Providence
Útlit
(Endurbeint frá Providence (Rhode Island))
Providence er höfuðborg og stærsta borg Rhode Island-fylkis Bandaríkjanna. Íbúar eru um 180.000 (2017). Borgin er ein sú elsta í BNA og var stofnuð árið 1636. Hún byggðist upp á vefnaði, vélaiðnaði og framleiðslu. Í dag er hún borg heilbrigðisþjónustu, menntastofnana og þjónustu. Providence liggur við ósa samnefnds fljóts og við Narragansett-flóa.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Providence.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Providence, Rhode Island“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 25. mars. 2019.