Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2017
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2017 | |
---|---|
Celebrate Diversity | |
Dagsetningar | |
Undanúrslit 1 | 9. maí 2017 |
Undanúrslit 2 | 11. maí 2017 |
Úrslit | 13. maí 2017 |
Umsjón | |
Vettvangur | International Exhibition Centre Kænugarður, Úkraína |
Kynnar |
|
Framkvæmdastjóri | Jon Ola Sand |
Sjónvarpsstöð | Suspilne (UA:PBC) |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 42 |
Frumraun landa | Engin |
Endurkomur landa | Portúgal Rúmenía |
Taka ekki þátt | Bosnía og Hersegóvína Rússland |
Kosning | |
Kosningakerfi | Hvert land gefur tvö sett af 12, 10, 8–1 stigum til tíu laga. |
Sigurvegari | Portúgal Salvador Sobral |
Sigurlag | „Amar pelos dois“ |
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2017 var haldin í Kænugarði í Úkraínu eftir að Jamala vann keppnina 2016 með lagið „1944“. Undankeppnirnar tvær voru haldnar 9. og 11. maí, og aðalkeppnin var haldin 13. maí. 42 lönd tóku þátt í keppninni, þar sem Portúgal og Rúmenía sneru aftur. Bosnía og Hersegóvína og Rússland tóku ekki þátt í þessari keppni. Bosnía hætti þáttöku vegna fjármagnserfiðleika, en fyrirhuguðum keppanda Rússlands, Julia Samoylova var bannað að keppa þar sem hún ferðaðist beint til Krímskaga frá Rússlandi 2015, en slíkt er óheimilt samkvæmt úkraínskum lögum.
Sigurvegarinn var Portúgal með lagið „Amar pelos dois“ (Ást fyrir tvo), sem var flutt af Salvador Sobral og skrifað af systur hans Luísa Sobral. Þetta var fyrsti sigur Portúgals og í fyrsta skipti sem landið lenti í topp fimm sætunum, eftir 53 ára þáttöku.[1] Einnig var þetta í annað skiptið í röð sem land með endurkomu sigraði í keppninni, eftir endurkomu Úkraínu 2016.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hulda Hólmkelsdóttir (13. maí 2017). „Portúgal vann Eurovision“. Vísir.