (sjálfsm.), Cheryshev 59, Dzyuba 62 | Salah 73 (víti) |
20. júní 2018 15:00 | |||
Úrúgvæ | 1:0 | Sádi-Arabía | Rostov Arena, Rostov við Don Áhorfendur: 42.678 Dómari: Clément Turpin, Frakklandi |
Suárez 23 |
25. júní 2018 14:00 | |||
Úrúgvæ | 3:0 | Rússland | Kosmos Arena, Samara Áhorfendur: 41.970 Dómari: Malang Diedhiou, Senegal |
Suárez 10, Cheryshev 23 (sjálfsm.), Cavani 90 |
25. júní 2018 14:00 | |||
Sádi-Arabía | 2:1 | Egyptaland | Volgograd Arena, Volgograd Áhorfendur: 36.823 Dómari: Wilmar Roldán, Kólumbíu |
Al-Faraj 45+6 (víti). Al-Dawsari 90+5 | Salah 22 |
B-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Spánn og Portúgal mættust í fyrstu umferð riðilsins í viðureign sem var almennt talin úrslitaleikurinn. Cristiano Ronaldo skoraði þrennu í 3:3 jafntefli og jafnaði metin undir lok leiksins. Í hinni viðureigninni tryggði sjálfsmark andstæðings á sjöttu mínútu uppbótartíma Írönum öll stigin þrjú. Evrópsku liðin unnu bæði 1:0 sigra á mótherjum sínum í annarri umferðinni. Portúgal virtist ætla að næla sér í toppsætið þegar komið var fram í uppbótartíma í lokaleikjunum tveimur. Þá jöfnuðu Íranir gegn Portúgölum og Spánverjar björguðu eigin skinni og efsta sætinu með því að jafna 2:2 gegn Marokkó.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Spánn | 2 | 1 | 2 | 0 | 6 | 5 | +1 | 5 | |
2 | Portúgal | 2 | 1 | 2 | 0 | 5 | 4 | +1 | 5 | |
3 | Íran | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 0 | 4 | |
4 | Marokkó | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 4 | -2 | 1 |
15. júní 2018 15:00 | |||
Marokkó | 0:1 | Íran | Krestovsky stadion, Sankti Pétursborg Áhorfendur: 62.548 Dómari: Cüneyt Çakır, Tyrklandi |
Bouhaddouz 90+5 (sjálfsm.) |
15. júní 2018 18:00 | |||
Portúgal | 3:3 | Spánn | Fisjt Olympiska stadion, Sotsjí Áhorfendur: 43.866 Dómari: Gianluca Rocchi, Ítalíu |
Ronaldo 4 (víti), 44, 88 | Costa 24, 55, Nacho 58 |
20. júní 2018 12:00 | |||
Portúgal | 1:0 | Marokkó | Luzhniki-leikvangurinn, Moskva Áhorfendur: 78.011 Dómari: Mark Geiger, Bandaríkjunum |
Ronaldo 4 |
20. júní 2018 18:00 | |||
Íran | 0:1 | Spánn | Kazan Arena, Kasan Áhorfendur: 42.718 Dómari: Andrés Cunha, Úrúgvæ |
Costa 54 |
25. júní 2018 18:00 | |||
Íran | 1:1 | Portúgal | Mordovia Arena, Saransk Áhorfendur: 41.685 Dómari: Enrique Cáceres, Paragvæ |
Ansarifard 90+3 (víti) | Quaresma 45 |
25. júní 2018 18:00 | |||
Spánn | 2:2 | Marokkó | Kaliningrad stadion, Kalíníngrad Áhorfendur: 33.973 Dómari: Ravshan Irmatov, Úsbekistan |
Isco 19, Aspas 90+1 | Boutaïb 14, En-Nesyri 81 |
C-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta vítaspyrnan á grunni myndbandsdómgæslu var dæmd í viðureign Frakka og Ástrala. Frakkar og Danir höfnuðu í tveimur efstu sætunum og luku keppni með markalausu jafntefli. Perú og Ástraía sátu eftir með þrjú og eitt stig.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Frakkland | 3 | 2 | 1 | 0 | 3 | 1 | +2 | 7 | |
2 | Danmörk | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 | 1 | +1 | 5 | |
3 | Perú | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 2 | 0 | 3 | |
4 | Ástralía | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 5 | -3 | 1 |
16. júní 2018 10:00 | |||
Frakkland | 2:1 | Ástralía | Kazan Arena, Kasan Áhorfendur: 41.279 Dómari: Andrés Cunha, Úrúgvæ |
Griezmann 58 (víti), Behich 81 (sjálfsm.) | Jedinak 62 (víti) |
16. júní 2018 16:00 | |||
Perú | 0:1 | Danmörk | Mordovia Arena, Saransk Áhorfendur: 40.502 Dómari: Bakary Gassama, Gambíu |
Poulsen 59 |
21. júní 2018 12:00 | |||
Danmörk | 1:1 | Ástralía | Kosmos Arena, Samara Áhorfendur: 40.727 Dómari: Antonio Mateu Lahoz, Spáni |
Eriksen 7 | Jedinak 38 (víti) |
21. júní 2018 15:00 | |||
Frakkland | 1:0 | Perú | Jekaterinburgska Huvudska stadion, Jekaterinburg Áhorfendur: 32.789 Dómari: Mohammed Abdulla Hassan Mohamed, Sameinuðu arabísku furstadæmunum |
Mbappé 34 |
26. júní 2018 14:00 | |||
Danmörk | 0:0 | Frakkland | Luzhniki-leikvangurinn, Moskva Áhorfendur: 78.011 Dómari: Sandro Ricci, Brasilíu |
26. júní 2018 14:00 | |||
Ástralía | 0:2 | Perú | Fisjt Olympiska stadion, Sotsjí Áhorfendur: 44.073 Dómari: Sergei Karasev, Rússlandi |
Carrillo 18, Guerrero 50 |
D-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Íslendingar hófu keppni sína á HM með óvæntu jafntefli gegn Argentínu þar sem Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá Lionel Messi. Íslenska liðinu tókst ekki að fylgja eftir þessari góðu byrjun og mátti sætta sig við töp í tveimur seinni leikjunum. Vandræði Argentínumanna jukust enn eftir 3:0 skell gegn Króötum í öðrum leik sínum og þurftu sigurmark á lokamínútunum gegn Nígeríu til að skríða áfram ásamt Króötum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Króatía | 3 | 3 | 0 | 0 | 7 | 1 | +6 | 9 | |
2 | Argentína | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 5 | -2 | 4 | |
3 | Nígería | 3 | 1 | 0 | 2 | 3 | 4 | -1 | 3 | |
4 | Ísland | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 5 | -3 | 1 |
16. júní 2018 13:00 | |||
Argentína | 1:1 | Ísland | Otkrjtije Arena, Moskva Áhorfendur: 44.190 Dómari: Szymon Marciniak, Póllandi |
Agüero 19 | [1] | Alfreð Finnbogason 23 |
16. júní 2018 19:00 | |||
Króatía | 2:0 | Nígería | Kaliningrad stadion, Kalíníngrad Áhorfendur: 31.136 Dómari: Sandro Ricci, Brasilíu |
Etebo 32 (sjálfsm.) Modrić 71 (víti) |
21. júní 2018 18:00 | |||
Argentína | 0:3 | Króatía | Nizjny Novgorod stadion, Nizjny Novgorod Áhorfendur: 43.319 Dómari: Ravshan Irmatov, Úsbekistan |
Rebić 53, Modrić 80, Rakitić 90+1 |
22. júní 2018 15:00 | |||
Nígería | 2:0 | Ísland | Volgograd Arena, Volgograd Áhorfendur: 40.904 Dómari: Matthew Conger, Nýja-Sjálandi |
Musa 49, 75 |
26. júní 2018 18:00 | |||
Nígería | 1:2 | Argentína | Krestovsky stadion, Sankti Pétursborg Áhorfendur: 64.468 Dómari: Cüneyt Çakır, Tyrklandi |
Moses 51 (víti) | Messi 14, Rojo 86 |
26. júní 2018 18:00 | |||
Ísland | 1:2 | Króatía | Rostov Arena, Rostov við Don Áhorfendur: 43.427 Dómari: Antonio Mateu Lahoz, Spáni |
Gylfi Þór Sigurðsson 76 (víti) | Badelj 53, Perišić 90 |
E-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Brasilíumenn unnu riðilinn eins og búist var við. Þeir komust þó í hann krappann gegn Kosta Ríka en skoruðu tvívegis í uppbótartíma. Serbar unnu fyrsta leik sinn og virtust ætla að ná jafntefli gegn Svisslendingum en sigurmark þeirra síðarnefndu fór langleiðina með að tryggja liðinu annað sætið í riðlinum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 1 | +4 | 7 | |
2 | Sviss | 3 | 1 | 2 | 0 | 5 | 4 | +1 | 5 | |
3 | Serbía | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 4 | -2 | 3 | |
4 | Kosta Ríka | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 5 | -3 | 1 |
17. júní 2018 12:00 | |||
Kosta Ríka | 0:1 | Serbía | Kosmos Arena, Samara Áhorfendur: 41.432 Dómari: Malang Diedhiou, Senegal |
Kolarov 56 |
17. júní 2018 18:00 | |||
Brasilía | 1:1 | Sviss | Rostov Arena, Rostov við Don Áhorfendur: 43.109 Dómari: César Arturo Ramos, Mexíkó |
Coutinho 20 | Zuber 50 |
22. júní 2018 12:00 | |||
Brasilía | 2:0 | Kosta Ríka | Krestovsky stadion, Sankti Pétursborg Áhorfendur: 64.468 Dómari: Björn Kuipers, Hollandi |
Coutinho 90+1, Neymar 90+7 |
22. júní 2018 18:00 | |||
Serbía | 1:2 | Sviss | Kaliningrad stadion, Kalíníngrad Áhorfendur: 33.167 Dómari: Felix Brych, Þýskalandi |
Mitrović 5 | Xhaka 52, Shaqiri 90 |
27. júní 2018 18:00 | |||
Serbía | 0:2 | Brasilía | Otkrjtije Arena, Moskva Áhorfendur: 44.190 Dómari: Alireza Faghani, Íran |
Paulinho 36, Thiago Silva 68 |
27. júní 2018 18:00 | |||
Sviss | 2:2 | Kosta Ríka | Nizjny Novgorod stadion, Nizjny Novgorod Áhorfendur: 43.319 Dómari: Clément Turpin, Frakklandi |
Džemaili 31, Drmić 88 | Waston 56, Sommer 90+3 (sjálfsm.) |
F-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Þjóðverjar bættust í hóp ríkjandi heimsmeistara sem mistókst að komast upp úr riðlakeppninni á næsta heimsmeistaramóti. Eftir að hafa herjað út sigur gegn Svíum í öðrum leik sínum virtust meistararnir ætla að sleppa með skrekkinn og dugði sigur í lokaumferðinni gegn Suður-Kóreu sem fallin var úr keppni. Eftir stífa sókn þýska liðsins skoruðu Kóreumennirnir tvívegis í uppbótartíma. Niðurstaðan varð sú að Svíar og Mexíkóar komust upp úr riðlinum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Svíþjóð | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 2 | +3 | 6 | |
2 | Mexíkó | 3 | 2 | 0 | 1 | 3 | 4 | -1 | 6 | |
3 | Suður-Kórea | 3 | 1 | 0 | 2 | 3 | 3 | 0 | 3 | |
4 | Þýskaland | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 4 | -2 | 3 |
17. júní 2018 15:00 | |||
Þýskaland | 0:1 | Mexíkó | Luzhniki-leikvangurinn, Moskva Áhorfendur: 78.011 Dómari: Alireza Faghani, Íran |
Lozano 35 |
18. júní 2018 12:00 | |||
Svíþjóð | 1:0 | Suður-Kórea | Nizjny Novgorod stadion, Nizjny Novgorod Áhorfendur: 42.300 Dómari: Joel Aguilar, El Salvador |
Granqvist 65 (víti) |
23. júní 2018 15:00 | |||
Suður-Kórea | 1:2 | Mexíkó | Rostov Arena, Rostov við Don Áhorfendur: 43.472 Dómari: Milorad Mažić, Serbíu |
Son Heung-min 90+3 | Vela 26 (víti), Hernández 66 |
23. júní 2018 18:00 | |||
Þýskaland | 2:1 | Svíþjóð | Fisjt Olympiska stadion, Sotsjí Áhorfendur: 44.287 Dómari: Szymon Marciniak, Póllandi |
Reus 48, Kroos 90+5 | Toivonen 32 |
27. júní 2018 14:00 | |||
Suður-Kórea | 2:0 | Þýskaland | Kazan Arena, Kasan Áhorfendur: 41.835 Dómari: Mark Geiger, Bandaríkjunum |
Kim Young-gwon 90+3, Son Heung-min 90+6 |
27. júní 2018 14:00 | |||
Mexíkó | 0:3 | Svíþjóð | Jekaterinburgska Huvudska stadion, Jekaterinburg Áhorfendur: 33.061 Dómari: Néstor Pitana, Argentínu |
Augustinsson 50, Granqvist 62 (víti), Álvarez 74 (sjálfsm.) |
G-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Panama tapaði öllum leikjunum á sínu fyrsta heimsmeistaramóti, þar á meðal 6:1 gegn Englendingum sem reyndist vera stærsti sigurinn á mótinu. Markasúpan dugði Englendingum þó aðeins til annars sætisins á eftir Belgum sem unnu innbyrðisviðureignina í Kaliningrad.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Belgía | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 | 2 | +7 | 9 | |
2 | England | 3 | 2 | 1 | 0 | 8 | 3 | +5 | 6 | |
3 | Túnis | 3 | 1 | 0 | 2 | 5 | 8 | -3 | 3 | |
4 | Panama | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 11 | -9 | 0 |
18. júní 2018 15:00 | |||
Belgía | 3:0 | Panama | Fisjt Olympiska stadion, Sotsjí Áhorfendur: 43.257 Dómari: Janny Sikazwe, Sambíu |
Mertens 47, Lukaku 69, 75 |
18. júní 2018 18:00 | |||
Túnis | 1:2 | England | Volgograd Arena, Volgograd Áhorfendur: 41.064 Dómari: Wilmar Roldán, Kólumbíu |
Sassi 35 (víti) | Kane 11, 90+1 |
23. júní 2018 12:00 | |||
Belgía | 5:2 | Túnis | Otkrjtije Arena, Moskva Áhorfendur: 44.190 Dómari: Jair Marrufo, Bandaríkjunum |
E. Hazard 6 (víti), 51, Lukaku 16, 45+3, Batshuayi 90 | Bronn 18, Khazri 90+3 |
24. júní 2018 12:00 | |||
England | 6:1 | Panama | Nizjny Novgorod stadium, Nizjny Novgorod Áhorfendur: 43.319 Dómari: Gehad Grisha, Egyptalandi |
Stones 8, 40, Kane 22 (víti), 45+1 (víti), 62, Lingard 36 | Baloy 78 |
28. júní 2018 18:00 | |||
England | 0:1 | Belgía | Kaliningrad stadion, Kalíníngrad Áhorfendur: 33.973 Dómari: Damir Skomina, Slóveníu |
Januzaj 51 |
28. júní 2018 18:00 | |||
Panama | 1:2 | Túnis | Mordovia Arena, Saransk Áhorfendur: 37.168 Dómari: Nawaf Shukralla, Barein |
Meriah 33 (sjálfsm.) | F. Ben Youssef 51, Khazri 66 |
H-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Kólumbía tapaði upphafsleik sínum en náði samt toppsæti riðilsins. Pólverjar úr efsta styrkleikaflokki ollu stuðningsmönnum sínum miklum vonbrigðum, töpuðu tveimur fyrstu leikjunum og enduðu að lokum neðstir. Japan og Senegal urðu jöfn að stigum og með nákvæmlega sömu markatölu í öðru og þriðja sæti. Þá þurfti að grípa til háttvísisstiga og þar höfðu Japanir betur og komust í næstu umferð. Sú niðurstaða þótti sérlega kaldhæðnisleg í ljósi þess að japanska liðið lagði árar í bát síðustu mínúturnar í lokaleiknum gegn Pólverjum, reyndi ekki að jafna metin heldur gættu þess eins að næla sér ekki í fleiri spjöld. Fram komu kröfur um að FIFA refsaði Japönum fyrir þetta en við slíku var ekki orðið.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Kólumbía | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 2 | +3 | 6 | |
2 | Japan (*) | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 4 | 0 | 4 | |
3 | Senegal | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 4 | 0 | 4 | |
4 | Pólland | 3 | 1 | 0 | 0 | 0 | 2 | 5 | 3 |
(*) Japan komst í 16-liða úrslit út á færri gul spjöld en Senegal.
19. júní 2018 12:00 | |||
Kólumbía | 1:2 | Japan | Mordovia Arena, Saransk Áhorfendur: 40.842 Dómari: Damir Skomina, Slóveníu |
Quintero 39 | Kagawa 6 (víti), Osako 73 |
19. júní 2018 15:00 | |||
Pólland | 1:2 | Senegal | Otkrjtije Arena, Moskva Áhorfendur: 44.190 Dómari: Nawaf Shukralla , Barein |
Krychowiak 86 | Cionek 37 (sjálfsm.), Niang 60 |
24. júní 2018 15:00 | |||
Japan | 2:2 | Senegal | Jekaterinburgska Huvudska stadion, Jekaterinburg Áhorfendur: 32.572 Dómari: Gianluca Rocchi , Ítalíu |
Inui 34, Honda 78 | Mané 11, Wagué 71 |
24. júní 2018 18:00 | |||
Pólland | 0:3 | Kólumbía | Kazan Arena, Kasan Áhorfendur: 42.873 Dómari: César Arturo Ramos, Mexíkó |
Mina 40, Falcao 70, Ju. Cuadrado 75 |
28. júní 2018 14:00 | |||
Japan | 0:1 | Pólland | Volgograd Arena, Volgograd Áhorfendur: 42.189 Dómari: Janny Sikazwe, Sambíu |
Bednarek 59 |
28. júní 2018 14:00 | |||
Senegal | 0:1 | Kólumbía | Kosmos Arena, Samara Áhorfendur: 41.970 Dómari: Milorad Mažić, Serbíu |
Mina 74 |
Útsláttarkeppni
[breyta | breyta frumkóða]16 liða úrslit | 8 liða úrslit | 4 liða úrslit | Úrslit | |||||||||||
30. júní – Sochi | ||||||||||||||
Úrúgvæ | 2 | |||||||||||||
6. júlí – Nizhny Novgorod | ||||||||||||||
Portúgal | 1 | |||||||||||||
Úrúgvæ | 0 | |||||||||||||
30. júní – Kazan | ||||||||||||||
Frakkland | 2 | |||||||||||||
Frakkland | 4 | |||||||||||||
10. júlí – Sánti Pétersborg | ||||||||||||||
Argentína | 3 | |||||||||||||
Frakkland | 1 | |||||||||||||
2. júlí – Samara | ||||||||||||||
Belgía | 0 | |||||||||||||
Brasilía | 2 | |||||||||||||
6. júlí – Kazan | ||||||||||||||
Mexíkó | 0 | |||||||||||||
Brasilía | 1 | |||||||||||||
2. júlí – Rostov-na-Donu | ||||||||||||||
Belgía | 2 | |||||||||||||
Belgía | 3 | |||||||||||||
15. júlí – Moskva (Luzhniki) | ||||||||||||||
Japan | 2 | |||||||||||||
Frakkland | 4 | |||||||||||||
1. júlí – Moskva (Luzhniki) | ||||||||||||||
Króatía | 2 | |||||||||||||
Spánn | 1(3) | |||||||||||||
7. júlí – Sochi | ||||||||||||||
Rússland (vítak.) | 1(4) | |||||||||||||
Rússland | 2(3) | |||||||||||||
1. júlí – Nizhny Novgorod | ||||||||||||||
Króatía (vítak.) | 2(4) | |||||||||||||
Króatía (vítak.) | 1(3) | |||||||||||||
11. júlí – Moskva (Luzhniki) | ||||||||||||||
Danmörk | 1(2) | |||||||||||||
Króatía (vítak.) | 2 | |||||||||||||
3. júlí – Sankti Pétursborg | ||||||||||||||
England | 1 | Umspil um þriðja sæti | ||||||||||||
Svíþjóð | 1 | |||||||||||||
7. júlí – Samara | 14. júlí – Sankti Pétursborg | |||||||||||||
Sviss | 0 | |||||||||||||
Svíþjóð | 0 | Belgía | 2 | |||||||||||
3. júlí – Moskva (Otkrytiye) | ||||||||||||||
England | 2 | England | 0 | |||||||||||
Kólumbía | 1(3) | |||||||||||||
England (vítak.) | 1(4) | |||||||||||||
16 liða úrslit
[breyta | breyta frumkóða]Argentínumenn komust í 2:1 í æsilegum sjö marka leik gegn Frökkum sem höfðu að lokum betu, 4:3. Mark Benjamin Pavard var síðar kosið það fallegasta í keppninni. Edinson Cavani skoraði tvisvar í sigurleik gegn Portúgal, en meiddist og þar með var þátttöku hans lokið á mótinu. Velgengni heimaþjóðarinnar hélt áfram, Rússar slógu Spánverja úr leik eftir vítaspyrnukeppni. Einnig þurfti að grípa til vítaspyrna til að knýa fram úrslit í viðureign Króata og Dana þar sem þeir fyrrnefndu reyndust sterkari. Brasilía og Mexíkó mættust í fimmta sinn í sögu úrslitakeppni HM og sem fyrr héldust Brasilíumenn ósigraðir. Það stefndi í gríðarlega óvænt úrslit í viðureign Belgíu og Japan þar sem Asíubúarnir komust tveimur mörkum yfir en Belgar svöruðu með þremur mörkum, því síðasta í uppbótartíma. Svíar unnu Svisslendinga í tilþrifalitlum leik. Kólumbía jafnaði gegn Englandi í blálokin en enska liðið hafði betur í vítaspyrnukeppni.
30. júní 2018 14:00 | |||
Frakkland | 4 - 3 | Argentína | Kazan Arena, Kasan Áhorfendur: 42.873 Dómari: Alireza Faghani, Íran |
Griezmann 13 (vítasp.), Pavard 57, Mbappé 64, 68 | Di María 41, Mercado 48, Agüero 90+3 |
30. júní 2018 18:00 | |||
Úrúgvæ | 2 - 1 | Portúgal | Fisht Olympic Stadium, Sotsjí Áhorfendur: 44.287 Dómari: César Arturo Ramos, Mexíkó |
Cavani 7, 62 | Pepe 55 |
1. júlí 2018 14:00 | |||
Spánn | 1 - 1 | Rússland | Luzhniki-leikvangurinn, Moskva Áhorfendur: 78.011 |
*Ignashevich 12 (sjálfsm.) | *Dzyuba 41 (víti) |
1. júlí 2018 18:00 | |||
Króatía | 1 - 1 | Danmörk | Nizhny Novgorod Stadium, Nízhníj Novgorod Áhorfendur: 40.851 |
*Mandžukić 4 | *M. Jørgensen 1 |
2. júlí 2018 14:00 | |||
Brasilía | 2 - 0 | Mexíkó | Cosmos Arena, Samara Áhorfendur: 41.970 Dómari: Gianluca Rocchi, Ítalíu |
Neymar 51, Firmino 88 |
2. júlí 2018 18:00 | |||
Belgía | 3 - 2 | Japan | Rostov Arena, Rostov við Don Áhorfendur: 41.466 Dómari: Malang Diedhiou, Senegal |
Vertonghen 69, Fellaini 74, Chadli 90+4 | Haraguchi 48, Inui 52 |
3. júlí 2018 14:00 | |||
Svíþjóð | 1 - 0 | Sviss | Krestovsky Stadium, Sankti Pétursborg Áhorfendur: 64.042 Dómari: Damir Skomina, Slóveníu |
Forsberg 66 |
3. júlí 2018 18:00 | |||
Kólumbía | 1 - 1 | England | Otkrjtije Arena, Moskva Áhorfendur: 44.190 |
Mina 90+3 | Kane 57 (víti) |
Fjórðungsúrslit
[breyta | breyta frumkóða]6. júlí 2018 14:00 | |||
Úrúgvæ | 0-2 | Frakkland | Nizhny Novgorod Stadium, Nízhníj Novgorod Áhorfendur: 43.319 Dómari: Néstor Pitana, Argentínu |
Varane 40, Griezmann 61 |
6. júlí 2018 18:00 | |||
Brasilía | 1-2 | Belgía | Kazan Arena, Kasan Áhorfendur: 42.873 Dómari: Milorad Mažić, Serbíu |
Renato Augusto 76 | Fernandinho 13 (sjálfsm.), De Bruyne 31 |
7. júlí 2018 14:00 | |||
Svíþjóð | 0-2 | England | Cosmos Arena, Samara Áhorfendur: 39.991 Dómari: Björn Kuipers, Hollandi |
Maguire 30, Alli 59 |
7. júlí 2018 18:00 | |||
Rússland | 2-2 (3-4 e.vítake.) | Króatía | Fisht Olympic Stadium, Sotsjí Áhorfendur: 44.287 Dómari: Sandro Ricci, Brasilíu |
Cheryshev 31, Fernandes 115 | Kramarić 39, Vida 101 |
Undanúrslit
[breyta | breyta frumkóða]Belgar töpuðu sínum fyrsta leik frá því í september 2016 þegar Frakkar unnu þá 1:0 og komust í sinn fyrsta HM-úrslitaleik. Í hinni undanúrslitaviðureigninni komust Englendingar yfir snemma leiks en Króatar jöfnuðu og skoruðu svo sigurmark í seinni hálfleik framlengingarinnar.
10. júlí 2018 18:00 | |||
Frakkland | 1-0 | Belgía | Krestovsky stadion, Sankti Pétursborg Áhorfendur: 64.286 Dómari: Andrés Cunha, Úrúgvæ |
Umtiti 51 |
11. júlí 2018 18:00 | |||
Króatía | 2-1 | England | Luzhniki-leikvangurinn, Moskva Áhorfendur: 78.011 Dómari: Cüneyt Çakır, Tyrklandi |
Perišić 68, Mario Mandžukić 109 | Kieran Trippier 5 |
Bronsleikur
[breyta | breyta frumkóða]Belgar höfðu best náð fjórða sæti á HM 1986 en gerði einu betur með því að tryggja sér bronsverðlaunin með 2:0 sigur á þreyttu ensku liði. Tíu leikmenn skoruðu fyrir belgíska liðið í keppninni.
14. júlí 2018 14:00 | |||
Belgía | 2-0 | England | Krestovsky stadion, Sankti Pétursborg Áhorfendur: 64.406 Dómari: Alireza Faghani, Íran |
Meunier 4, E. Hazard 82 |
Úrslitaleikur
[breyta | breyta frumkóða]Króatíska liðið hafði í þrígang þurft að fara í gegnum framlengingu í útsláttarkeppninni og þreytan var farin að segja til sín í úrslitunum. Eftir að hafa lent undir snemma leiks með sjálfsmarki tókst Króötunum að jafna en lentu svo 4:1 undir og tókst ekki að klóra sig aftur inn í leikinn þrátt fyrir að minnka muninn þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Úrhellisrigning braust út í leikslok og meðan á verðlaunaafhendingunni stóð.
11. júlí 2018 18:00 | |||
Frakkland | 4-2 | Króatía | Luzhniki-leikvangurinn, Moskvu Áhorfendur: 78.011 Dómari: Néstor Pitana, Argentínu |
Mandžukić 18 (sjálfsm.), Griezmann 38 (vítasp.), Pogba 59, Mbappé 65 | Perišić 28, Mandžukić 69 |
Markahæstu leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]Harry Kane hreppti gullskó FIFA með sex mörk skoruð, tveimur meira en næstu menn. Alls voru 169 mörk skorað, þar af voru tólf sjálfsmörk sem var nýtt met.
- 6 mörk
- 4 mörk
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 „Capacity at 2 of Russia's stadiums to be reduced“. The Oklahoman (via Associated Press). 26. september 2014. Afrit af upprunalegu geymt þann 19 október 2014. Sótt 28. september 2014.