Akranes
Akraneskaupstaður | |
---|---|
Hnit: 64°19′01″N 22°05′00″V / 64.3170°N 22.0833°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Akranes |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Sævar Freyr Þráinsson |
Flatarmál | |
• Samtals | 9 km2 |
• Sæti | 60. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 8.071 |
• Sæti | 9. sæti |
• Þéttleiki | 896,78/km2 |
Póstnúmer | 300 |
Sveitarfélagsnúmer | 3000 |
Vefsíða | akranes |
Akraneskaupstaður er kaupstaður á Skipaskaga á Vesturlandi og var áður kallaður Skipaskagi, enn í daglegu tali Skaginn. Þar bjuggu 7.948 í nóvember 2022.
Akranes heitir í raun allt nesið milli Hvalfjarðar og Leirárvoga og trónir Akrafjall á því miðju. Nesið skiptist frá fornu fari milli tveggja hreppa: Akraneshrepps að sunnan og vestan og Skilmannahrepps norðan og austan. Á 19. öld fór að myndast þéttbýli í kringum sjósókn og verslun á Skipaskaga yst á nesinu. Árið 1885 var ákveðið að skipta Akraneshreppi í tvennt vegna hinna ólíku hagsmuna þéttbýlisins og sveitarinnar. Varð kauptúnið og næsta nágrenni þess að Ytri-Akraneshreppi en sveitin inn með Akrafjalli að Innri-Akraneshreppi. Ytri-Akraneshreppur hlaut kaupstaðarréttindi árið 1942 og hét eftir það Akraneskaupstaður.
Enn í dag er sjávarútvegur mikilvægasti atvinnuvegur bæjarins en verslun er einnig mikilvæg svo og iðnaður. Í bænum er sementsverksmiðja sem starfrækt hefur verið síðan á 6. áratug 20. aldar og á Grundartanga skammt frá bænum er álver sem starfað hefur síðan 1998.
Knattspyrna hefur lengi verið í hávegum höfð á Akranesi og lið bæjarins, ÍA, hefur löngum verið í fremstu röð á Íslandi.
Hvalfjarðargöngin sem vígð voru 1998 voru mikil samgöngubót fyrir Akranes og styttu verulega akstursleiðina til Reykjavíkur. Með tilkomu þeirra hætti Akraborgin siglingum sínum milli Reykjavíkur og Akraness.
Skólar
[breyta | breyta frumkóða]Á Akranesi eru leikskólar, grunnskólar og framhaldsskóli.
- Leikskólar: Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel
- Grunnskólar: Brekkubæjarskóli, Grundaskóli
- Framhaldsskóli: Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]-
Langisandur og Akrafjallið í bakgrunn
-
Akranes um 1900.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Frjálst kort af Akranesi búið til af OpenStreetMap verkefninu
- Loftmynd á Google Maps
- Heimasíða Akraneskaupstaðar
- Safnasvæðið á Akranesi
- Akranes = Skipasagi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1927
- Örnefni á Akranesi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1942
- Um örnefni á Akranesi (svargrein); grein í Lesbók Morgunblaðsins 1942