Bandarísku Jómfrúaeyjar
United States Virgin Islands | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: United in Pride and Hope | |
Þjóðsöngur: Jómfrúaeyjamarsinn | |
Höfuðborg | Charlotte Amalie |
Opinbert tungumál | Enska |
Stjórnarfar | Lýðveldi
|
Forseti | Joe Biden |
Landstjóri | Albert Bryan |
Bandarískt yfirráðasvæði | |
• keyptar af Danmörku | 17. janúar 1917 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
346 km² 1 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
87.146 252,4/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 4,2 millj. dala |
• Á mann | 38.136 dalir |
VÞL (2019) | 0.892 (31. sæti) |
Gjaldmiðill | Bandaríkjadalur (USD) |
Tímabelti | UTC-4 |
Þjóðarlén | .vi |
Landsnúmer | +1-340 |
Bandarísku Jómfrúaeyjar eru eyjaklasi austan við Púertó Ríkó sem tilheyrir Bandaríkjunum. Þær eru hluti Hléborðseyja, sem eru nyrðri hluti Litlu-Antillaeyja. Fjórar eyjanna eru stærstar: St. Thomas, St. John, St. Croix og Water Island. Auk þeirra eru margar smærri eyjar.
Danska Vestur-Indíafélagið settist að á St. Thomas árið 1672, á St. John árið 1694 og keypti svo St. Croix af Frökkum 1733. Árið 1754 urðu Dönsku Vestur-Indíur dönsk krúnunýlenda. Höfuðborgin Charlotte Amalie á St. Thomas var nefnd árið 1692 eftir Charlotte Amalie af Hessen-Kassel drottningu Danmerkur, eiginkonu Kristjáns 5. Danakonungs frá 1670 til 1699.
Í nýlendunni var einkum ræktaður sykurreyr. Framleiðslan byggðist á vinnuafli afrískra þræla. Dönsk stjórnvöld og fyrirtæki undir þeirra verndarvæng eru talin hafa flutt yfir 100.000 manns frá Afríku í þrældóm í Vesturálfu, þar af um 80.000 til þessara nýlenda Dana sjálfra.[1] Skömmu eftir afnám þrælahalds 1848 fór efnahagurinn mjög niður á við. Eyjarnar voru nú böggull fremur en bjargræði og á síðari helmingi 19. aldar og í byrjun þeirrar 20. gerðu Danir tilraunir til að selja eyjarnar, einkum til Þýskalands og Bandaríkjanna. Tilraunir til að selja þær Bandaríkjunum runnu út í sandinn 1867 og aftur 1902. Í fyrri heimsstyrjöldinni urðu Bandaríkjamenn og Danir hins vegar sammála um að gera eignaskipti á eyjunum. Danir tóku kauptilboði Bandaríkjanna og seldu eyjarnar fyrir 25 milljónir Bandaríkjadala. Dönsk stjórnvöld óttuðust að Bandaríkin tækju eyjarnar með valdi ef svo færi að Þjóðverjar hernæmu Danmörku í stríðinu. Bandaríkjamenn óttuðust að ef Þjóðverjar eignuðust eyjarnar gætu þeir notað þær í hernaði gegn Bandaríkjunum.
Bandarísku Jómfrúaeyjar kjósa einn þingmann í fulltrúadeild bandaríska þingsins en sá hefur ekki atkvæðisrétt á þinginu. Íbúar eyjanna hafa heldur ekki rétt til að kjósa í bandarísku forsetakosningunum.
Heiti
[breyta | breyta frumkóða]Kristófer Kólumbus kom til eyjanna í annarri ferð sinni til Nýja heimsins árið 1493. Hann nefndi þær Santa Úrsula y las once mil vírgenes („heilög Úrsúla og ellefu þúsund meyjar“) til heiðurs dýrlingnum, að sögn vegna þess að hann heillaðist af fegurð eyjanna. Hann var þar á ferð nokkru eftir messudag heilagrar Úrsúlu sem er í október. Þetta nafn var fljótlega stytt í Las Vírgenes eða Jómfrúaeyjar (sem hefur líka verið þýtt sem „Jómfrúreyjar“ og „Meyjaeyjar“ á íslensku).
Yfirráð yfir eyjunum breyttust oft næstu aldirnar, en um miðja 17. öld skiptust þær milli Dönsku Vestur-Indía, Bresku Hléborðseyja og Spænsku Jómfrúaeyja. Dönsku Vestur-Indíur urðu svo Bandarísku Jómfrúaeyjar árið 1917. Nokkrum árum áður höfðu Spænsku Jómfrúaeyjar gengið til Bandaríkjanna sem hluti af Púertó Ríkó.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Sjá t.d. Svend Erik Green-Pedersen (1975). „The History of The Danish Negro Slave Trade, 1733–1807“. Revue française d'histoire d'outre'mer: 196–220.