Björn Kristjánsson
Björn Kristjánsson (26. febrúar 1858 – 13. ágúst 1939) var fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins í 7 mánuði árið 1917, þ.e.a.s. frá 4. janúar 1917 til 28. ágúst 1917. Sigurður Eggerz tók við af honum sem fjármálaráðherra.
Ævi Björns
[breyta | breyta frumkóða]Björn Kristjánsson fæddist á Hreiðurborg í Flóa. Hann flúði úr vinnumennsku austan úr Grímsnesi 16 ára gamall, vegna þess að hann bjó þar við slæman kost. Hann réð sig á skipsrúm í Þorlákshöfn og flytur svo á Seltjarnarnesið, og heillast þar af tónlist (Leið hans lá oft framhjá húsi á Vesturgötu, þar sem leikið var á harmonium. Þetta heillaði hann mest), og lærir að leika á hljóðfæri. Hann lærði hér á Íslandi fyrst, og sigldi svo til framhaldsnáms til Kaupmannahafnar. Jafnframt því, og til að sjá fyrir sér, nam hann skósmíði og starfaði sem skósmiður á árunum 1876-1882. Hann dvaldist í Kaupmannahöfn, m. a. við tónfræðinám, 1878—1879 og 1882—1883. Björn var bókhaldari í Reykjavík 1883-1888 og síðan kaupmaður á árunum 1888-1910. Hann var borgarfulltrúi í Reykjavík 1903-1908 og sat á þingi í meira en 30 ár.