Karl Gauti Hjaltason
Karl Gauti Hjaltason | |||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Alþingismaður | |||||||||||||||||
| |||||||||||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||||||||||
Fæddur | 31. maí 1959 Reykjavík | ||||||||||||||||
Stjórnmálaflokkur | Miðflokkurinn | ||||||||||||||||
Menntun | Lögfræði | ||||||||||||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||||||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Karl Gauti Hjaltason (fæddur í Reykjavík 31. maí 1959) er íslenskur lögreglustjóri og fyrrverandi þingmaður fyrir Miðflokkinn.
Karl er lögfræðingur að mennt. Hann hefur gegnt ýmsum störfum, verið sýslumaður í Vestmannaeyjum, Árnessýslu, Hólmavík og skólastjóri Lögregluskóla ríkisins. Hann hefur komið að ýmsu íþrótta- og félagsstarfi: Stofnaði karatefélagið Þórshamar árið 1979 og var fyrsti formaður þess, formaður Taflfélags Vestmannaeyja og fyrsti formaður Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja og hvatamaður að stofnun þess. Hann er með svarta beltið í karate. [1] Karl var kjörinn á Alþingi fyrir Flokk fólksins í Alþingiskosningum árið 2017. Hann var einn þeirra þingmanna sem náðist upptaka af á Klausturbarnum þann 20. nóvember 2018. Í kjölfarið á Klaustursmálinu var honum vikið úr Flokki fólksins ásamt Ólafi Ísleifssyni[2] Þeir Karl og Ólafur gengu síðar til liðs við Miðflokkinn.[3] Karl Gauti leiðir lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Karl Gauti HjaltasonHeimaslóð, skoðað 5. ágúst, 2019.
- ↑ „Karl og Ólafur reknir úr flokknum“. mbl.is. 30. nóvember 2018. Sótt 5. ágúst 2019.
- ↑ „Karl Gauti og Ólafur ganga í Miðflokkinn - nú stærstur í stjórnarandstöðu“. Stundin. 22. febrúar 2019. Sótt 5. ágúst 2019.