Tallahassee
Útlit
(Endurbeint frá Tallahassee, Flórída)
Tallahassee er höfuðborg Flórída í Bandaríkjunum. Íbúar voru rúmlega 191.000 árið 2017 en á stórborgarsvæðinu eru meira en 380.000. Nafn borgarinnar kemur úr máli Muskogen-frumbyggja.
Tallahassee var miðstöð bómullarframleiðlu og þrælasölu í Flórída. Í bandaríska borgarastríðinu var borgin sú eina austur af Mississippifljóti sem sambandssinnar náðu ekki valdi yfir.
Florida State University er helsta menntastofnunin.
Ýmis söfn eru í borginni: Museum of Fine Arts (í Florida State University), Tallahassee Museum, Goodward Museum & Gardens, Museum of Florida History, Mission San Luis de Apalachee, og Tallahassee Automobile Museum.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Tallahassee.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Tallahassee, Florida“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 19. mars. 2019.