Fara í innihald

Óman

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Oman)
Soldáns­veldið Óman
Saltanat Uman
سلطنة عُمان
Fáni Ómans Skjaldarmerki Ómans
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Nashid as-Salaam as-Sultani
Staðsetning Ómans
Höfuðborg Múskat
Opinbert tungumál arabíska
Stjórnarfar Soldánsdæmi

Soldán Haitham bin Tariq Al Said
Krónprins Theyazin bin Haitham
Stofnun
 • Ímamat 751 
 • Soldánsdæmi 9. ágúst 1970 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
70. sæti
309.500 km²
0
Mannfjöldi
 • Samtals (2018)
 • Þéttleiki byggðar
125. sæti
4.829.473
15/km²
VLF (KMJ) áætl. 2018
 • Samtals 203,959 millj. dala (67. sæti)
 • Á mann 47.366 dalir (23. sæti)
VÞL (2019) 0.813 (60. sæti)
Gjaldmiðill ómanskur ríal
Tímabelti UTC+4
Þjóðarlén .om
Landsnúmer +968

Óman (arabíska: العربية), eða Soldáns­veldið Óman (سلطنة عُمان, Saltanat Umān), er land á suðausturströnd Arabíuskagans með landamæri að Sameinuðu arabísku furstadæmunum í norðvestri, Sádí-Arabíu í vestri og Jemen í suðvestri. Óman á strandlengju að Arabíuhafi í suðri og Ómanflóa í austri. Landið liggur á hernaðarlega mikilvægum stað við mynni Persaflóa þar sem landhelgi þess og Írans liggja saman. Óman á tvær útlendur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Madha og Musandam sem skagar út í Hormússund.

Óman var á áhrifasvæði ýmissa stórvelda í fornöld en þegar höfðingjar snerust til íslam á 7. öld stofnuðu þeir ríki undir stjórn ímams og íbadismi varð ríkjandi trúarbrögð. Portúgalir náðu Múskat á sitt vald árið 1507 og héldu borginni til 1650 fyrir utan stutt skeið þegar Tyrkjaveldi náði henni af þeim. Þeir reistu þar virki til að verja siglingaleiðir sínar. Soldánarnir Nasir bin Murshid og Sultan bin Saif ráku Portúgali burt um miðja 17. öld og árið 1698 ráku þeir Portúgali burt frá Sansibar og öðrum eyjum við austurströnd Afríku. Árið 1737 réðust Persar á Óman og eftir nokkurra ára styrjöld komst núverandi soldánsfjölskylda til valda. Ríkið hagnaðist á þrælaverslun í Afríku og Óman varð stórveldi. Árið 1913 skiptist soldánsdæmið í ímamatið Óman inni í landi og soldánsdæmið Múskat við ströndina. Á 6. áratugnum reyndi soldáninn að auka völd sín í ímamatinu sem leiddi til uppreisnar þar og stríðsins um Jebel Akhdar. Að lokum náði soldáninn yfirtökunum með aðstoð Breta og leiðtogar ímamatsins flúðu til Sádí-Arabíu. Árið 1964 fundust olíulindir í Óman en þær eru þó ekki miklar samanborið við sum nágrannalöndin. Eftir að arabíska vorið hófst 2011 hafa mótmæli gegn soldáninum farið vaxandi. Hann hefur lofað þinginu meiri völdum en um leið beitt aukinni hörku gegn gagnrýni á Internetinu. Sex aðgerðasinnar fengu fangelsisdóma og háar fjársektir árið 2012 fyrir að gagnrýna stjórnina á netinu.

Óman er fjölmenningarríki þar sem íbúar tala minnst tólf ólík tungumál, þar á meðal arabísku, balúkísku, svahílí, úrdú og ensku. Um þrír fjórðu hlutar landsmanna aðhyllast íslam, þar af um helmingur íbadisma. Önnur trúarbröð sem íbúar aðhyllast eru meðal annars hindúatrú, jainismi, búddismi og sóróismi. Landið er einveldi soldánsins og þingið hefur takmörkuð völd þótt það gegni hlutverki við lagasetningu. Óman er aðili að Persaflóasamstarfsráðinu, Sameinuðu þjóðunum og Arababandalaginu.

Nafnið Óman virðist vera það sama og kemur fram hjá Pliníusi eldra sem Omana[1] og hjá Kládíosi Ptólemajosi sem Omanon (Ὄμανον ἐμπόριον á grísku),[2] og vísar í báðum tilfellum líklega til fornu borgarinnar Sohar.[3] Á arabísku er heiti borgarinnar eða héraðsins oft talið dregið af orðinu aamen eða amoun (fólk með fasta búsetu, ólíkt Bedúínum).[3] Ýmsir meintir stofnendur hafa líka verið nefndir sem uppruni heitisins (Oman bin Ibrahim al-Khalil, Oman bin Siba' bin Yaghthan bin Ibrahim, Oman bin Qahtan og Lot í Biblíunni) og enn aðrir skýra það með nafni dals í Jemen við Ma'rib þaðan sem stofnendur borgarinnar, ættbálkurinn Azd, eiga að hafa komið.[4]

Landfræði

[breyta | breyta frumkóða]
Wadi Shab í Óman.

Óman liggur milli 16. og 28. breiddargráðu norður og 52. og 60. lengdargráðu austur. Miðhluti Ómans er þakinn stórri malareyðimörk með fjallgarða í norðri (Al Hajar-fjöll) og við suðausturströndina (Dhofar-fjöll).[5][6] Helstu borgir landsins, höfuðborgin Múskat, Sohar og Sur, eru norðan megin við Al-Hajar-fjöll, en Salalah er við suðurströndina. Loftslag í Óman er heitt og þurrt innanlands og rakt við ströndina. Óman var eitt sinn sjávarbotn eins og sést af miklu magni af steingerðum skeljum sem finnast í eyðimörkinni, langt frá núverandi strönd.

Óman á útlendu á Musandamskaga, á hernaðarlega mikilvægum stað í Hormússundi. Sameinuðu arabísku furstadæmin eiga landið milli Óman og útlendunnar.[7] Strandlengjan nyrst í Ómanflóa að Hormússundi nefnist Dibba og skiptist milli Óman og tveggja furstadæma. Hægt er að sigla frá Khasab í Óman til fiskiþorpanna í Musandam.

Önnur útlenda Óman innan Sameinuðu arabísku furstadæmanna er Madha, um hálfa leið milli Musandamskaga og landamæra Óman.[7] Útlendan er hluti af Musandamumdæmi og er um 75 km2 að stærð. Landamæri Madha voru staðfest árið 1969, en norðausturoddi Madha er aðeins 10 metrum frá veginum til Fúdsaíra. Innan Madha er svo útlenda Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Nahwa, sem tilheyrir furstadæminu Sjarja og er 8 km vestan við bæinn Nýja-Madha. Þar eru um 40 hús og heilsugæsla auk símstöðvar.[8]

Eyðimörkin í Óman er mikilvæg uppspretta loftsteina sem notaðir eru við vísindarannsóknir.[9]

Stjórnmál

[breyta | breyta frumkóða]

Stjórnsýslueiningar

[breyta | breyta frumkóða]

Soldánsdæmið skiptist í ellefu umdæmi (muhafazah) sem aftur skiptast í 61 sýslu (wilayah).

Umdæmi Óman
Umdæmi Óman

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Naturalis Historia, VI.149.
  2. Γεωγραφικὴ Ὑφήγησις. VI.7.36.
  3. 3,0 3,1 Encyclopedia of Islam. "Oman". E.J. Brill (Leiden), 1913.
  4. Tarikh fi Uman [Oman in History].
  5. „Oman Geography 2007“. home.kpn.nl. Afrit af upprunalegu geymt þann 25. september 2018. Sótt 11. júlí 2016.
  6. „Expedition Report: Dhofar Mountains Oman“. 30. apríl 2011. Afrit af upprunalegu geymt þann 10. október 2017. Sótt 11. júlí 2016.
  7. 7,0 7,1 Krogh, Jan S. „Oman“. jankrogh.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. maí 2019.
  8. „Nahwa – United Arab Emirates“. geosite.jankrogh.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 9. maí 2019.
  9. 4th Swiss Geoscience Meeting, Bern 2006. Meteorite accumulation surfaces in Oman: Main results of. Omani-Swiss meteorite search campaigns, 2001–2006. by Beda Hofmann et al.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.