Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Önnur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum 28. nóvember 2021 og skipaði hún, eins og í fyrri ríkisstjórn Katrínar sem starfaði frá 2017-2021, Vinstri græna, Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn. Ríkisstjórnarmyndun og kynning stjórnarsáttmála drógst á langinn vegna rannsóknar undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa á brotum kosningalaga við talningu í Norðvesturkjördæmi en það var loks afgreitt á Alþingi 25. nóvember 2021. Flokkarnir héldu þingmeirihluta sínum í Alþingiskosningunum 2021, fengu 37 þingmenn kjörna, eitt þingsæti bættist síðar við tveimur vikum eftir kosningar er Birgir Þórarinsson gekk úr Miðflokknum og yfir í Sjálfstæðisflokkinn og þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar því 38 þingmenn.[1] Ríkisstjórnin var kynnt á Kjarvalsstöðum og í henni sitja 12 ráðherrar sem skiptist þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fimm ráðuneyti auk embættis Forseta Alþingis, Framsóknarflokkurinn hefur fjögur og Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur þrjú. Ráðherrum var fjölgað úr 11 í 12 og ráðuneytum úr 10 í 12 frá fyrri ríkisstjórn og verkefni færð til á milli ráðuneyta.[2]

Nafn Embætti Flokkur
Katrín Jakobsdóttir Forsætisráðherra Vinstri grænir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson Félags og vinnumarkaðsráðherra Vinstri grænir
Svandís Svavarsdóttir Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Vinstri grænir
Bjarni Benediktsson Fjármála- og efnahagsráðherra Sjálfstæðisflokkurinn
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra Sjálfstæðisflokkurinn
Guðlaugur Þór Þórðarson Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Sjálfstæðisflokkurinn
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Sjálfstæðisflokkurinn
Jón Gunnarsson (frá 28. nóvember

2021 til 2023)

Innanríkisráðherra Sjálfstæðisflokkurinn
Guðrún Hafsteinsdóttir (frá 2023 til

2025)

Sjálfstæðisflokkurinn
Willum Þór Þórsson Heilbrigðisráðherra Framsóknarflokkurinn
Sigurður Ingi Jóhannsson Innviðaráðherra Framsóknarflokkurinn
Lilja Alfreðdóttir Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra Framsóknarflokkurinn
Ásmundur Einar Daðason Mennta- og barnamálaráðherra Framsóknarflokkurinn
Birgir Ármannsson Forseti Alþingis Sjálfstæðisflokkurinn
  1. Jónsdóttir, Hallgerður Kolbrún E. „Birgir Þórarins­son gengur til liðs við Sjálf­stæðis­flokkinn vegna Klausturs­málsins - Vísir“. visir.is . Sótt 29. nóvember 2021.
  2. „Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur skipað“. www.stjornarradid.is . Sótt 29. nóvember 2021.