Tryggvi Þórhallsson
Tryggvi Þórhallsson | |||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Forsætisráðherra Íslands | |||||||||||||
Í embætti 28. ágúst 1927 – 3. júní 1932 | |||||||||||||
Þjóðhöfðingi | Kristján 10. | ||||||||||||
Forveri | Jón Þorláksson | ||||||||||||
Eftirmaður | Ásgeir Ásgeirsson | ||||||||||||
Formaður Framsóknarflokksins | |||||||||||||
Í embætti 1928 – 1932 | |||||||||||||
Forveri | Þorleifur Jónsson | ||||||||||||
Eftirmaður | Ásgeir Ásgeirsson | ||||||||||||
Alþingismaður | |||||||||||||
| |||||||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||||||
Fæddur | 9. febrúar 1889 Reykjavík, Íslandi | ||||||||||||
Látinn | 31. júlí 1935 (46 ára) Reykjavík, Íslandi | ||||||||||||
Stjórnmálaflokkur | Framsóknarflokkurinn Bændaflokkurinn | ||||||||||||
Maki | Anna Guðrún Klemensdóttir (g. 1913) | ||||||||||||
Börn | 7 | ||||||||||||
Móðir | Valgerður Jónsdóttir | ||||||||||||
Faðir | Þórhallur Bjarnarson | ||||||||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||||||||
Starf | Prestur, stjórnmálamaður | ||||||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Tryggvi Þórhallsson (9. febrúar 1889 – 31. júlí 1935) var forsætisráðherra Íslands árin 1927 til 1932. Hann var sonur Þórhalls Bjarnarsonar biskups og Valgerðar Jónsdóttur. Hann lærði guðfræði, tók vígslu 1913 og var prestur á Hesti í Borgarfirði til 1916, en þá fluttist hann til Reykjavíkur og var settur dósent í guðfræði við Háskóla Íslands en árið 1917 varð hann ritstjóri Tímans og gegndi því starfi í 10 ár. Hann var kjörinn þingmaður Strandamanna fyrir Framsóknarflokkinn 1923.
Hann var gerður að foringja flokksins og myndaði ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar sem sat frá 1927-1932. Í þeirri stjórn var hann atvinnumálaráðherra auk þess að fara með forsætisráðherraembættið. Hann var þekktastur fyrir að hafa rofið þing árið 1931, rétt áður en til stóð að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórn hans. Í kosningunum sem fylgdu fékk Framsóknarflokkurinn meirihluta þingsæta með aðeins 35% kjörfylgi, en eitt af hitamálunum sem leiddu til vantrauststillögunnar og þingrofsins voru fyrirhugaðar umbætur í kosningakerfinu, þar sem til stóð að fjölga þingmönnum Reykvíkinga á kostnað landsbyggðarinnar.
Stjórn Tryggva sat því áfram en fór frá vorið 1932. Árið 1933 sagði Tryggvi sig úr Framsóknarflokknum ásamt fleirum og stofnaði Bændaflokkinn, sem fékk þrjá þingmenn í kosningunum 1934 en sjálfur féll Tryggvi í Strandasýslu fyrir Hermanni Jónassyni. Hann dró sig þá að mestu í hlé frá stjórnmálum, enda orðinn heilsuveill og lést ári síðar.
Tryggvi var bankastjóri Búnaðarbankans frá 1932 til æviloka.
Tryggvi bjó mestan hluta ævi sinnar í húsinu Laufási við Laufásveg, sem faðir hans lét reisa árið 1896. Eiginkona hans hét Anna Guðrún Klemensdóttir (1890-1987), dóttir Klemensar Jónssonar landritara og Þorbjargar Stefánsdóttur Bjarnarson húsmóður. Börn Tryggva og Önnu Guðrúnar voru: Klemens Tryggvason (1914-1997) hagstofustjóri, Valgerður Tryggvadóttir (1916-1995) skrifstofustjóri hjá Ríkisútvarpinu, Þórhallur Tryggvason (1918-2008) bankastjóri Búnaðarbankans, Agnar Tryggvason (1919-2012) framkvæmdastjóri, Þorbjörg Tryggvadóttir (1922-2007) framkvæmdastjóri, Björn Tryggvason (1924-2004) aðstoðarbankastjóri Seðlabankans og Anna Guðrún Tryggvadóttir (1927-2020) kennari.
Eitt og annað
[breyta | breyta frumkóða]- Skopblaðið, Spegilinn, kallaði Tryggva Þórhallson Stóra núllið þegar hann var forsætisráðherra en Jónas Jónsson frá Hriflu þótti ráða mestu í þeirri ríkisstjórn.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Æviágrip á heimasíðu Alþingis
- Tryggvi Þórhallsson, bankastjóri; andlátsfregn í Morgunblaðinu 1935
- Tryggvi Þórhallsson, aldarminning; Grein í Morgunblaðinu 9. febrúar 1989
- Séra Tryggvi Þórhallsson; Minningartorð eftir séra Þorstein Briem prófast, Kirkjuritið október 1935, bls. 343–347.
- Tryggvi Þórhallsson; þorkell Jóhannesson, Andvari janúar 1939, bls. 3–27.
Fyrirrennari: Jón Þorláksson |
|
Eftirmaður: Ásgeir Ásgeirsson | |||
Fyrirrennari: Þorleifur Jónsson |
|
Eftirmaður: Ásgeir Ásgeirsson |
- Kjörnir Alþingismenn 1921-1930
- Kjörnir Alþingismenn 1931-1940
- Forsætisráðherrar Íslands
- Fjármálaráðherrar Íslands
- Atvinnumálaráðherrar Íslands
- Formenn Framsóknarflokksins
- Íslenskir ritstjórar
- Handhafar stórkross Hinnar íslensku fálkaorðu
- Fólk fætt árið 1889
- Fólk dáið árið 1935
- Íslenskir guðfræðingar
- Þingmenn Framsóknarflokksins
- Íslenskir bankastjórar