Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1956
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva | |
---|---|
Dagsetningar | |
Úrslit | 24. maí 1956 |
Umsjón | |
Staður | Teatro Kursaal Lugano, Sviss |
Kynnar | Lohengrin Filipello |
Sjónvarpsstöð | RTSI |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 7 |
Frumraun landa | Belgía Þýskaland |
Kosning | |
Kosningakerfi | Tveir kviðdómarar frá hverju landi kusu leynilega eitt lag. |
Sigurlag | Sviss Refrain - Lys Assia |
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1956 var fyrsta söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hún var haldin fimmtudaginn 24. maí í Teatro Kursaal í Lugano í Sviss. Keppnin var skipulögð af Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva (SES) sem samevrópsk tónlistarkeppni. Ítalska tónlistarhátíðin Sanremo var fyrirmynd SES að keppninni. Lohengrin Filipello var gestgjafi þessarar fyrstu söngvakeppni sem var um ein klukkustund og fjörtíu mínútur að lengd. Sjö lönd tóku þátt og hvert þeirra flutti tvö lög. Tveir dómarar frá hverju landi dæmdu lögin leynilega og eftir sínum smekk.
Í þessari fyrstu keppni voru nokkrar aðgerðir framkvæmdar sem ekki hafa verið endurteknar í síðan í nokkurri keppni, m.a.; að tvö framlög voru frá hverju landi, eitt land greiddi atkvæði fyrir hönd annars lands og að aðeins einn karlmaður væri kynnir kvöldsins.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Meðlimir Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva ræddu á fundi í Mónakó árið 1955 hugmyndir sínar um samevrópska tónlistarkeppni, innblásin af ítölsku Sanremo tónlistarhátíðinni. Út frá þessum fundi varð Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva til. Tekin var ákvörðun um það að halda fyrstu keppnina í Lugano í Sviss ári seinna.
Staðsetning
[breyta | breyta frumkóða]Teatro Kursaal í Lugano í Sviss varð fyrir valinu sem vettvangur keppninnar. Lugano er borg staðsett í ítölskumælandi kantónunni Ticino í Suður-Sviss, sem á landamæri að Ítalíu. Þessi fyrsta keppni var haldin á ítölsku.
Fyrirkomulag
[breyta | breyta frumkóða]Kynnir þessarar fyrstu keppni var Lohengrin Filipello og var það í eina skiptið sem einn karlmaður hefur verið kynnir í keppninni og í rauninni hafa verið að minnsta kosti ein kona kynnir allt til ársins 2017, þegar þrír karlmenn voru kynnar. Keppnin varð ein klukkustund og fjörtíu mínútur að lengd. Þrátt fyrir að keppnin 1956 hafi að mestu verið flutt í útvarpi voru myndavélar í stúdíóinu fyrir þá fáu Evrópubúa sem áttu sjónvarp.
Einungis einstaklingar máttu taka þátt og lögin máttu ekki vera lengri en þrjár og hálf mínúta að lengd. Tuttugu og fjögurra manna hljómsveit spilaði undir og var stjórnað af Fernando Paggi. Intervalatriði kvölsins var flutt af Joyeux Rossignols sem flautaði fyrir áheyrendur. Lengja þurfti atriðið vegna tafa við stigagjöf. SES mælti sterklega með því að hvert land héldi sína eigin forkeppni við val á framlagi landsins.
Deilur um stigagjöf
[breyta | breyta frumkóða]Tveir dómarar frá hverju landi fóru til Lugano til að kjósa lögin í leynilegri kosningu. Dómarar Lúxemborgar komust þó ekki á leiðarenda. Í þessari keppni máttu dómarar gefa hvaða framlagi sem var stig, líka framlagi frá sínu eigin landi. Auk þess var svissnesku dómnefndinni heimilt að kjósa fyrir hönd þeirrar lúxemborgísku. Mögulegt er að sigur Sviss hafi verið vegna þessarar reglu. Þetta kerfi var aldrei endurtekið.
Glataðar upptökur
[breyta | breyta frumkóða]Þrátt fyrir að þessi fyrsta keppni hafi veirð sýnd í sjónvörpum í nokkrum evrópulöndum eru engar upptökur til af henni fyrir utan flutning sigurlagsins í lok keppninnar. Þetta er önnur af tveimur söngvakeppnisupptökum sem hafa alveg glatast. Hin keppnin var keppnin 1964 en allar upptökur af keppninni eyðilögðust í eldsvoða.
Þáttakendur
[breyta | breyta frumkóða]Sjö lönd tóku þátt í fyrstu keppninni og hvert þeirra flutti tvö lög. Tvö lönd til viðbótar, Austurríki og Danmörk, höfðu ætlað að taka þátt en runnu út á tíma til að skila inn lagi í keppnina og gátu því ekki tekið þátt.
Hljómsveitarstjórnendur
[breyta | breyta frumkóða]- Holland - Fernando Paggi
- Sviss - Fernando Paggi
- Belgía - Léo Souris
- Þýskaland - Fernando Paggi
- Frakkland - Franck Pourcel
- Lúxemborg - Jacques Lassry
- Ítalía - Gian Stellari
Úrslit
[breyta | breyta frumkóða]Fyrir utan sigurlagið, hafa úrstlitin í fyrstu keppninni aldrei verið gefin út.
Land | Lag | Íslensk þýðing | Flytjandi | Tugumál | Sæti |
---|---|---|---|---|---|
Holland | De vogels van Holland | Fuglar Hollands | Jetty Paerl | Hollenska | 2 |
Sviss | Das alte Karussell | Gamla hringekjan | Lys Assia | Þýska | 2 |
Belgía | Messieurs les noyés de la Seine | Herramenn drukknuðu í Signu | Fud Leclerc | Franska | 2 |
Þýskaland | Im Wartesaal zum großen Glück | Walter Andreas Schwarz | Þýska | 2 | |
Frakkland | Le temps perdu | Tapaði tíminn | Mathé Altéry | Franska | 2 |
Lúxemborg | Ne crois pas | Trúi ekki | Michèle Arnaud | Franska | 2 |
Ítalía | Aprite le finestre | Opnir gluggar | Franca Raimondi | Ítalska | 2 |
Holland | Voorgoed voorbij | Til góðs | Corry Brokken | Hollenska | 2 |
Sviss | Refrain | Lys Assia | Franska | 1 | |
Belgía | Le plus beau jour de ma vie | Fallegasti dagur lífs míns | Mony Marc | Franska | 2 |
Þýskaland | So geht das jede Nacht | Svo fer það á hverju kvöldi | Freddy Quinn | Þýska | 2 |
Frakkland | Il est là | Hann er hér | Dany Dauberson | Franska | 2 |
Lúxemborg | Les amants de minuit | Elskendur miðnætturinnar | Michèle Arnaud | Franska | 2 |
Ítalía | Amami se vuoi | Elskaðu mig ef þú villt | Tonina Torrielli | Ítalska | 2 |
Sjónvarpsstöðvar allra þátttökulanda sendu skýrendur í keppnina til að þýða og skýra frá keppninni á sínu eigin tungumáli. Skýrendur voru eftirfarandi
- Holland - Piet te Nuyl[1] (NTS)
- Sviss - Georges Hardy (TSR)
- Belgía - Janine Lambotte (INR), Nand Baert (NIR)
- Þýskaland - Wolf Mittler (ARD)
- Frakkland - Michèle Rebel (RTF)
- Lúxemborg - Michèle Rebel (Télé-Luxembourg)
- Ítalía - Franco Marazzi (Programma Nazionale)
- Austurríki (keppti ekki) - Wolf Mittler (ORF)
- Danmörk (keppti ekki) - Gunnar Hansen (Statsradiofonien TV)
- Bretland (keppti ekki) - Wilfred Thomas (BBC Television Service)
| class="col-break " style="width: 50%;text-align: left; vertical-align: top;" |
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Nederlandse televisiecommentatoren bij het Eurovisie Songfestival“. Eurovision Artists (hollenska).