Söngvakeppnin 2014
Útlit
| Söngvakeppnin 2014 | |
|---|---|
| Dagsetningar | |
| Undanúrslit 1 | 1. febrúar 2014 |
| Undanúrslit 2 | 8. febrúar 2014 |
| Úrslit | 15. febrúar 2014 |
| Umsjón | |
| Vettvangur |
|
| Kynnar | |
| Sjónvarpsstöð | RÚV |
| Þátttakendur | |
| Fjöldi þátttakenda | 10 |
| Kosning | |
| Sigurvegari | Pollapönk |
| Sigurlag | „No Prejudice“ |
Söngvakeppnin 2014 er söngvakeppni haldin á vegum RÚV í því skyni að velja framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2014. Keppnin samanstóð af tveimur undanúrslitum sem fóru fram 1. febrúar og 8. febrúar 2014 í myndveri RÚV og úrslitum sem fóru fram 15. febrúar 2014 í Háskólabíó. Kynnar voru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Guðrún Dís Emilsdóttir.
Hljómsveitin Pollapönk sigraði keppnina með laginu „No Prejudice“ og tók þátt fyrir hönd Íslands í Eurovision þar sem þeir enduðu í 15. sæti í úrslitum með 58 stig.[1]
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Haraldsson, Ingvar (10 maí 2014). „Svona skiptust stig Íslands - Vísir“. visir.is. Sótt 25 febrúar 2024.