Jövuhaf
Útlit
Jövuhaf er stórt grunnt hafsvæði milli eyjanna Jövu, Borneó, Súmötru og Súlavesí. Í norðvestri tengist það Suður-Kínahafi um Karimatasund. Hafið er yfir Sundagrunni og myndaðist þegar sjávarborð hækkaði við lok síðustu ísaldar.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Jövuhafi.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Jövuhaf.