Fara í innihald

Guðmundur Árni Stefánsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Guðmundur Árni Stefánsson
Félagsmálaráðherra
Í embætti
23. júní 1994 – 11. nóvember 1994
ForsætisráðherraDavíð Oddsson
ForveriJóhanna Sigurðardóttir
EftirmaðurRannveig Guðmundsdóttir
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
Í embætti
14. júní 1993 – 23. júní 1994
ForsætisráðherraDavíð Oddsson
ForveriSighvatur Björgvinsson
EftirmaðurSighvatur Björgvinsson
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar
Í embætti
1986–1993
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1993 2000  Reykjanes  Alþýðuflokkurinn
2000 2003  Reykjanes  Samfylkingin
2003 2005  Suðvestur  Samfylkingin
Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
frá til    flokkur
1982 1994  Alþýðuflokkurinn
2022    Samfylkingin
Persónulegar upplýsingar
Fæddur31. október 1955 (1955-10-31) (69 ára)
Hafnarfirði, Íslandi
StjórnmálaflokkurSamfylkingin (2000–)
Alþýðuflokkurinn (fyrir 2000)
MakiJóna Dóra Karlsdóttir (g. 1977)
Börn6
HáskóliHáskóli Íslands
Æviágrip á vef Alþingis

Guðmundur Árni Stefánsson (f. 31. október 1955 í Hafnarfirði) er íslenskur sendiherra, stjórnmálamaður og fyrrverandi ráðherra. Hann var Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra frá 1993 til 1994 og félagsmálaráðherra árið 1994. Hann var þingmaður frá 1993–2005 fyrir Alþýðuflokkinn, Samfylkinguna. Hann var sendiherra Íslands í Washington D.C.og er núverandi varaformaður Samfylkingarinnar.

Guðmundur er sonur Stefáns Gunnlaugssonar alþingismanns og konu hans Margrétar Guðmundsdóttur. Tveir bræður hans, Finnur Torfi Stefánsson og Gunnlaugur Stefánsson, hafa einnig verið alþingismenn.

Guðmundur starfaði við blaðamennsku og þáttagerð í útvarpi þar til hann varð bæjarstjóri í Hafnarfirði fyrir Alþýðuflokkinn 1986. Því starfi gegndi hann þar til hann settist á þing árið 1993 og í júní sama ár varð hann heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.[1] Ári síðar varð hann félagsmálaráðherra en gegndi embættinu aðeins í nokkra mánuði.[2]

Hann var í hópi yngstu leiðtoga Alþýðuflokksins og oft rætt um hann sem arftaka Jóns Baldvins Hannibalssonar, þáverandi utanríkisráðherra og leiðtoga flokksins. Guðmundur Árni varð hins vegar fyrir gagnrýni vegna embættisfærslna sinna, einkum fyrir að hygla vinum og frændum þegar kom að embættisveitingum og ýmsum sporslum. Mest gekk á út af starfslokum Björns Önundarsonar tryggingayfirlæknis árið 1993. Varð þetta til þess að Guðmundur sagði af sér ráðherraembætti 11. nóvember 1994.

Hann sat áfram á Alþingi þar til hann var skipaður sendiherra Íslands í Svíþjóð árið 2005. Þann 17. janúar 2012, afhenti hann Barack Obama Bandaríkjaforseta trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Washington D.C.

Guðmundur bauð sig á ný fram til bæjarstjórnar í Hafnarfirði í kosningunum 2022. Á landsfundi Samfylkingarinnar í október sama ár bauð hann sig fram til varaformanns flokksins og var sjálfkjörinn án mótframboðs.[3] Guðmundur tilkynnti um að hann sæktist eftir forystusæti á lista Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 2024 en féll svo frá því af heilsufarsástæðum og lýsti yfir stuðningi við Ölmu Möller í efsta sæti listans.[4]

Fjölskylduhagir

[breyta | breyta frumkóða]

Guðmundur Árni og kona hans, Jóna Dóra Karlsdóttir, misstu tvo elstu syni sína í eldsvoða árið 1985. Þau eiga fjögur önnur börn.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Breytingar á ríkisstjórn staðfestar á ríkisráðsfundi“, Morgunblaðið 15. júní 1993 (skoðað 9. ágúst 2019)
  2. Alþingi, Æviágrip - Guðmundur Árni Stefánsson (skoðað 8. ágúst 2019)
  3. Árni Sæberg (28. október 2022). „Guðmundur Árni sjálfkjörinn varaformaður“. Vísir. Sótt 28. október 2022.
  4. Alma Ómarsdóttir (19. október 2024). „Guðmundur Árni víkur vegna veikinda og Alma sækist eftir fyrsta sæti“. RÚV. Sótt 19. október 2024.