Fara í innihald

Skagafjörður (sveitarfélag)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skagafjörður
Drangey og Grettislaug
Skjaldarmerki Skagafjarðar
Staðsetning Skagafjarðar
Staðsetning Skagafjarðar
Hnit: 65°45′N 19°38′V / 65.750°N 19.633°V / 65.750; -19.633
LandÍsland
KjördæmiNorðvesturkjördæmi
Þéttbýliskjarnar
Stjórnarfar
 • SveitarstjóriSigfús Ingi Sigfússon
Flatarmál
 • Samtals5.543 km2
 • Sæti5. sæti
Mannfjöldi
 (2024)
 • Samtals4.276
 • Sæti14. sæti
 • Þéttleiki0,77/km2
Póstnúmer
550–570
Sveitarfélagsnúmer5716
Vefsíðaskagafjordur.is

Skagafjörður er sveitarfélag á Norðvesturlandi sem þekur mest allt svæðið í kringum Skagafjörð.

Sveitarfélagið varð til 6. júní 1998 við sameiningu 11 sveitarfélaga í Skagafirði: Skefilsstaðahrepps, Sauðárkrókskaupstaðar, Skarðshrepps, Staðarhrepps, Seyluhrepps, Lýtingsstaðahrepps, Rípurhrepps, Viðvíkurhrepps, Hólahrepps, Hofshrepps og Fljótahrepps. Höfðu íbúar þeirra samþykkt sameininguna í kosningum 15. nóvember árið áður. Akrahreppur var eina sveitarfélagið í firðinum sem ákvað að vera ekki með.

Innan vébanda hins nýja sveitarfélags búa nú um 4.000 manns, þar af 2600 á Sauðárkróki, sem er langstærsti bærinn. Auk þess er þéttbýli á Hofsósi, á Hólum í Hjaltadal og í Varmahlíð.

Íbúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps samþykktu sameiningu árið 2022, og fékk nýja sveitarfélagið nafnið Skagafjörður.

Sveitastjórn

[breyta | breyta frumkóða]

Í sveitastjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar sitja 9 fulltrúar sem kjörnir eru hlutfallskosningu á fjögurra ára fresti. Síðast var kosið til sveitastjórnar í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí 2022.