Valhúsahæð
Útlit
Valhúsahæð er hæð á Seltjarnarnesi. Hæsti staðurinn er 31 m. Hæðin var friðlýst árið 1998. Á hæðinni er rákað berg eftir ísaldarjökul. Hæðin ber nafn sitt af húsum sem fyrr á öldum geymdu veiðifálka Danakonungs. Þar má einnig finna minjar sem tengjast hersetu í seinni heimstyrjöldinni.
Á hæðinni er knattspyrnuæfingavöllur og frisbígolfvöllur.
Eitt og annað
[breyta | breyta frumkóða]- Ljóðið Passíusálmur nr. 51 eftir Stein Steinarr hefst þannig: Á Valhúsahæðini / er verið að krossfesta mann. / Og fólkið kaupir sér far / með strætisvagninum / til þess að horfa á hann.