Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2017

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2017
Fyrri undanúrslit 9. maí 2017
Seinni undanúrslit 11. maí 2017
Úrslit 13. maí 2017
Kynnar Oleksandr Skichko, Volodymyr Ostapchuk, Timur Miroshnychenko
Sjónvarpsstöð Fáni Úkraínu National Public Broadcasting Company of Ukraine (UA:PBC)
Staður Kiev, Úkraína
Sigurlag Amar pelos dois
Fjöldi ríkja 42
Endurkomur Fáni Portúgals Portúgal
Fáni Rúmeníu Rúmenía
Lönd sem ekki taka þátt Fáni Bosníu og Hersegóvínu Bosnía og Hersegóvína
Fáni Rússlands Rússland
2016  Wiki Eurovision Heart (Infobox).svg  2018

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2017 var haldin í Kiev í Úkraínu eftir að Jamala vann keppnina 2016 með lagið „1944“. Undankeppnirnar tvær voru haldnar 9. og 11. maí, og aðalkeppnin var haldin 13. maí. 42 lönd tóku þátt í keppninni, þar sem Portúgal og Rúmenía sneru aftur. Bosnía og Hersegóvína og Rússland tóku ekki þátt í þessari keppni. Bosnía hætti þáttöku vegna fjármagnserfiðleika, en fyrirhuguðum keppanda Rússlands, Julia Samoylova var bannað að keppa þar sem hún ferðaðist beint til Krímskaga frá Rússlandi 2015, en slíkt er óheimilt samkvæmt Úkraínskum lögum.

Sigurvegarinn var Portúgal með lagið „Amar pelos dois“ (Ást fyrir tvo), sem var flutt af Salvador Sobral og skrifað af systur hans Luísa Sobral. Þetta var fyrsti sigur Portúgals og í fyrsta skipti sem landið lenti í topp fimm sætunum, eftir 53 ára þáttöku. Einnig var þetta í annað skiptið í röð sem land með endurkomu sigraði í keppninni, eftir endurkomu Úkraínu 2016.

  Þessi sjónvarpsgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.