Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1982
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1982 eða HM 1982 var haldið á Spáni dagana 13. júní til 11. júlí. Þetta var tólfta heimsmeistarakeppnin. Þátttökulið voru 24 talsins, átta fleiri en verið hafði í fyrri keppnum. Ítalir urðu heimsmeistarar í þriðja sinn eftir sigur á Vestur-Þjóðverjum í úrslitaleik. Stærsti sigur í sögu HM vannst á mótinu, þegar Ungverjar unnu El Salvador með tíu mörkum gegn einu.
Val á gestgjöfum
[breyta | breyta frumkóða]Staðsetning heimsmeistaramótsins 1982 var ákveðin á FIFA-þinginu árið 1966, en við sama tækifæri voru gestgjafar HM 1974 og HM 1978 ákveðnir. Spánn, Vestur-Þýskaland og Ítalía föluðust öll eftir að halda mótin 1974 og 1982. Úr varð að Spánverjar drógu til baka umsókn sína um fyrra mótið í skiptum fyrir stuðning Vestur-Þjóðverja við HM á Spáni 1982. Ítalir féllu frá umsókn sinni og voru Spánverjar því sjálfkjörnir.
Undankeppni
[breyta | breyta frumkóða]109 þjóðir tóku þátt í undankeppninni og börðust um 22 laus sæti, til viðbótar við heimamenn og ríkjandi heimsmeistara. Asía og Eyjaálfa kepptu saman og fór Kuwait með sigur af hólmi en Nýja-Sjáland tryggði sér hitt sætið eftir sigur á Kína í oddaleik. Norður-Ameríkukeppnin 1981 sem fram fór í Hondúras var jafnframt forkeppni fyrir HM í heimsálfunni. Heimamenn sigruðu og grannþjóðin El Salvador hreppti annað sætið. Mexíkó sat heima aldrei þessu vant.
29 Afríkulið skráðu sig til leiks og var leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Alsír og Kamerún komust áfram eftir úrslitaeinvígi gegn Nígeríu og Marokkó. Í Suður-Ameríku var keppt í þremur þriggja liða riðlum. Unnu Brasilía, Perú og Síle hvert sinn riðilinn án þess að tapa leik.
Vestur-Þjóðverjar unnu sinn riðil með fullu húsi stiga, en Austurríkismenn fylgdu þeim eftir. Þjóðirnar mættust á ný á Spáni. Silfurlið Hollendinga frá keppninni í Argentínu hafnaði í fjórða sæti í sínum forriðli á eftir Belgum og Frökkum, en þeir síðarnefndu komust áfram á markatölu á kostnað Íra. Í C-riðli var Ísland meðal þátttökuliða og gerðist örlagavaldur með því að gera 2:2 jafntefli gegn Wales á útivelli. Þar með var ljóst að bresku landsliðunum fjórum tækist ekki öllum að komast í úrslitin, en Sovétríkin og Tékkóslóvakía fóru áfram. Níu leikmenn skiptu á milli sín tíu mörkum Íslands í forkeppninni.
Ungverjar og Englendingar höfðu betur gegn Rúmenum, Svisslendingum og Norðmönnum í D-riðli, þar sem Norðmenn unnu frægan 2:1 sigur á Englandi í Osló. Júgóslavía og Ítalía voru sterkust í sínum riðli. Skotar og Norður-Írar skildu Svía, Portúgali og Ísraelsmenn eftir í F-riðli. G-riðill hafði einungis þremur liðum á að skipa, sem léku fjórfalda umferð. Pólverjar hirtu eina lausa sætið, en Austur-Þjóðverjar komu þar á eftir.
Þátttökulið
[breyta | breyta frumkóða]Tuttugu og fjórar þjóðir mættu til leiks frá sex heimsálfum.
|
Leikvangar
[breyta | breyta frumkóða]Barcelona | Madrid | ||
---|---|---|---|
Camp Nou | Sarrià | Santiago Bernabéu | Vicente Calderón |
Áhorfendur: 121,401 | Áhorfendur: 40,400 | Áhorfendur: 90,089 | Áhorfendur: 65,695 |
Sevilla | Elche | Valencia | |
Ramón Sánchez Pizjuán | Benito Villamarín | Nuevo Estadio | Luis Casanova |
Áhorfendur: 68,110 | Áhorfendur: 50,253 | Áhorfendur: 53,290 | Áhorfendur: 49,562 |
Bilbao | Gijón | Málaga | Zaragoza |
San Mamés | El Molinón | La Rosaleda | La Romareda |
Áhorfendur: 46,223 | Áhorfendur: 45,153 | Áhorfendur: 45,000 | Áhorfendur: 41,806 |
A Coruña | Vigo | Alicante | Valladolid |
Riazor | Balaídos | José Rico Pérez | José Zorrilla |
Áhorfendur: 34,190 | Áhorfendur: 33,000 | Áhorfendur: 32,500 | Áhorfendur: 30,043 |
Oviedo | |||
Carlos Tartiere | |||
Áhorfendur: 23,500 | |||
Lukkudýr
[breyta | breyta frumkóða]Einkennistákn mótsins var Naranjito, sem var appelsína íklædd spænska landsliðsbúningnum. Nafnið er samsett úr orðinu naranja (appelsína) og smækkunarendingunni -ito. Vinsælir teiknimyndaþættir um Naranjito voru sýndir í spænsku sjónvarpi, þar sem kærasta hans Clementina kom einnig við sögu.
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Riðlakeppnin
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var í sex riðlum með fjórum liðum í hverjum. Tvö lið fóru áfram úr hverjum riðli.
Riðill 1
[breyta | breyta frumkóða]Það var lítill meistarabragur á heimsmeistaraefnum Ítala sem gerðu þrjú jafntefli í jafnmörgum leikjum í riðlakeppninni og skoruðu aðeins tvö mörk, það var þó markinu meira en Kamerún sem kom öllum á óvart en Afríkumennirnir féllu taplausir úr keppni. Pólverjar sýndu mesta stöðugleikann og tryggðu sér toppsætið með stórsigri á Perú sem rak lestina.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Pólland | 3 | 1 | 2 | 0 | 5 | 1 | +4 | 4 | |
2 | Ítalía | 3 | 0 | 3 | 0 | 2 | 2 | 0 | 3 | |
3 | Kamerún | 3 | 0 | 3 | 0 | 1 | 1 | 3 | 3 | |
4 | Perú | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 6 | -4 | 2 |
14. júní 1982 | |||
Ítalía | 0-0 | Pólland | Balaídos, Vigo Áhorfendur: 33.000 Dómari: Michel Vautrot |
15. júní 1982 | |||
Perú | 0-0 | Kamerún | Estadio de Riazor, A Coruña Áhorfendur: 11.000 Dómari: Franz Wöhrer |
Szarmach 40, Majewski 44, Kupcewicz 46 | Girard 13, Couriol 72 |
18. júní 1982 | |||
Ítalía | 1-1 | Perú | Balaídos, Vigo Áhorfendur: 25.000 Dómari: Walter Eschweiler |
Conti 18 | Díaz 83 |
19. júní 1982 | |||
Pólland | 0-0 | Kamerún | Estadio de Riazor, A Coruña Áhorfendur: 19.000 Dómari: Alexis Ponnet |
22. júní 1982 | |||
Pólland | 5-1 | Perú | Estadio de Riazor, A Coruña Áhorfendur: 25.000 Dómari: Mario Rubio Vázquez |
Smolarek 55, Lato 58, Boniek 61, Buncol 68, Ciołek 76 | La Rosa 83 |
23. júní 1982 | |||
Ítalía | 1-1 | Kamerún | Balaídos, Vigo Áhorfendur: 20.000 Dómari: Bogdan Dotchev |
Graziani 60 | M'Bida 61 |
Riðill 2
[breyta | breyta frumkóða]Alsír kom öllum á óvart með því að leggja Evrópumeistara Vestur-Þjóðverja í opnunarleik riðilsins og settu þar með allt í uppnám. Síle tapaði öllum þremur viðureignum sínum, þeirri seinustu gegn Alsíringum sem voru þar með komnir í vænlega stöðu fyrir lokaleikinn milli Vestur-Þjóðvarja og Austurríkismanna. Austurrískur sigur eða jafntefli hefði hleypt afrísku nýliðunum í milliriðla og þriggja marka sigur Þjóðverja eða meira hefði þýtt það sama. Niðurstaðan var ótrúlega bragðlaus 1:0 sigur Vestur-Þýskalands. Ýmsir sökuðu liðsmenn beggja liða um að hafa komið sér saman um úrsltin og frá og með næstu keppni var afráðið að lokaleikir í riðlakeppni skyldu fara fram á sama tíma.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Vestur-Þýskaland | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 | 3 | +3 | 4 | |
2 | Austurríki | 3 | 2 | 0 | 1 | 3 | 1 | +2 | 4 | |
3 | Alsír | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 5 | 0 | 4 | |
4 | Síle | 3 | 0 | 0 | 3 | 3 | 8 | -5 | 0 |
16. júní 1982 | |||
Vestur-Þýskaland | 1-2 | Alsír | El Molinón, Gijón Áhorfendur: 42.000 Dómari: Enrique Labo Revoredo |
Rummenigge 67 | Madjer 54, Belloumi 68 |
17. júní 1982 | |||
Síle | 0-1 | Austurríki | Estadio Carlos Tartiere, Oviedo Áhorfendur: 22.500 Dómari: Juan Daniel Cardellino |
Schachner 22 |
20. júní 1982 | |||
Vestur-Þýskaland | 4-1 | Síle | El Molinón, Gijón Áhorfendur: 42.000 Dómari: Bruno Galler |
Rummenigge 9, 57, 66 Reinders 83 | Moscoso 90 |
21. júní 1982 | |||
Alsír | 0-2 | Austurríki | Estadio Carlos Tartiere, Oviedo Áhorfendur: 22.000 Dómari: Tony Boskovic |
Schachner 55, Krankl 67 |
24. júní 1982 | |||
Alsír | 3-2 | Síle | Estadio Carlos Tartiere, Oviedo Áhorfendur: 16.000 Dómari: Rómulo Méndez |
Assad 7, 31 Bensaoula 35 | Neira 59, Letelier 73 |
25. júní 1982 | |||
Vestur-Þýskaland | 1-0 | Austurríki | El Molinón, Gijón Áhorfendur: 41.000 Dómari: Bob Valentine |
Hrubesch 10 |
Riðill 3
[breyta | breyta frumkóða]Opnunarleikur HM var á milli heimsmeistara Argentínu og Belga sem komu talsvert á óvart með 1:0 sigri. Ungverjar unnu metsigur í sögu HM með 10:1 sigri á lánlausu liði El Salvador, en það dugði liði þeirra ekki áfram í næstu umferð.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Belgía | 3 | 3 | 2 | 1 | 3 | 1 | +2 | 5 | |
2 | Argentína | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 | 2 | +4 | 4 | |
3 | Ungverjaland | 3 | 1 | 1 | 1 | 12 | 6 | +6 | 2 | |
4 | El Salvador | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 13 | -12 | 0 |
13. júní - Camp Nou, Barcelona
15. júní - Nuevo Estadio, Elche
- Ungverjaland 10 : 1 El Salvador
18. júní - Estadio José Rico Pérez, Alicante
- Argentína 4 : 1 Ungverjaland
19. júní - Nuevo Estadio, Elche
- Belgía 1 : 0 El Salvador
22. júní - Nuevo Estadio, Elche
- Belgía 1 : 1 Ungverjaland
23. júní - Estadio José Rico Pérez, Alicante
- Argentína 2 : 0 El Salvador
Riðill 4
[breyta | breyta frumkóða]Englendingurinn Brian Robson skoraði skjótasta mark heimsmeistarakeppninnar eftir einungis 27 sekúndur í sigri á Frökkum í fyrstu umferð riðils 4. Enska liðið var ásamt Brasilíu það eina í forriðlunum til að ljúka keppni með fullt hús stiga. Dýrkeypt jafntefli Tékkóslóvakíu gegn Kúveit, gerði það að verkum að Frökkum dugði jafntefli gegn tékkneska liðinu til að tryggja sér hitt sætið í milliriðlum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | England | 3 | 3 | 0 | 0 | 6 | 1 | +5 | 6 | |
2 | Frakkland | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 | 5 | +1 | 3 | |
3 | Tékkóslóvakía | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 4 | -2 | 2 | |
4 | Kúveit | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 6 | -4 | 1 |
16. júlí 1982 | |||
England | 3-1 | Frakkland | San Mamés, Bilbao Áhorfendur: 44.172 Dómari: António Garrido |
Robson 1, 67, Mariner 83 | Soler 24 |
17. júlí 1982 | |||
Tékkóslóvakía | 1-1 | Kúveit | Estadio José Zorrilla, Valladolid Áhorfendur: 25.000 Dómari: Benjamin Dwomoh |
Panenka 21 | Al-Dakhil 57 |
20. júlí 1982 | |||
England | 2-0 | Tékkóslóvakía | San Mamés, Bilbao Áhorfendur: 41.123 Dómari: Charles Corver |
Francis 62, Barmoš 66 (sjálfsm.) |
21. júlí 1982 | |||
Frakkland | 4-1 | Kúveit | Estadio José Zorrilla, Valladolid Áhorfendur: 30.043 Dómari: Myroslav Stupar |
Genghini 31, Platini 43, Six 48, Bossis 89 | Al-Buloushi 75 |
24. júlí 1982 | |||
Frakkland | 1-1 | Tékkóslóvakía | Estadio José Zorrilla, Valladolid Áhorfendur: 28.000 Dómari: Paolo Casarin |
Six 66 | Panenka 84 |
25. júlí 1982 | |||
England | 1-0 | Kúveit | San Mamés, Bilbao Áhorfendur: 39.700 Dómari: Gilberto Aristizábal |
Francis 27 |
Riðill 5
[breyta | breyta frumkóða]Níu mörk voru skoruð í leikjunum sex í fimmta riðli. Í fyrsta leik tóku heimamenn á móti Hondúras, sem var óþekkt stærð á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Eftir 10:1 sigur Ungverja á El Salvador bjuggu flestir við stórsigri gestgjafanna, en raunin varð 1:1 jafntefli. Í næstu umferð unnu Spánverjar 2:1 sigur á Júgóslövum þar sem heimamenn fengu vítaspyrnu á silfurfati. Norður-Írar unnu loks Spánverja í lokaumferðinni og skutust á topp riðilsins. Hondúras og Júgóslavía féllu úr leik.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Norður-írland | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 | 1 | +1 | 4 | |
2 | Spánn | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 3 | 0 | 3 | |
3 | Júgóslavía | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 0 | 3 | |
4 | Hondúras | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 3 | -1 | 2 |
16. júlí 1982 | |||
Spánn | 1-1 | Hondúras | Estadio Luis Casanova, Valencia Áhorfendur: 49.562 Dómari: Arturo Ithurralde |
Ufarte 65 | Zelaya 8 |
17. júlí 1982 | |||
Júgóslavía | 0-0 | Norður-Írland | La Romareda, Zaragoza Áhorfendur: 25.000 Dómari: Erik Fredriksson |
Juanito 14, Saura 66 | Gudelj 10 |
20. júlí 1982 | |||
Spánn | 2-1 | Júgóslavía | Estadio Luis Casanova, Valencia Áhorfendur: 48.000 Dómari: Henning Lund-Sørensen |
Juanito 14, Saura 66 | Gudelj 10 |
21. júlí 1982 | |||
Hondúras | 1-1 | Norður-Írland | La Romareda, Zaragoza Áhorfendur: 15.000 Dómari: Chan Tam Sun |
Laing 60 | Armstrong 10 |
24. júlí 1982 | |||
Hondúras | 0-1 | Júgóslavía | La Romareda, Zaragoza Áhorfendur: 25.000 Dómari: Gastón Castro |
Petrović 88 |
25. júlí 1982 | |||
Spánn | 0-1 | Norður-Írland | Estadio Luis Casanova, Valencia Áhorfendur: 49.562 Dómari: Héctor Ortiz |
Armstrong 47 |
Riðill 6
[breyta | breyta frumkóða]Nýja-Sjáland keppti í fyrsta sinn í úrslitakeppni HM og tapaði öllum sínum leikjum. Brasilíska liðið sigraði í riðlinum á fullu húsi stiga. Jafntefli Sovétmanna og Skota í lokaleiknum gerði það að verkum að fyrrnafnda liðið náði öðru sætinu á markatölu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 3 | 0 | 0 | 10 | 2 | +8 | 6 | |
2 | Sovétríkin | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 | 4 | +2 | 3 | |
3 | Skotland | 3 | 1 | 1 | 1 | 8 | 8 | 0 | 3 | |
4 | Nýja-Sjáland | 3 | 0 | 0 | 3 | 2 | 12 | -10 | 0 |
14. júní 1982 | |||
Brasilía | 2-1 | Sovétríkin | Ramón Sánchez Pizjuán, Sevilla Áhorfendur: 68.000 Dómari: Augusto Lamo Castillo |
Sócrates 75, Éder 88 | Bal 34 |
15. júní 1982 | |||
Skotland | 5-2 | Nýja-Sjáland | La Rosaleda Stadium, Málaga Áhorfendur: 36.000 Dómari: David Socha |
Dalglish 18, Wark 29, 32, Robertson 73, Archibald 79 | Sumner 54, Wooddin 64 |
18. júní 1982 | |||
Brasilía | 4-1 | Skotland | Estadio Benito Villamarín, Sevilla Áhorfendur: 47.379 Dómari: Luis Paulino Siles |
Zico 33, Oscar 48, Éder 63, Falcão 87 | Narey 18 |
19. júní 1982 | |||
Sovétríkin | 3-0 | Nýja-Sjáland | La Rosaleda Stadium, Málaga Áhorfendur: 19.000 Dómari: Yousef Alghoul |
Gavrilov 24, Blokhin 48, Baltacha 68 |
22. júní 1982 | |||
Sovétríkin | 2-2 | Scotland | La Rosaleda Stadium, Málaga Áhorfendur: 45.000 Dómari: Nicolae Rainea |
Chivadze 59, Shengelia 84 | Jordan 15, Souness 86 |
23. júní 1982 | |||
Brasilía | 4-0 | Nýja-Sjáland | Estadio Benito Villamarín, Sevilla Áhorfendur: 43.000 Dómari: Damir Matovinović |
Zico 28, 31, Falcão 64, Serginho 70 |
Milliriðlar
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var í fjórum þriggja liða riðlum. Einungis toppliðið komst áfram í undanúrslit.
A riðill
[breyta | breyta frumkóða]Pólverjar fóru með sigur af hólmi í riðlinum. Þrjú mörk frá Zbigniew Boniek í upphafsleiknum gegn Belgum gerðu það að verkum að markahlutfall þeirra var mun betra en Sovétmanna.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Pólland | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 | 0 | +3 | 3 | |
2 | Sovétríkin | 2 | 1 | 1 | 0 | 1 | 0 | +1 | 3 | |
3 | Belgía | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 | 4 | -4 | 0 |
28. júní 1982 | |||
Pólland | 3-0 | Belgía | Camp Nou, Barcelona Áhorfendur: 65.000 Dómari: Luis Paulino Siles |
Boniek 4, 26, 53 |
1. júlí 1982 | |||
Belgía | 0-1 | Sovétríkin | Camp Nou, Barcelona Áhorfendur: 45.000 Dómari: Michel Vautrot |
Oganesian 48 |
4. júlí 1982 | |||
Pólland | 0-0 | Sovétríkin | Camp Nou, Barcelona Áhorfendur: 65.000 Dómari: Bob Valentine |
B riðill
[breyta | breyta frumkóða]Englendingar gerðu markalaust jafntefli í báðum leikjum sínum og féllu því úr keppni ósigraðir á mótinu. Vestur-Þjóðverjar komust áfram en heimamenn Spánverja ráku lestina.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Vestur-Þýskaland | 2 | 1 | 1 | 0 | 2 | 1 | +1 | 3 | |
2 | England | 2 | 0 | 2 | 0 | 0 | 0 | 0 | 2 | |
3 | Spánn | 2 | 0 | 1 | 1 | 1 | 2 | -1 | 1 |
29. júní 1982 | |||
Vestur-Þýskaland | 0-0 | England | Santiago Bernabéu, Madrid Áhorfendur: 75.000 Dómari: Arnaldo Cézar Coelho |
2. júlí 1982 | |||
Vestur-Þýskaland | 2-1 | Spánn | Santiago Bernabéu, Madrid Áhorfendur: 90.000 Dómari: Paolo Casarin |
Littbarski 50, Fischer 75 | Zamora 82 |
5. júlí 1982 | |||
Spánn | 0-0 | England | Santiago Bernabéu, Madrid Áhorfendur: 75.000 Dómari: Alexis Ponnet |
C riðill
[breyta | breyta frumkóða]Flestum bar saman um að þetta væri langöflugasti milliriðillinn, með heimsmeisturum Argentínumanna og brasilíska liðinu sem margir spáðu meistaratitli. Ítalir, sem höfðu lítið sýnt í forriðlunum, urðu hins vegar hlutskarpastir.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Ítalía | 2 | 2 | 0 | 0 | 5 | 3 | +2 | 4 | |
2 | Brasilía | 2 | 1 | 0 | 1 | 5 | 4 | +1 | 2 | |
3 | Argentína | 2 | 0 | 0 | 2 | 2 | 5 | -3 | 0 |
29. júní 1982 | |||
Ítalía | 2-1 | Argentína | Sarrià Stadium, Barcelona Áhorfendur: 43.000 Dómari: Nicolae Rainea |
Tardelli 57, Cabrini 67 | Passarella 83 |
2. júlí 1982 | |||
Argentína | 1-3 | Brasilía | Sarrià Stadium, Barcelona Áhorfendur: 44.000 Dómari: Mario Rubio Vázquez |
Díaz 89 | Zico 11, Serginho 66, Júnior 75 |
5. júlí 1982 | |||
Ítalía | 3-2 | Brasilía | Sarrià Stadium, Barcelona Áhorfendur: 44.000 Dómari: Abraham Klein |
Rossi 5, 25, 74 | Sócrates 12, Falcão 68 |
D riðill
[breyta | breyta frumkóða]Frakkar þurftu lítið að hafa fyrir sigri í riðli sem álitinn var sá slakasti.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Frakkland | 2 | 2 | 0 | 0 | 5 | 1 | +4 | 4 | |
2 | Austurríki | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 | 3 | -1 | 2 | |
3 | Norður-Írland | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 | 5 | -3 | 0 |
28. júní 1982 | |||
Austurríki | 0-1 | Frakkland | Vicente Calderón, Madrid Áhorfendur: 37.000 Dómari: Károly Palotai |
Genghini 39 |
1. júlí 1982 | |||
Austurríki | 2-2 | Norður-Írland | Vicente Calderón, Madrid Áhorfendur: 20.000 Dómari: Adolf Prokop |
Pezzey 50, Hintermaier 68 | Hamilton 27, 75 |
4. júlí 1982 | |||
Frakkland | 4-1 | Norður-Írland | Vicente Calderón, Madrid Áhorfendur: 37.000 Dómari: Alojzy Jarguz |
Giresse 33, 80, Rocheteau 46, 68 | Armstrong 75 |
Undanúrslit
[breyta | breyta frumkóða]Öll undanúrslitaliðin komu frá Evrópu. Paolo Rossi gerði bæði mörk Ítala gegn Pólverjum. Viðureign Vestur-Þjóðverja og Frakka varð afar dramatísk. Fjögur mörk voru skoruð í framlengingu og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Oft er vísað til leiksins sem eins þess besta í sögu HM í knattspyrnu.
8. júlí 1982 | |||
Pólland | 0-2 | Ítalía | Camp Nou, Barcelona Áhorfendur: 50.000 Dómari: Juan Daniel Cardellino, Úrúgvæ |
Rossi 22, 73 |
8. júlí 1982 | |||
Vestur-Þýskaland | 3-3 (8:7 e. vítasp.ke.) | Frakkland | Ramón Sánchez Pizjuán leikvangurinn, Sevilla Áhorfendur: 70.000 Dómari: Charles Corver, Hollandi |
Littbarski 17, Rummenigge 102, Fischer 108 | Platini 26 (vítasp.), Trésor 92, Giresse 98 |
Bronsleikur
[breyta | breyta frumkóða]Pólverjar hrepptu bronsverðlaunin á HM í annað sinn í sögunni, mörk þeirra voru skoruð frá 40. til 46. mínútu.
10. júlí 1982 | |||
Pólland | 3-2 | Frakkland | José Rico Pérez, Alicante Áhorfendur: 28.000 Dómari: António Garrido, Portúgal |
Szarmach 40, Majewski 44, Kupcewicz 46 | Girard 13, Couriol 72 |
Úrslitaleikur
[breyta | breyta frumkóða]Um 90 þúsund manns sáu Ítali tryggja sér heimsmeistaratitilinn í Madrid. Rossi, Tardelli og Altobelli komu Ítölum í 3:0 með mörkum í seinni hálfleik en Breitner klóraði í bakkann undir lokin.
11. júlí 1982 | |||
Ítalía | 3-1 | Vestur-Þýskaland | Santiago Bernabéu, Madrid Áhorfendur: 90.000 Dómari: Arnaldo Cézar Coelho, Brasilíu |
Rossi 57, Tardelli 69, Altobelli 81 | Breitner 83 |
Markahæstu leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]146 mörk voru skoruð í keppninni og skiptust þau niður á 100 leikmenn, þar af var aðeins eitt sjálfsmark.
- 6 mörk
- 5 mörk
- 4 mörk
- 3 mörk