Askur og Embla
Útlit
Askur og Embla voru í norrænni goðafræði gerð úr tveim trjám sem Borssynir, það er Óðinn, Vili og Vé, fundu á sjávarströndu. Annar trjábolurinn var af aski, en hinn af álmi. Óðinn gaf þeim önd og líf, Vili gaf vit og hræring og Vé gaf ásjónu, mál, heyrn og sjón. Svo gáfu þeir þeim klæði og nöfn, manninum nafnið Askur en konunni Embla, og ólst af þeim mannkynið sem gefinn var Miðgarður til að búa í.