Grindavík
Grindavíkurbær | |
---|---|
Hnit: 63°50′N 22°26′V / 63.833°N 22.433°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Suðurkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Grindavík |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Fannar Jónsson |
Flatarmál | |
• Samtals | 423 km2 |
• Sæti | 37. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 3.579 |
• Sæti | 18. sæti |
• Þéttleiki | 8,46/km2 |
Póstnúmer | 240 |
Sveitarfélagsnúmer | 2300 |
Vefsíða | http://www.grindavik.is |
Grindavík er bær og sveitarfélag á sunnanverðum Reykjanesskaga. Sjávarútvegur er aðalatvinnugreinin og meðal stærstu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækin eru Þorbjörn, Vísir og Stakkavík.
Land Grindavíkur nær frá Reykjanestá og austur að sýslumörkum Árnessýslu. Krýsuvík, sem er innan marka sveitarfélagsins, tilheyrir Hafnarfirði. Þann 20. febrúar 1941 seldi ríkissjóður Hafnarfjarðarkaupstað hluta af landi jarðarinnar Krýsuvíkur og Stóra-Nýjabæjar (Krísuvíkurtorfunni).
Saga
Samfelld byggð hefur verið í Grindavík frá landnámi. Samkvæmt Landnámu var Grindavík numin af þeim Molda-Gnúpi Hrólfssyni sem settist að í Grindavík og Þóri haustmyrkri Vígbjóðssyni sem nam Selvog og Krýsuvík, stuttu fyrir árið 934.[1]
Í Grindavík hefur verið sjálfvirk veðurathugunarstöð Siglingastofnunar Íslands síðan 1995 en árið 2008 setti Veðurstofan einnig upp sjálfvirka stöð.
Í Grindavík hefur lengi verið starfrækt öflugt björgunar- og slysavarnastarf en þar er Björgunarsveitin Þorbjörn. Frumkvöðull slysavarna á Íslandi, síra Oddur V. Gíslason, var prestur á Stað í Grindavík á árunum 1878-1894, en samhliða preststörfum í Grindavík reri hann til fiskjar og hóf þá mikla baráttu fyrir öryggismálum sjómanna. Björgunarskip Grindvíkinga er nefnt eftir Oddi V. Gíslasyni. Björgunarsveitin Þorbjörn var fyrst björgunarsveita á Íslandi til að nota svokölluð fluglínutæki til björgunar en það var þegar franski togarinn Cap Fagnet strandaði hinn 24. mars 1931.
Menning
Í auðlinda- og menningarhúsinu Kvikunni eru sýningarnar Saltfisksetur, saga saltfiskvinnslu á Íslandi, og Jarðorka, sýning um jarðhita, eldvirkni og jarðskjálfta.
Íþróttir
Í Grindavík er Ungmennafélag Grindavíkur og á UMFG lið í efstu deildum bæði í körfuknattleik og fótbolta.
Þekktir íbúar
- Bjarni Sæmundsson Náttúrufræðingur fæddist og ólst upp í Grindavík.
- Guðbergur Bergsson rithöfundur fæddist þar.
- Sigvaldi Kaldalóns héraðslæknirinn og tónskáldið bjó í Grindavík.
Svipmyndir
Tilvísanir
- ↑ Aðalskipulag Grindavíkur 2010-2030, bls 16