Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit | |
---|---|
Hnit: 64°17′45″N 21°55′30″V / 64.2959°N 21.9251°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Melahverfi |
Stjórnarfar | |
• Sveitarstjóri | Linda Björk Pálsdóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 481 km2 |
• Sæti | 34. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 727 |
• Sæti | 41. sæti |
• Þéttleiki | 1,51/km2 |
Póstnúmer | 301 |
Sveitarfélagsnúmer | 3511 |
Vefsíða | hvalfjardarsveit |
Hvalfjarðarsveit er sveitarfélag við norðanverðan Hvalfjörð á Vesturlandi.
Sveitarfélagið varð til við sameiningu Hvalfjarðarstrandarhrepps, Innri-Akraneshrepps, Leirár- og Melahrepps og Skilmannahrepps sem samþykkt var í atkvæðagreiðslu þann 20. nóvember 2004 en tók ekki gildi fyrr en í kjölfar sveitarstjórnakosninganna 2006.[1]
Staðhættir
[breyta | breyta frumkóða]Stærsti þéttbýlisstaður í Hvalfjarðarsveit er Melahverfi með 111 íbúa þann 1. janúar 2016.[2] Iðnaðarhverfið á Grundartanga er við utanverðan Hvalfjörð.
Hvalfjörður, Faxaflói og Borgarfjörður mynda suður- og vesturmörk sveitarfélagsins. Hvalfjarðarsveit liggur einnig að Kjósarhreppi í suðaustri, Akraneskaupstað í vestri, Borgarbyggð og Skorradalshreppi í norðri ásamt Bláskógabyggð upp til heiða í austri.[3]
Til áberandi fjalla í sveitinni teljast (frá vestri til austurs) Akrafjall, Hafnarfjall, Skarðsheiði, Botnsheiði, Hvalfell, Botnssúlur og Kvígindisfell. Með stærri vötnum teljast Eiðisvatn og Hólmavatn á milli Hvalfjarðar og Leirárvogs, einnig Eyrarvatn, Þórisstaðavatn (einnig þekkt sem Glammastaðavatn) og Geitabergsvatn í Svínadal og eitt dýpsta vatn Íslands,[4] Hvalvatn ofan Botnsdals. Hæsti foss Íslands, Glymur, er í Botnsá sem rennur í Hvalfjarðarbotn úr Hvalvatni.[3]
Hringvegurinn liggur um Hvalfjarðarsveit, á um 30 kílómetra kafla á milli Hvalfjarðarganga og Borgarness.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Sameining sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar“. Velferðarráðuneytið. Sótt 11. maí 2016.
- ↑ „Mannfjöldi eftir byggðakjörnum, kyni og aldri 2011-2016“. Hagstofa Íslands. Sótt 11. maí 2016.
- ↑ 3,0 3,1 3,2 „Kortasjá Landmælinga Íslands“. Landmælingar Íslands. Sótt 11. maí 2016.
- ↑ „Hver eru dýpstu stöðuvötn á Íslandi?“. Vísindavefurinn. Sótt 11. maí 2016.