Steinunn Þóra Árnadóttir
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Alþingismaður | |||||||
| |||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||
Fædd | 18. september 1977 Neskaupstaður | ||||||
Stjórnmálaflokkur | Vinstrihreyfingin – grænt framboð | ||||||
Maki | Stefán Pálsson | ||||||
Börn | 2 | ||||||
Menntun | Mannfræði og fötlunarfræði | ||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Steinunn Þóra Árnadóttir (f. 18. september 1977) er íslenskur stjórnmálamaður, mannfræðingur og öryrki. Hún hefur átt sæti á þingi fyrir Vinstri græn frá árinu 2014.
Menntun og einkahagir
[breyta | breyta frumkóða]Steinunn Þóra fæddist í Neskaupstað árið 1977. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1996, BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og MA-gráðu í fötlunarfræði árið 2013 frá sama skóla. Hún er gift Stefáni Pálssyni sagnfræðingi og eiga þau tvo syni.
Félagsstörf og stjórnmál
[breyta | breyta frumkóða]Hún hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir MS-félag Íslands og Öryrkjabandalagið, þar á meðal setið í framkvæmdastjórn bandalagsins sem gjaldkeri 2005-06. Fulltrúi í stjórn Brynju, hússjóðs ÖBÍ frá 2008.
Steinunn Þóra átti sæti á framboðslistum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs við Alþingiskosningarnar 2007 og 2009 og tók sæti á þingi sem varaþingmaður frá janúar til mars 2008. Hún tók þátt í forvali Vinstri grænna fyrir Alþingiskosningarnar 2013 og hafnaði í þriðja sæti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, þar sem flokkurinn náði tveimur mönnum í kosningunum. Sumarið 2014 sagði Árni Þór Sigurðsson af sér þingmennsku til að verða sendiherra og tók Steinunn Þóra þá sæti á þingi. Hún var endurkjörin í Alþingiskosningunum 2016, 2017 og 2021.