Jón Baldvin Hannibalsson
Jón Baldvin Hannibalsson | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Utanríkisráðherra | |||||||||
Í embætti 28. september 1988 – 30. apríl 1995 | |||||||||
Forsætisráðherra | Steingrímur Hermannsson Davíð Oddsson | ||||||||
Forveri | Steingrímur Hermannsson | ||||||||
Eftirmaður | Halldór Ásgrímsson | ||||||||
Fjármálaráðherra | |||||||||
Í embætti 8. júlí 1987 – 28. september 1988 | |||||||||
Forsætisráðherra | Þorsteinn Pálsson | ||||||||
Forveri | Þorsteinn Pálsson | ||||||||
Eftirmaður | Ólafur Ragnar Grímsson | ||||||||
Formaður Alþýðuflokksins | |||||||||
Í embætti 1984–1996 | |||||||||
Forveri | Kjartan Jóhannsson | ||||||||
Eftirmaður | Sighvatur Björgvinsson | ||||||||
Alþingismaður | |||||||||
| |||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||
Fæddur | 21. febrúar 1939 Ísafirði, Íslandi | ||||||||
Stjórnmálaflokkur | Alþýðuflokkurinn | ||||||||
Maki | Bryndís Schram (g. 1959) | ||||||||
Börn | 4 | ||||||||
Foreldrar | Hannibal Valdimarsson og Sólveig Ólafsdóttir | ||||||||
Háskóli | Edinborgarháskóli Stokkhólmsháskóli Háskóli Íslands Harvard-háskóli | ||||||||
Starf | Stjórnmálamaður | ||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Jón Baldvin Hannibalsson (fæddur 21. febrúar 1939) er íslenskur stjórnmálamaður. Hann var þingmaður Reykjavíkur 1982–1998, formaður Alþýðuflokksins 1984–1996, fjármálaráðherra Íslands frá 1987–1988 og utanríkisráðherra Íslands 1988–1995. Sendiherra í Washington í Bandaríkjunum og síðar í Helsinki í Finnlandi.
Að frumkvæði Jóns varð Ísland fyrsta ríkið til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltslandanna árið 1991, og nýtur Jón því nokkurrar virðingar þar, sér í lagi í Litháen.[1][2][3]
Ævi
[breyta | breyta frumkóða]Foreldrar Jóns voru Hannibal Valdimarsson, ráðherra, og Sólveig Ólafsdóttir, húsmóðir. Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Jón er með MA-gráðu í hagfræði frá Edinborgarháskóla. Hann stundaði framhaldsnám við Stokkhólmsháskóla og Miðstöð Evrópufræða við Harvard-háskóla. Hann útskrifaðist einnig með próf í uppeldis- og kennslufræðum HÍ 1965.
Jón starfaði framan af við blaðamennsku og kennslu. Jón kenndi í Hagaskóla í Reykjavík 1964–1970 og var skólameistari Menntaskólans á Ísafirði 1970–1979. Hann vann sem blaðamaður við Frjálsa þjóð 1964–1967 og var ritstjóri Alþýðublaðsins 1979–1982.
Ásakanir um kynferðislega áreitni
[breyta | breyta frumkóða]Jón var kærður til lögreglu vegna meintrar kynferðislegrar áreitni, í formi einkabréfa, við unga frænku eiginkonu sinnar árið 2005 en kærunni var vísað frá. Kæran var tekin upp aftur við embætti saksóknara. Í það skiptið snerist hún um að Jón hefði „sært blygðunarkennd“ viðtakanda bréfsins. Þessu máli var líka vísað frá. Málið komst svo í kastljós fjölmiðla vorið 2012 þegar tímaritið Nýtt líf birti hluta bréfanna ásamt viðtali við stúlkuna sem hafði fengið bréfin send.[4] Ráðning Jóns sem gestafyrirlesara við Háskóla Íslands 2013 var afturkölluð þegar umræða um bréfamálið fór aftur af stað í bloggheimum.[5]. Í kjölfar Me too-hreyfingarinnar var Jón aftur ásakaður um kynferðislega áreitni í byrjun árs 2019. Stofnaður var facebook-hópur til að ræða brot hans og umfjallanir komu í fréttamiðlum um konur sem sögðust hafa sætt áreitni af hans hendi.[6]
Haustið 2022 birti Stundin frétt um kynferðisleg samskipti Jóns Baldvins við 15 ára stúlku sem var nemandi hans. [7]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Wright, Helen (17. júní 2016). „For David Against Goliath: Iceland's Support for Baltic Independence“. deepbaltic.com. Sótt 29. maí 2019.
- ↑ Ólason, Samúel Karl. „Jón Baldvin heiðraður á sjálfstæðisafmæli Litháen - Vísir“. visir.is. Sótt 27. febrúar 2021.
- ↑ „Jón Baldvin í Litháen: 20 ára sjálfstæðisafmæli - Vísir“. visir.is. Sótt 27. febrúar 2021.
- ↑ Meint kynferðisbrot Jóns Baldvins, grein í Nýju lífi
- ↑ Háskóli Íslands: Talibanar í fílabeinsturni?
- ↑ Verður að stöðva þessa perverta sem telja sig guðsgjöf til kvenna Vísir, skoðað 15. janúar 2019.
- ↑ [https://heimildin.is/grein/15886/ Jón Baldvin við nemanda: „Viltu hitta mig eftir næsta tíma“] Stundin/Heimildin, sótt 3/2 2023
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Æviágrip á heimasíðu Alþingis
- Viðtal við Jón Baldvin í tímaritinu Reykjavík Grapevine.
- Íslenska leiðin, grein eftir Jón í Fréttablaðinu 30. ágúst 2008
- Að gera hreint fyrir sínum dyrum Geymt 1 maí 2012 í Wayback Machine, grein eftir Jón á heimasíðu sinni 16.3.2012
- Af hverju allt þetta hatur Geymt 26 apríl 2016 í Wayback Machine, grein eftir Kolfinnu Baldvinsdóttur á heimasíðu Jóns 30.4.2012
Fyrirrennari: Þorsteinn Pálsson |
|
Eftirmaður: Ólafur Ragnar Grímsson | |||
Fyrirrennari: Steingrímur Hermannsson |
|
Eftirmaður: Halldór Ásgrímsson |
- Kjörnir Alþingismenn 1981-1990
- Kjörnir Alþingismenn 1991-2000
- Fjármálaráðherrar Íslands
- Formenn Alþýðuflokksins
- Íslenskir blaðamenn
- Íslenskir hagfræðingar
- Sendiherrar Íslands í Bandaríkjunum
- Sendiherrar Íslands í Finnlandi
- Stúdentar úr Menntaskólanum í Reykjavík
- Utanríkisráðherrar Íslands
- Þingmenn Alþýðuflokksins
- Fólk fætt árið 1939