Fara í innihald

Mosfellsbær

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær
Skjaldarmerki Mosfellsbæjar
Staðsetning Mosfellsbæjar
Staðsetning Mosfellsbæjar
Hnit: 64°10′N 21°43′V / 64.17°N 21.72°V / 64.17; -21.72
LandÍsland
KjördæmiSuðvesturkjördæmi
ÞéttbýliskjarnarMosfellsbær
Stjórnarfar
 • BæjarstjóriRegína Ásvaldsdóttir
Flatarmál
 • Samtals186 km2
 • Sæti46. sæti
Mannfjöldi
 (2024)
 • Samtals13.403
 • Sæti7. sæti
 • Þéttleiki72,06/km2
Póstnúmer
270, 271
Sveitarfélagsnúmer1604
Vefsíðamos.is

Mosfellsbær (einnig kallaður Mosó í talmáli) er sveitarfélag sem liggur norðaustan við Reykjavík. Mosfellsbær varð til 9. ágúst 1987 þegar Mosfellshreppur varð að bæjarfélagi. Íbúar eru um 13.519 í apríl 2023.

Síðan 1933 hefur heitt vatn verið leitt úr Mosfellsbæ og til Reykjavíkur. Ullarvinnsla var mikilvæg grein í bænum og var þar framleiðsla við Álafoss frá 1919 til 1955. Nú er þar meðal annars aðsetur listamanna.

Íþróttir og afþreying

[breyta | breyta frumkóða]

Í Mosfellsbæ er íþróttafélagið Afturelding. Tvær sundlaugar eru í Mosfellsbæ: Varmárlaug og Lágafellslaug. Göngustígar eru við Álafosskvos og við Reykjalund. Skógrækt og gönguleiðir eru við Úlfarsfell.

Bæjarstjórn

[breyta | breyta frumkóða]

Í bæjarstjórn Mosfellsbæjar sitja 11 fulltrúar sem kjörnir eru í hlutfallskosningu á fjögurra ára fresti. Síðast var kosið til bæjarstjórnar í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí 2022.

Heiðursborgarar

[breyta | breyta frumkóða]

Fjórir einstaklingar eru heiðursborgarar Mosfellsbæjar:[1]

Mosfellingur ársins

[breyta | breyta frumkóða]

Bæjarblaðið Mosfellingur hefur staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins síðan 2005. Blaðið kynnir Mosfelling ársins í fyrsta tölublaði hvers árs. Sautján einstaklingar hafa hlotið nafnbótina Mosfellingur ársins:[9]

Ár Nafn
2023 Halldór Laxness Halldórsson Skemmtikraftur og höfundur, betur þekktur sem Dóri DNA
2022 Halla Karen Kristjánsdóttir Íþrótta­fræð­ing­ur og formað­ur bæj­ar­ráðs Mos­fells­bæj­ar
2021 Elva Björg Pálsdóttir Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara
2020 Sigmar Vilhjálmsson Sjónvarps-, fjölmiðla- og athafnamaður
2019 Hilmar Elísson Bjargaði manni frá drukknun
2018 Óskar Vídalín Stofnandi Minningarsjóðs Einars Darra
2017 Jón Kalman Stefánsson Rithöfundur
2016 Guðni Valur Guðnason Kringluskastari og Ólympíufari
2015 Sigrún Þuríður Geirsdóttir Fyrsta íslenska konan til að synda Ermarsundið
2014 Jóhanna Elísa Engilhartsdóttir Fyrsti sigurvegari í Biggest Loser á Íslandi
2013 Hljómsveitin Kaleo
2012 Gréta Salóme Söngkona og fiðluleikari
2011 Hanna Símonardóttir Athafnakona
2010 Steindi Jr. Skemmtikraftur og sjónvarpsmaður
2009 Embla Ágústsdóttir Heimsmethafi í flugsundi
2008 Albert Rútsson Athafnamaður og hóteleigandi
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson Bjargaði tveggja ára barni í Lágafellslaug
2006 Hjalti Úrsus Árnason Afreksmaður í kraftlyftingum
2005 Sigsteinn Pálsson Fyrrverandi bóndi á Blikastöðum

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Heiðursborgari Mosfellsbæjar, vefsíða Mosfellsbæjar, sótt 5. júní 2017
  2. Halldór Laxness heiðursborgari Mosfellshrepps, Morgunblaðið, 22. apríl 1972, bls. 2
  3. Kraftaskáld vorra tíma, Morgunblaðið, 3. maí 1972, bls. 11
  4. Jón M. Guðmundsson (minningargrein), Morgunblaðið, 7. maí 2009, bls. 29
  5. Heiðursborgari í Mosfellsbæ, Morgunblaðið, 31. október 2000, bls. 10
  6. Salome Þorkelsdóttir, vefsíða Alþingis, sótt 5. júní 2017
  7. Salóme gerð að heiðursborgara í Mosfellsbæ, Morgunblaðið, 10. ágúst 2007, bls. 2
  8. „Birg­ir D. Sveins­son heið­urs­borg­ari Mos­fells­bæj­ar“. Mosfellsbær. 19. júní 2024. Sótt 29. júlí 2024.
  9. Mosfellingur ársins[óvirkur tengill], vefsíða Mosfellsbæjar, sótt 16. febrúar 2022