Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu var komið af stað af Fédération Internationale de Football Association eða FIFA. Heimsmeistarakeppnin er einn vinsælasti íþróttaviðburður í heimi og er áhorf á heimsmeistarakeppnina meira en á Ólympíuleikana.
Um keppnina
[breyta | breyta frumkóða]Úrslitakeppnin er haldin á fjögurra ára fresti en þess á milli þess keppa 197 landslið (tölur fyrir HM 2006) um sæti í úrslitakeppninni og eru þar sæti fyrir 32 lið (24 lið árið 1998) og fær liðið sem vann síðustu heimsmeistarakeppni sjálfkrafa sæti í úrslitakeppninni. Keppnin hefur verið haldin á fjögurra ára fresti frá árinu 1930, þó á því séu tvær undantekningar; ekki var spilað árið 1942, vegna þess að FIFA gat ekki komið sér saman um hvort keppnin ætti að vera haldin í Brasilíu eða Þýskalandi, auk þess sem seinni heimsstyrjöldin var í algleymingi, né 1946, vegna þess að verið var að byggja allt uppá nýtt alls staðar í heiminum eftir seinni heimsstyrjöldina.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu var fyrst haldin í Úrúgvæ árið 1930 og unnu Úrugvæar þá keppni. Það lið sem að hefur oftast (og alltaf) tekið þátt í heimsmeistarakeppninni er Brasilía og hafa þeir unnið hana 5 sinnum. Alls hafa átta lið unnið titilinn en þau eru:
Sæti | Land | Ár | Titlar |
---|---|---|---|
1. | Brasilía | 1958, 1962, 1970, 1994, 2002 | 5 |
2. | Ítalía | 1934, 1938, 1982, 2006 | 4 |
3. | Þýskaland | 1954, 1974, 1990, 2014 | 4 |
4. | Argentína | 1978, 1986, 2022 | 3 |
5. | Úrugvæ | 1930, 1950 | 2 |
6. | Frakkland | 1998, 2018 | 2 |
7. | England | 1966 | 1 |
8. | Spánn | 2010 | 1 |
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vefsíða FIFA Geymt 19 maí 2019 í Wayback Machine