Sumarólympíuleikarnir 1972
20. sumarólympíuleikarnir | |
Bær: | München, Vestur-Þýskalandi |
Þátttökulönd: | 121 |
Þátttakendur: | 7.134 (6.075 karlar, 1.059 konur) |
Keppnir: | 195 í 21 greinum |
Hófust: | 26. ágúst 1972 |
Lauk: | 11. september 1972 |
Settir af: | Gustav Heinemann forseta |
Íslenskur fánaberi: | Geir Hallsteinsson |
Sumarólympíuleikarnir 1972 voru haldnir í München í Vestur-Þýskalandi frá 26. ágúst til 10. september.
Ólympíuleikanna 1972 er einkum minnst fyrir blóðbaðið í München, þar sem átta meðlimir palestínsku skæruliðasamtakanna Svarta september tóku 11 ísraelska íþróttamenn í gíslingu. Árásin leiddi til dauða allra gíslanna og eins þýsks lögreglumanns.
Aðdragandi og skipulagning
[breyta | breyta frumkóða]Ákvörðunin um keppnisstað var tekin vorið 1966 á fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar. Fjórar borgir sóttust eftir gestgjafahlutverkinu. Auk München voru það Madrid, Montréal og Detroit. München fékk langflest atkvæði í fyrstu umferð valsins en þó ekki tilskilinn meirihluta. Norðu-Amerísku borgirnar tvær fengu fæst atkvæði í þeirri umferð, sex talsins og féll Detroit þá úr leik. Í næstu umferð fékk München 31 atkvæði á móti 16 atkvæðum Madrid og 13 atkvæðum Montréal.
Keppnisgreinar
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var í 195 greinum. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.
|
|
|
Handknattleikskeppni ÓL 1972
[breyta | breyta frumkóða]Innanhússhandknattleikur var í fyrsta sinn á dagskrá Ólympíuleikanna árið 1972. Íslenska landsliðið tryggði sér keppnisrétt með góðum árangri í forkeppni á Spáni í marsmánuði.
Sextán lið tóku þátt og var Ísland í B-riðli ásamt Austur-Þýskalandi, Tékkóslóvakíu og Túnis. Íslendingar töpuðu fyrir Austur-Þjóðverjum í fyrstu viðureign og misstu unninn leik gegn Tékkóslóvakíu niður í jafntefli. Íslenska liðið hefði þurft að vinna 22 marka sigur á Túnis í lokaleik til að komast áfram úr riðlinum, en það tókst ekki. Eftir töp gegn Pólverjum og Japönum hafnaði íslenska liðið loks í tólfta sæti.
Lið Júgóslava hlaut gullverðlaunin eftir sigur á Tékkum í úrslitaleik og bronsverðlaunin komu í hlut Rúmena.
Þáttakendur
[breyta | breyta frumkóða]Þátttaka Íslendinga á leikunum
[breyta | breyta frumkóða]Auk handknattleikslandsliðsins, sendu Íslendingar fjóra sundmenn, fjóra frjálsíþróttamenn og tvo lyftingamenn á leikana þá Óskar Sigurpálsson og Guðmund Sigurðsson.
Í Ólympískum Lyftingum varð Óskar Sigurpálsson í 19 sæti í -110 kg. flokki og Guðmundur Sigurðsson í 13. sæti í - 90 kg. flokki.
Guðjón Guðmundsson náði bestum árangri sundmanna. Hann varð 36. í 100 metra bringusundi á nýju Norðurlandameti. Var hann valinn Íþróttamaður ársins 1972 fyrir afrek sitt. Sundkappinn Guðmundur Gíslason keppti á sínum fjórðu Ólympíuleikum.
Í frjálsíþróttakeppninni varð Bjarni Stefánsson 30. í milliriðli í 400 metra hlaupi, en hafði áður sett nýtt Íslandsmet í forriðli. Lára Sveinsdóttir keppti í hástökki og varð þar með fyrst íslenskra kvenna til að keppa í frjálsum íþróttum á leikunum.
Verðlaunaskipting eftir löndum
[breyta | breyta frumkóða]Nr. | Land | Gull | Silfur | Brons | Samtals |
---|---|---|---|---|---|
1 | Sovétríkin | 50 | 27 | 22 | 99 |
2 | Bandaríkin | 33 | 31 | 30 | 94 |
3 | Austur-Þýskaland | 20 | 23 | 23 | 66 |
4 | Vestur-Þýskaland | 13 | 11 | 16 | 40 |
5 | Japan | 13 | 8 | 8 | 29 |
6 | Ástralía | 8 | 7 | 2 | 17 |
7 | Pólland | 7 | 5 | 9 | 21 |
8 | Ungverjaland | 6 | 13 | 16 | 35 |
9 | Búlgaría | 6 | 10 | 5 | 21 |
10 | Ítalía | 5 | 3 | 10 | 18 |
11 | Svíþjóð | 4 | 6 | 6 | 16 |
12 | Bretland | 4 | 5 | 9 | 18 |
13 | Rúmenía | 3 | 6 | 7 | 16 |
14 | Kúba | 3 | 1 | 4 | 8 |
Finnland | 3 | 1 | 4 | 8 | |
16 | Holland | 3 | 1 | 1 | 5 |
17 | Frakkland | 2 | 4 | 7 | 13 |
18 | Tékkóslóvakía | 2 | 4 | 2 | 8 |
19 | Kenýa | 2 | 3 | 4 | 9 |
20 | Júgóslavía | 2 | 1 | 2 | 5 |
21 | Noregur | 2 | 1 | 1 | 4 |
22 | Norður-Kórea | 1 | 1 | 3 | 5 |
23 | Nýja Sjáland | 1 | 1 | 1 | 3 |
24 | Úganda | 1 | 1 | 0 | 2 |
25 | Danmörk | 1 | 0 | 0 | 1 |
26 | Sviss | 0 | 3 | 0 | 3 |
27 | Kanada | 0 | 2 | 3 | 5 |
28 | Íran | 0 | 2 | 1 | 3 |
29 | Belgía | 0 | 2 | 0 | 2 |
Grikkland | 0 | 2 | 0 | 2 | |
31 | Austurríki | 0 | 1 | 2 | 3 |
Kólumbía | 0 | 1 | 2 | 3 | |
33 | Argentína | 0 | 1 | 0 | 1 |
Suður-Kórea | 0 | 1 | 0 | 1 | |
Líbanon | 0 | 1 | 0 | 1 | |
Mexíkó | 0 | 1 | 0 | 1 | |
Mongólía | 0 | 1 | 0 | 1 | |
Pakistan | 0 | 1 | 0 | 1 | |
Túnis | 0 | 1 | 0 | 1 | |
Tyrkland | 0 | 1 | 0 | 1 | |
41 | Brasilía | 0 | 0 | 2 | 2 |
41 | Eþíópía | 0 | 0 | 2 | 2 |
43 | Ghana | 0 | 0 | 1 | 1 |
Indland | 0 | 0 | 1 | 1 | |
Jamæka | 0 | 0 | 1 | 1 | |
Níger | 0 | 0 | 1 | 1 | |
Nígería | 0 | 0 | 1 | 1 | |
Spánn | 0 | 0 | 1 | 1 | |
Alls | 195 | 195 | 210 | 600 |