Fara í innihald

Willum Þór Þórsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Willum þór þórsson)
Willum Þór Þórsson (WÞÞ)
Heilbrigðisráðherra Íslands
Núverandi
Tók við embætti
28. nóvember 2021
ForsætisráðherraKatrín Jakobsdóttir
Bjarni Benediktsson
ForveriSvandís Svavarsdóttir
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
2013 2016  Suðvestur  Framsóknarfl.
2017    Suðvestur  Framsóknarfl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur17. mars 1963 (1963-03-17) (61 árs)
Reykjavík
StjórnmálaflokkurFramsóknarflokkurinn
MakiÁsa Brynjólfsdóttir
Börn5
Æviágrip á vef Alþingis

Willum Þór Þórsson (fæddur 17. mars 1963) er alþingismaður Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi og heilbrigðisráðherra. Hann er fyrrum knattspyrnumaður og -þjálfari.

Ævi og störf

[breyta | breyta frumkóða]

Willum er fæddur í Reykjavík og foreldrar hans eru Þór Guðmundsson (f. 1940) sjómaður og Ágústa Þyri Andersen (1941-2006) ritari. Kona Willums er Ása Brynjólfsdóttir lyfjafræðingur og eiga þau fimm börn. Meðal þeirra eru Willum Þór Willumsson og Brynjólfur Andersen Willumsson, knattspyrnumenn.

Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1983, cand. oecon. prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1987, cand. merc. prófi í rekstrarhagfræði frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1996, B.Ed. kennaraprófi frá Háskóla Íslands árið 2003 og atvinnuþjálfararéttindum, UEFA Prolicence, frá enska knattspyrnusambandinu árið 2010.

Willum starfaði sem kennari í hagfræði við Menntaskólann í Kópavogi frá 1986-2013 samhliða störfum sem knattspyrnuþjálfari.

Hann var fyrst kjörinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn í Suðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum 2013 og tók við embætti heilbrigðisráðherra í nóvember árið 2021.[1]

Knattspyrnuferillinn

[breyta | breyta frumkóða]

Willum var í ungmennalandsliðunum í körfubolta og knattspyrnu en valdi knattspyrnuna fram yfir körfuboltann. Willum hóf feril sinn sem leikmaður hjá KR, fór þaðan til Breiðabliks og síðar til Þróttar þar sem hann hóf feril sinn sem þjálfari.

1997 kom hann Þrótti í Úrvalsdeildina, liðið féll svo úr deildinni 1998 á markatölu. Árið 2000 tók hann við Haukum.

2002 var hann ráðinn þjálfari KR og leiddi þá til sigurs í úrvalsdeildinni 2002 og 2003. 2004 varð KR um miðja deild og samningur Willums var ekki endurnýjaður.

Hann tók þá við Val sem voru að snúa aftur í Úrvalsdeildina og leiddi þá til annars sætis í deildinni 2005 ásamt því að vinna VISA-bikar karla. 2006 endaði Valur í þriðja sæti deildarinnar. Valur varð svo Íslandsmeistari 2007. Willum hætti að þjálfa Val 1. júlí 2009.

Hann var ráðinn þjálfari Keflavíkur 29. september 2009, eftir að tímabilinu lauk.[2]

Willum var ráðinn fyrsti landsliðsþjálfari Íslands í futsal í nóvember 2010[3].

Hann tók síðar við KR á ný á miðju tímabili 2016.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  • „Yfirlýsing frá Knattspyrnufélaginu Val og Willum Þór Þórssyni“.
  1. Alþingi, Æviágrip - Willum Þór Þórsson. Sótt 8. júlí 2022.
  2. RÚV.is - Willum tekur við Keflavík
  3. „Willum ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í Futsal“. Afrit af upprunalegu geymt þann 26. desember 2010. Sótt 8. nóvember 2010.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Íslandsmeistari árið 2003

 Kristján Finnbogason |  Sigursteinn Gíslason |  Gunnar Einarsson |  Kristján Örn Sigurðsson |  Kristinn Hafliðason |  Bjarki Gunnlaugsson |  Sigurvin Ólafsson |  Einar Þór Daníelsson |  Veigar Páll Gunnarsson |  Arnar Gunnlaugsson |  Sigurður Ragnar Eyjólfsson |  Sigþór Júlíusson |  Jón Skaftason |  Þórhallur Hinriksson |  Valþór Halldórsson |  Garðar Jóhannsson |  Sölvi Davíðsson |  Jökull Elísabetarson | Stjóri: Willum