Papúa Nýja-Gínea
Sjálfstæða ríkið Papúa Nýja-Gínea | |
Independent State of Papua New Guinea Independen Stet bilong Papua Niugini | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unity in diversity (enska) Eining í fjölbreytni | |
Þjóðsöngur: O Arise, All You Sons/God Save the King | |
Höfuðborg | Port Moresby |
Opinbert tungumál | enska, tok pisin, hiri motu |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn
|
Konungur | Karl 3. |
Landstjóri | Bob Dadae |
Forsætisráðherra | James Marape |
Sjálfstæði | |
• frá Ástralíu | 16. september 1975 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
56. sæti 462.840 km² 2 |
Mannfjöldi • Samtals (2011) • Þéttleiki byggðar |
102. sæti 7.059.653 15/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2013 |
• Samtals | 17,430 millj. dala (128. sæti) |
• Á mann | 2.491 dalir (142. sæti) |
Gjaldmiðill | Kina (PGK) |
Tímabelti | UTC +10 |
Þjóðarlén | .pg |
Landsnúmer | ++675 |
Papúa Nýja-Gínea er eyríki í Eyjaálfu í Suðvestur-Kyrrahafi fyrir norðan Ástralíu sem tekur yfir eystri helming eyjunnar Nýju-Gíneu. Indónesía ræður yfir vestari helmingnum. Norðan við Papúu eru svo fjölmargar eldfjallaeyjar sem eru kallaðar Nýja-Gínea. Landið varð til við sameiningu nokkurra svæða undir tímabundna stjórn Ástralíu en það hlaut síðan sjálfstæði árið 1975. Þar búa um 7 milljónir manna af mörgum ættbálkum. Víða á hálendinu búa afar frumstæðir ættbálkar sem enn lifa á steinaldarstigi.
Landlýsing
[breyta | breyta frumkóða]Landið, sem er að heildarflatarmáli 462.840 km², nær yfir mörg hundruð eyjar með mjög fjölbreyttu landslagi, veðurfari og loftslagi. Hitabeltisloftslag er í landinu með jöfnum og háum hita allt árið og mikilli úrkomu í regnskóginum, en í fjöllunum sem rísa allt að 4000 metra yfir sjávarmál eru hitastigsbreytingarnar meiri og þar snjóar með reglulegu millibili. Í landinu er dýralífið með því fjölbreyttasta sem fyrirfinnst í heiminum.
Landið nær yfir austurhluta eyjarinnar Nýju-Gíneu, Bismarck-eyjar (Nýja-Bretland, Nýja-Írland, Nýja-Hannover), Aðmírálseyjar, D'Entrecasteaux-eyjar, Louisiade-eyjar, St. Matthiaseyjar, Woodlark-eyjar og Tróbríandeyjar, ásamt norðurhluta Salómonseyja, Bougainville og Buka. Að auki eru ótal smáeyjar, kóralrif og sker.
Loftslag
[breyta | breyta frumkóða]Veðurfar Papúa Nýju-Gíneu telst vera hitabeltisloftslag með jöfnum og háum hita allt árið og mikilli úrkomu í þéttum regnskóginum. En veðurfar landsins er fjölbreytt. Í fjöllunum sem rísa allt að 4000 metra yfir sjávarmál eru hitastigsbreytingar meiri og þar snjóar með reglulegu millibili.
Á láglendi er meðalhámarkshiti á bilinu frá 30 til 32°C, og að lágmarki á milli 23 til 24°C. Árstíðasveifla í hitastigi er smávægileg. Kaldara loftslag er á hálendinu en þar er næturfrost algengt yfir 2100 metrum. Hitastig er þar almennt yfir 22°C á daginn óháð árstíð. Eftir því sem hæð yfir sjó breytist breytist plöntu- og dýralífið.
Úrkoma, fremur en hitastig, greinir sundur árstíðirnar í landinu. Úrkoma er einkum háð tveimur vindakerfum, þ.e. suðaustanáttum annars vegar og hins vegar norðvestanáttum sem valda ókyrrð með monsúnvindum. Einnig fer úrkoman eftir breiddargráðum og hæð yfir sjávarmáli. Suðaustanvindar vara í sjö mánuði (frá maí til nóvember) í suðaustasta hluta landsins (Milne-flóa), en styttri tíma í norðurhluta landsins, eða í aðeins þrjá mánuði á Aðmírálseyjum. Norðvestanátt er algengari í norðvesturhluta landsins og í Bismarck-eyjaklasanum. Þeirra vinda gætir aðeins 3-4 mánuði ársins í höfuðborginni Port Moresby, á regntímanum frá desember til mars. Úrkoma í höfuðborginni er minni en 1300 mm á ári, sem hefur áhrif á vatnsveitu höfuðborgarinnar. Hálendið virðist hafa eigið vindakerfi, með rigningu allt árið (2500-4000 mm) ef frá er talinn þurrkatími um mitt árið.
Íbúar
[breyta | breyta frumkóða]Landið telst til þróunarlanda en er á hraðri leið til nýrra lífshátta. Atvinnuleysi er nokkuð og glæpatíðni fremur há. Stór hluti íbúa býr í dreifbýli með lítinn aðgang að nútímatækni. Íbúafjöldi er áætlaður sjö milljónir. Langflestir þeirra eru Papúar, Malajar, Melanesar og Pólýnesar. Að auki búa í landinu litlir hópar Evrópumanna og Kínverja. Hluti fólks lifir líkt og forfeður þeirra gerðu fyrir mörg þúsund árum; í ættbálkasamfélögum sem eru algjörlega einangruð frá umheiminum.
Landið er þekkt fyrir hina gífurlegu mannfræðilegu fjölbreytni sína. Hvergi í heiminum eru töluð fleiri tungumál. Opinberu tungumálin eru þó aðeins þrjú, tok pisin, enska og hiri motu. Að auki eru þar töluð 841 tungumál (sem er um 12% af tungumálum heims). Ríkið hefur 19 stjórnsýsluhéröð, og þingbundna konungsstjórn með Bretadrottningu sem þjóðhöfðingja, enda er landið í samveldinu. Höfuðborgin heitir Port Moresby með ríflega 300 þúsund íbúa.
Trúarbrögð
[breyta | breyta frumkóða]Stærstur hluti íbúa Papúu Nýju-Gíneu (96%) eru kristnir en andatrú og fjölgyðistrú forfeðranna finnst á nokkrum stöðum. Dómstólar og stjórnvöld landsins styðja við stjórnarskrárbundinn rétt til tjáningar- og trúfrelsis, bæði í orði og í framkvæmd. Þrátt fyrir ríkjandi áhrif innfluttra trúarbragða blanda margir kristinni trú við hefðbundna anda- og fjölgyðistrú forfeðranna með helgiathöfnum, galdri og fjölkyngi.
Tveir fimmtu hlutar íbúanna eru mótmælendatrúar, flestir lúterstrúar. Tæpur þriðjungur eru rómversk-kaþólskir. Sjöunda dags aðventistar eru 10%. Að auki er lítill fjöldi baháia og múslima.
Efnahagur
[breyta | breyta frumkóða]Papúa Nýja-Gínea er mjög auðug af náttúruauðlindum, málmum og orkulindum á borð við jarðgas, en þéttur regnskógur og brattar fjallshlíðar gera það að verkum að erfitt er að vinna úr þessum auðlindum.
Papúa Nýja-Gínea liggur ofan á Kyrrahafseldhringnum svokallaða, en það er keðja virkra eldstöðva sem liggja í þessum hluta Kyrrahafsins. Vegna þessarar legu landsins, á svokölluðum flekaskilum, er talið að finna megi öflug jarðhitakerfi víða á eyjunum. Einungis eitt jarðvarmaorkuver er í landinu og enn eru ríflega 60% raforku framleidd með jarðefnaeldsneyti.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Papua New Guinea“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 24. október 2013.
- Upplýsingar um landið á vefsíðu Breska ríkisútvarpsins (BBC)
- Upplýsingar um landið á vefsíðu Bandarísku leyniþjónustunnar (CIA World Factbook) Geymt 16 maí 2016 í Wayback Machine