Edduverðlaunin 2001
Edduverðlaunin 2001 voru þriðja afhending Edduverðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Afhendingin fór fram á veitingastaðnum Broadway 11. nóvember 2001. Frá árinu áður bættust við tveir nýir verðlaunaflokkar, „Handrit ársins“ og „Sjónvarpsfréttamaður ársins“, og voru því veitt verðlaun í þrettán flokkum auk heiðursverðlauna ÍKSA. Einnig voru í fyrsta sinn stuttmyndir teknar með í flokknum „Sjónvarpsverk/leikið sjónvarpsefni ársins“. Almenningi gafst tækifæri til að hafa áhrif með netkosningu en mest vægi í öllum flokkum nema flokknum „vinsælasti sjónvarpsmaður ársins“ höfðu þó atkvæði meðlima akademíunnar.
Aðalkynnar kvöldsins voru Valgeir Guðjónsson, tónlistarmaður og Edda Heiðrún Backman, leikkona. Verðlaunaafhendingunni var sjónvarpað beint í Ríkissjónvarpinu.
Mesta athygli vakti að kvikmyndin Mávahlátur eftir Ágúst Guðmundsson hlaut alls tíu tilnefningar og sex verðlaun og var valin framlag Íslands til forvals Óskarsverðlaunanna.
Tilnefningar og handhafar Edduverðlaunanna 2001
[breyta | breyta frumkóða]Handhafar Edduverðlaunanna í hverjum flokki eru feitletraðir og gulllitaðir.
Kvikmynd | Leikstjóri |
---|---|
Íkingút | Gísli Snær Erlingsson |
Mávahlátur | Ágúst Guðmundsson |
Villiljós | Ásgrímur Sverrisson, Dagur Kári, Einar Þór Gunnlaugsson, Inga Lísa Middleton og Ragnar Bragason |
Sjónvarsverk/stuttmynd | Leikstjóri |
---|---|
Fóstbræður | Ragnar Bragason |
Krossgötur | Sigurður Kaiser |
Þá yrði líklega farin af mér feimni | María Kristjánsdóttir |
Handritshöfundur | Kvikmynd |
---|---|
Ágúst Guðmundsson | Mávahlátur |
Huldar Breiðfjörð | Villiljós |
Jón Steinar Ragnarsson | Íkingút |
Leikstjóri | Kvikmynd |
---|---|
Ágúst Guðmundsson | Mávahlátur |
Gísli Snær Erlingsson | Íkingút |
Ragnar Bragason | Fóstbræður |
Sjónvarpsfréttamaður | Sjónvarpsstöð |
---|---|
Árni Snævarr | Stöð 2 |
Eva Bergþóra Guðbergsdóttir | Stöð 2 |
Ómar Ragnarsson | RÚV |
Sjónvarpsþáttur | Sjónvarpsstöð |
---|---|
Mósaík | RÚV |
Ok | RÚV |
Tantra - Listin að elska meðvitað | Skjár einn |
Sjónvarpsmaður |
---|
Logi Bergmann Eiðsson |
Handhafi | Kvikmynd |
---|---|
Hrönn Kristinsdóttir fyrir framkvæmdastjórn í | Íkingút |
Þorfinnur Guðnason fyrir klippingu í | Lalli Johns |
Páll Baldvin Baldvinsson fyrir dagskrárstjórn | Tuttugasta öldin |
Heimildarmynd | Leikstjóri |
---|---|
Braggabúar | Ólafur Sveinsson |
Fiðlan | Steinþór Birgisson |
Lalli Johns | Þorfinnur Guðnason |
Leikkona | Kvikmynd |
---|---|
Halldóra Geirharðsdóttir | Þá yrði líklega farin af mér feimnin |
Margrét Vilhjálmsdóttir | Mávahlátur |
Ugla Egilsdóttir | Mávahlátur |
Leikari | Kvikmynd |
---|---|
Hjalti Rúnar Jónsson | Íkingút |
Jón Gnarr | Fóstbræður |
Pálmi Gestsson | Íkingút |
Leikkona | Kvikmynd |
---|---|
Halldóra Geirharðsdóttir | Mávahlátur |
Kristbjörg Kjeld | Mávahlátur |
Sigurveig Jónsdóttir | Mávahlátur |
Leikari | Kvikmynd |
---|---|
Björn Jörundur Friðbjörnsson | Villiljós |
Eyvindur Erlendsson | Mávahlátur |
Hilmir Snær Guðnason | Mávahlátur |
Handhafi |
---|
Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld fyrir framlag sitt til íslenskra bíómynda og sjónvarpsmynda. |
Kvikmynd | Leikstjóri |
---|---|
Íkingút | Gísli Snær Erlingsson |
Mávahlátur | Ágúst Guðmundsson |
Óskabörn þjóðarinnar | Jóhann Sigmarsson |
Villiljós | Ásgrímur Sverrisson, Dagur Kári, Einar Þór Gunnlaugsson, Inga Lísa Middleton og Ragnar Bragason |