Dynjandi
Dynjandi (eða Fjallfoss) er 100 m hár foss í Arnarfirði á Vestfjörðum Íslands. Fossinn kemur ofan af Dynjandisheiði og fyrir neðan hann er einnig eyðibýli sem heitir Dynjandi. Á bjargbrún er fossinn 30 metra breiður en 60 metra breiður neðst. Fleiri fossar eru í fossaröðinni: Bæjarfoss, Hundafoss, Göngumannafoss, Strompglúfrafoss og Hæstahjallafoss. Fossinn var friðlýstur árið 1980.
Meðal sumarrennsli Dynjandisár er 2 til 8 rúmmetrar en meðal vetrarrennsli er 1 til 4 rúmmetrar vatns á sekúndu. Upptök sín á áin í smávötnum á Dynjandisheiði.
Heimild[breyta | breyta frumkóða]
- „Dynjandisfoss“. Sótt 1. desember 2005.
Tengill[breyta | breyta frumkóða]
- „Foss á Vestfjörðum er bæði kallaður Dynjandi og Fjallfoss. Hvort nafnið er réttara og af hverju?“ á Vísindavefnum

Aldeyjarfoss • Álafoss • Barnafoss • Bjarnafoss • Brúarfoss • Dettifoss • Dynjandi • Dynkur • Fagrifoss • Fardagafoss • Faxi • Foss á Síðu • Glanni • Gljúfrabúi • Gljúfrasmiður • Glymur • Goðafoss • Gullfoss • Granni • Grundarfoss • Hafragilsfoss • Háifoss • Hengifoss • Hjálparfoss • Hraunfossar • Írárfoss • Kringilsárfoss • Laxfoss (Grímsá) • Laxfoss (Norðurá) • Litlanesfoss • Mígandi • Morsárfoss • Ófærufoss • Rauðsgil • Rjúkandi • Sauðárfoss • Selfoss • Seljalandsfoss • Skógafoss • Strútsfoss • Svartifoss • Tröllafoss (Leirvogsá) • Tröllafossar • Tröllkonuhlaup • Urriðafoss • Þjófafoss • Þórðarfoss • Þórufoss • Öxarárfoss