Árni M. Mathiesen
Útlit
Árni M. Mathiesen (ÁMM) | |
| |
Fæðingardagur: | 2. október 1958 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Flokkur: | Sjálfstæðisflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
1991-2003 | í Reykjan. fyrir Sjálfst. ✽ |
2003-2007 | í Suðvestur fyrir Sjálfst. ✽ |
2007-2009 | í Suður fyrir Sjálfst. ✽ |
2009 | í Suður fyrir Sjálfst. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1991-1992 | Formaður samgöngunefndar |
1999-2005 | Sjávarútvegsráðherra |
2005-2009 | Fjármálaráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Árni M. Mathiesen (f. í Reykjavík 2. október 1958) er fyrrverandi fjármálaráðherra og var þingmaður Sjálfstæðisflokks á árunum 1991-2009. Árni er menntaður dýralæknir.
Foreldrar Árna eru Matthías Á. Mathiesen alþingismaður og ráðherra og Sigrún Þorgilsdóttir Mathiesen. Árni lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði árið 1978, embættisprófi í dýralækningum frá háskólanum í Edinborg 1983 og prófi í fisksjúkdómafræði frá Stirling-háskóla 1985.
Árni starfaði um skeið við dýralækningar víðsvegar á landinu en gerðist svo framkvæmdastjóri Faxalax hf. 1988-1989. Árni sat á Alþingi á árunum 1991-2009. Hann var skipaður sjávarútvegsráðherra 1999 og fjármálaráðherra í september 2005.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Æviágrip á heimasíðu Alþingis
- Árni og ríkið bótaskyld; grein af Mbl.is 23. apríl 2010
- Þurfa að greiða milljónir í miskabætur vegna skipun dómara; grein af Vísi.is 23. apríl 2010
Fyrirrennari: Geir H. Haarde |
|
Eftirmaður: Steingrímur J. Sigfússon | |||
Fyrirrennari: Þorsteinn Pálsson |
|
Eftirmaður: Einar K. Guðfinnsson |