Fara í innihald

Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2010

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þátttökulönd á HM 2010.

Heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2010 var haldið í Suður-Afríku dagana 11. júní til 11. júlí 2010. Þetta var nítjánda heimsmeistarakeppnin og urðu Spánverjar heimsmeistarar í fyrsta sinn eftir sigur á Hollendingum í úrslitum. Þetta var fyrsta og enn sem komið er eina skiptið sem HM hefur farið fram í Afríku en frammistaða afrísku liðanna olli þó vonbrigðum, einkum heimamanna sem urðu fyrstu gestgjafarnir til að falla úr leik í riðlakeppni. Það sama gilti raunar um Ítali, ríkjandi heimsmeistara. Þjóðverjinn Thomas Müller varð markakóngur en Thomas Müller en Diego Forlán frá Úrúgvæ var valinn leikmaður mótsins.

Val á gestgjöfum

[breyta | breyta frumkóða]
Frægð og tengslanet Nelson Mandela átti stóran þátt í að tryggja Suður-Afríku keppnina.

HM 2010 var fyrsta mótið sem úthlutað var eftir skammlífri reglu FIFA um að keppnin skyldi færast milli fimm heimsálfa. Einungis Afríkulönd komu því til greina að þessu sinni. Fimm boð komu fram í fyrstu. Auk Suður-Afríku sóttu Egyptaland og Marokkó um gestgjafahlutverkið, en síðarnefnda landið var það eina í álfunni sem áður hafði falast eftir að halda keppnina. Að auki föluðust Túnis og Líbía eftir því að sjá sameiginlega um mótið.

Síðar bættist Nígería í hópinn og viðruðu Nígeríumenn þá hugmynd sína að deila gestgjafahlutverkinu með grönnum sínum í Benín, Gana og Tógó. Þegar Sepp Blatter lýsti því yfir að ekki væri áhugi á því hjá FIFA eftirleiðis að fela meira en einu landi að sjá um heimsmeistaramót drógu Nígeríumenn boð sitt til baka og það sama gerðu Túnis og Líbía. Eftir stóðu því aðeins þrjú boð.

Ekki þurfti nema eina atkvæðagreiðslu til að komast að niðurstöðu. Enginn fulltrúi FIFA greiddi Egyptum atkvæði sitt, tíu völdu Marokkó en fjórtán Suður-Afríku. Valið var engan veginn augljóst, þar sem Marokkó hafði mun lengri knattspyrnuhefð og ferðalög frá Evrópu yrðu mun auðveldari þangað en til Suður-Afríku. Á hinn bóginn nýttu Suður-Afríkumenn sér til hins ítrasta vinsældir og frægð Nelson Mandela sem var verndari framboðsins.

Í seinni tíð hafa komið fram ásakanir um að Suður-Afríkumenn hafi beitt mútum til að tryggja sér keppnina og var það hluti af spillingarrannsókn FIFA. Árið 2015 staðhæfði breska stórblaðið Daily Telegraph að Marokkó hefði í raun orðið hlutskarpast í kosningunni en úrslitum hefði verið breytt eftir á.

204 af 208 aðildarlöndum FIFA skráðu sig til leiks í HM. Norður- og Suður-Kórea lentu saman í úrslitariðli og komust bæði liðin áfram í úrslitakeppnina, þar var í fyrsta sinn frá 1966 sem Norður-Kórea náði þeim árangri. Úrúgvæ sló Kosta Ríka úr leik í álfuumspili og Nýja-Sjáland vann Barein með minnsta mun. Mark Thierry Henry, sem reyndist hafa lagt boltann fyrir sig með hendinni, kom Frökkum áfram á kostnað Írlands. Í kjölfarið var ákveðið að koma á laggirnar embætti sprotadómara sem höfðu það eina hlutverk að fylgjast með álitamálum í vítateignum.

Þátttökulið

[breyta | breyta frumkóða]

32 þjóðir mættu til leiks frá sex heimsálfum.

Lukkdýr keppninnar var Zakumi, hlébarði með mannlega eiginleika og grænt hár. Nafnið er samsetning úr bókstöðunum ZA (alþjóðlegum einkennisstöfum Suður-Afríku) og orðinu kumi, sem merkir töluna 10 í ýmsum afrískum tungumálum og vísar til ártalsins 2010. Grænn og gulur litur Zakumi kallaðist einnig á við landsliðsbúning Suður-Afríku.

Sú ákvörðun skipuleggjenda að fela fyrirtæki í eigu suður-afrísks stjórnmálamanns að framleiða Zakumi-fígúrur í verksmiðju í Kína olli nokkru uppnámi í Suður-Afríku, þar sem réttara þótti að nota mótið til atvinnusköpunar heima fyrir.

Knattspyrnuvellir

[breyta | breyta frumkóða]
Jóhannesarborg
Soccer City
Heildarfjöldi: 91,141
Durban
Moses Mabhida Stadium
Heildarfjöldi: 70,000
Höfðaborg
Cape Town Stadium
Heildarfjöldi: 69,070
Jóhannesarborg
Ellis Park Stadium
Heildarfjöldi: 62,567
Polokwane
Peter Mokaba Stadium
Heildarfjöldi: 46,000
Rustenburg
Royal Bafokeng Stadium
Heildarfjöldi: 44,530
Nelspruit
Mbombela Stadium
Heildarfjöldi: 43,589
Pretoría Elísabetarhöfn
Loftus Versfeld Stadium Nelson Mandela Bay Stadium
Heildarfjöldi: 51,760 Heildarfjöldi: 48,000
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2010 (Suður-Afríka)
Bloemfontein
Free State Stadium
Heildarfjöldi: 48,000

Riðlakeppnin

[breyta | breyta frumkóða]

Keppt var í átta riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit.

Líkt og fjórum árum fyrr léku heimamenn í opnunarleik keppninnar, þar sem Suður-Afríka og Mexíkó skildu jöfn, 1:1. Síðar sama dag gerðu Úrúgvæ og Frakkland markalaust jafntefli. Allt logaði í deilum innan franska landsliðshópsins og lið þeirra hrundi gjörsamlega. Í næsta leik töpuðu Frakkar fyrir Mexíkó og loks fyrir heimamönnum í síðustu umferðinni. Sá sigur dugði þó gestgjöfunum ekki áfram, því markatala þeirra var slæm eftir 3:0 tap fyrir toppliði Úrúgvæ. Suður-Afríka varð því fyrsta gestgjafaþjóðin í sögunni sem mistókst að komast upp úr riðlakeppni.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Úrúgvæ 3 2 1 0 4 0 +4 7
2 Mexíkó 3 1 1 0 3 2 +1 4
3 Suður-Afríka 3 1 1 0 3 5 -2 4
4 Frakkland 3 0 1 2 1 4 -3 1
11. júní 1998
Suður-Afríka 1-1 Mexíkó Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 84.490
Dómari: Ravshan Irmatov
Tshabalala 55 Márquez 79
11. júní 1998
Úrúgvæ 0-0 Frakkland Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 64.100
Dómari: Yuichi Nishimura
16. júní 1998
Suður-Afríka 0-3 Úrúgvæ Loftus Versfeld leikvangurinn, Pretoríu
Áhorfendur: 42.658
Dómari: Massimo Busacca
Forlán 24, 80, Á. Pereira 90+5
17. júní 1998
Frakkland 0-2 Mexíkó Peter Mokaba leikvangurinn, Polokwane
Áhorfendur: 35.370
Dómari: Khalil Al Ghamdi
Hernández 64, Blanco 79
22. júní 1998
Úrúgvæ 1-0 Mexíkó Royal Bafokeng leikvangurinn, Rustenburg
Áhorfendur: 33.425
Dómari: Viktor Kassai
Suárez 43
22. júní 1998
Suður-Afríka 2-1 Frakkland Free State leikvangurinn, Bloemfontein
Áhorfendur: 39.415
Dómari: Óscar Ruiz
Khumalo 20, Mphela 37 Malouda 70

Argentína var annað tveggja liða til að klára sinn riðil á fullu húsi stiga. Sigur heimamanna frá Suður-Kóreu á Grikkjum reyndist að lokum tryggja þeim hitt sætið í útsláttarkeppninni. Nígería olli vonbrigðum og lauk keppni með eitt stig.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Argentína 3 3 0 0 7 1 +6 9
2 Suður-Kórea 3 2 1 0 5 6 -1 4
3 Grikkland 3 1 0 2 2 5 -3 3
4 Nígería 3 0 1 2 3 5 -2 1
12. júní 1998
Suður-Kórea 2-0 Grikkland Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Elísabetarhöfn
Áhorfendur: 31.513
Dómari: ichael Hester
Lee Jung-soo 7, Park Ji-sung 52
12. júní 1998
Argentína 1-0 Nígería Ellis Park leikvangurinn, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 55.686
Dómari: Wolfgang Stark
Heinze 6
17. júní 1998
Argentína 4-1 Suður-Kórea Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 82.174
Dómari: Frank De Bleeckere
Park Chu-young 17 (sjálfm.), Higuaín 33, 76, 80 Lee Chung-yong 45+1
17. júní 1998
Grikkland 2-1 Nígería Free State leikvangurinn, Bloemfontein
Áhorfendur: 31.593
Dómari: Óscar Ruiz
Salpingidis 44, Torosidis 71 Uche 16
22. júní 1998
Nígería 2-2 Suður-Kórea Moses Mabhida leikvangurinn, Durban
Áhorfendur: 61.874
Dómari: Olegário Benquerença
Uche 12, Yakubu 69 Lee Jung-soo 38, Lee Chung-yong 49
22. júní 1998
Grikkland 0-2 Argentína Peter Mokaba leikvangurinn, Polokwane
Áhorfendur: 38.891
Dómari: Ravshan Irmatov
Demichelis 77, Palermo 89

Það var stutt milli hláturs og gráturs í C-riðli, þar sem öll liðin áttu möguleika á að komast áfram fyrir lokaumferðina. Þegar fáeinar sekúndur voru til leiksloka virtust Englendingar og Slóvenar með pálmann í höndunum, en sigurmark Bandaríkjamanna á Alsír í uppbótartíma kom þeim í efsta sætið en Slóvenar sátu eftir með sárt ennið.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Bandaríkin 3 1 2 0 4 3 +1 5
2 England 3 1 2 0 2 1 +1 5
3 Slóvenía 3 1 1 0 3 3 0 4
4 Alsír 3 0 1 2 0 2 -2 1
12. júní 1998
England 1-1 Bandaríkin Royal Bafokeng leikvangurinn, Rustenburg
Áhorfendur: 38.646
Dómari: Carlos Simon
Gerrard 4 Dempsey 40
13. júní 1998
Alsír 0-1 Slóvenía Peter Mokaba leikvangurinn, Polokwane
Áhorfendur: 30.325
Dómari: Carlos Batres
Koren 79
18. júní 1998
Slóvenía 2-2 Bandaríkin Ellis Park leikvangurinn, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 45.573
Dómari: Koman Coulibaly
Birsa 13, Ljubijankić 42 Donovan 48, Bradley 82
18. júní 1998
Alsír 0-1 England Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 64.100
Dómari: Ravshan Irmatov
23. júní 1998
Slóvenía 0-1 England Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Elísabetarhöfn
Áhorfendur: 36.893
Dómari: Wolfgang Stark
Defoe 23
23. júní 1998
Alsír 0-1 Bandaríkin Loftus Versfeld leikvangurinn, Pretoría
Áhorfendur: 35.827
Dómari: Frank De Bleeckere
Donovan 90+1

Miklar vonir voru bundnar við afrísku liðin á fyrsta heimsmeistaramótinu sem fram fór í heimsálfunni. Einungis Gana stóð undir væntingum og komst áfram úr strembnum riðli, þar sem Þjóðverjar nældu í toppsætið. Til þess þurftu þó Ástralir, sem voru nálega fallnir úr keppni, að spilla fyrir Serbum með því að vinna þá í lokaleiknum.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Þýskaland 3 2 0 1 5 1 +4 6
2 Gana 3 1 1 1 2 2 0 4
3 Ástralía 3 1 1 1 2 6 -3 4
4 Serbía 3 1 0 2 2 3 -1 3
13. júní 1998
Serbía 0-1 Gana Loftus Versfeld leikvangurinn, Pretoría
Áhorfendur: 38.833
Dómari: Héctor Baldassi
Gyan 85
13. júní 1998
Þýskaland 4-0 Ástralía Moses Mabhida leikvangurinn, Durban
Áhorfendur: 62.660
Dómari: Marco Rodríguez
Podolski 8, Klose 26, Müller 68, Cacau 70
18. júní 1998
Þýskaland 0-1 Serbía Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Elísabetarhöfn
Áhorfendur: 38.294
Dómari: Undiano Mallenco
Jovanović 38
19. júní 1998
Gana 1-1 Ástralía Royal Bafokeng leikvangurinn, Rustenburg
Áhorfendur: 34.812
Dómari: Roberto Rosetti
Gyan 25 Holman 11
23. júní 1998
Gana 0-1 Þýskaland Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 83.391
Dómari: Carlos Simon
Özil 60
19. júní 1998
Ástralía 2-1 Serbía Mbombela leikvangurinn, Nelspruit
Áhorfendur: 37.836
Dómari: Jorge Larrionda
Cahill 69, Holman 73 Pantelić 84

Kamerún varð ásamt liði Norður-Kóreu það eina sem fór stigalaust frá mótinu. Hollendingar unnu alla þrjá leiki sína og varð lokaviðureign Dana og Japana því hreinn úrslitaleikur um hitt sætið í útsláttarkeppninni. Japanir höfðu betur, 3:1.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Holland 3 3 0 0 5 1 +4 9
2 Japan 3 2 0 1 4 2 +2 6
3 Danmörk 3 1 0 2 3 6 -3 3
4 Kamerún 3 0 0 3 2 5 -3 0
14. júní 1998
Holland 2-0 Danmörk Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 83.465
Dómari: Stéphane Lannoy
Agger 46 (sjálfsm.), Kuyt 85
14. júní 1998
Japan 1-0 Kamerún Free State leikvangurinn, Bloemfontein
Áhorfendur: 30.620
Dómari: Olegário Benquerença
Honda 39
19. júní 1998
Holland 1-0 Japan Moses Mabhida leikvangurinn, Durban
Áhorfendur: 62.010
Dómari: Héctor Baldassi
Sneijder 53
19. júní 1998
Kamerún 1-2 Danmörk Loftus Versfeld leikvangurinn, Pretoría
Áhorfendur: 38.074
Dómari: Jorge Larrionda
Eto'o 10 Bendtner 33, Rommedahl 61
24. júní 1998
Danmörk 1-3 Japan Royal Bafokeng leikvangurinn, Rustenburg
Áhorfendur: 27.967
Dómari: Jerome Damon
Tomasson 81 Honda 17, Endō 30, Okazaki 87
24. júní 1998
Kamerún 1-2 Holland Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 63.093
Dómari: Pablo Pozo
Eto'o 65 Van Persie 36, Huntelaar 83

Heimsmeistarar Ítala voru taldir frekar heppnir þegar dregið var í riðla. Annað átti eftir að koma á daginn. Jafntefli gegn Paragvæ í fyrsta leik þóttu ásættanleg úrslit. Áfallið reið þó yfir þegar Ítalir gerðu sitt annað jafntefli gegn Nýsjálendingum sem enduðu á að verða eina taplausa liðið í keppninni með þrjú jafntefli. Paragvæ tryggði sér toppsætið með margalausu jafntefli við Nýja-Sjáland í lokaumferðinni á meðan Slóvakar og Ítalir mættust í hreinum úrslitaleik um annað sætið. Það kom í hlut Slóvaka, 3:2, þar sem slóvakíska liðið var sterkara frá upphafi til enda.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Paragvæ 3 1 2 0 3 1 +2 5
2 Slóvakía 3 1 1 1 4 5 -1 4
3 Nýja-Sjáland 3 0 3 0 2 2 0 3
4 Ítalía 3 0 2 1 4 5 -1 2
14. júní 1998
Ítalía 1-1 Paragvæ Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 62.869
Dómari: Benito Archundia
De Rossi 63 Alcaraz 39
15. júní 1998
Nýja-Sjáland 1-1 Slóvakía Royal Bafokeng Stadium, Rustenburg
Áhorfendur: 23.871
Dómari: Jerome Damon
Reidi 90+3 Vittek 50
20. júní 1998
Slóvakía 0-2 Paragvæ Free State leikvangurinn, Bloemfontein
Áhorfendur: 26.643
Dómari: Eddy Maillet
Vera 27, Riveros 86
20. júní 1998
Ítalía 1-1 Nýja-Sjáland Mbombela leikvangurinn, Nelspruit
Áhorfendur: 38.229
Dómari: Carlos Batres
Iaquinta 29 Smeltz 7
24. júní 1998
Slóvakía 3-2 Ítalía Ellis Park leikvangurinn, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 53.412
Dómari: Howard Webb
Vittek 25, 73, Kopúnek 88 Di Natale 81, Quagliarella 90+2
24. júní 1998
Paragvæ 0-0 Nýja-Sjáland Peter Mokaba leikvangurinn, Polokwane
Áhorfendur: 34.850
Dómari: Yuichi Nishimura

Norður-Kóreumenn stóðu rækilega uppi í hárinu á Brasilíu í fyrsta leik sínum á HM frá því í Englandi 1966. Lokatölur urðu 2:1 fyrir Brasilíu. Þessi góða frammistaða fyllti stjórnvöld í Norður-Kóreu bjartsýni og þau ákváðu að heimila fyrstu beinu knattspyrnuútsendinguna í landinu á móti Portúgal í næsta leik. Þar fékk liðið hins vegar á baukinn gegn Portúgal og tapaði 7:0. Hin góða markatala Portúgala gerði það að verkum að liðinu dugði markalaust stórmeistarajafntefli í lokaleiknum til Brasilíu til að tryggja sér annað sætið á eftir Suður-Ameríkumönnunum og skildu þar með Fílabeinsströndina eftir með sárt ennið.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Brasilía 3 2 1 0 5 2 +3 7
2 Portúgal 3 1 2 0 7 0 +7 5
3 Fílabeinsströndin 3 1 1 1 4 3 +1 4
4 Norður-Kórea 3 0 0 3 1 12 -11 0
15. júní 1998
Fílabeinsströndin 0-0 Portúgal Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Elísabetarhöfn
Áhorfendur: 37.034
Dómari: Jorge Larrionda
15. júní 1998
Brasilía 2-1 Norður-Kórea Ellis Park leikvangurinn, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 54.331
Dómari: Viktor Kassai
Maicon 55, Elano 72 Ji Yun-nam 89
20. júní 1998
Brasilía 3-1 Fílabeinsströndin Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 84.455
Dómari: Stéphane Lannoy
Luís Fabiano 25, 50, Elano 62 Drogba 79
21. júní 1998
Portúgal 7-0 Norður-Kórea Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 63.644
Dómari: Pablo Pozo
Meireles 29, Simão 53, Almeida 56, Tiago 60, 89, Liédson 81, Ronaldo 87
25. júní 1998
Portúgal 0-0 Brasilía Moses Mabhida leikvangurinn, Durban
Áhorfendur: 62.712
Dómari: Benito Archundia
25. júní 1998
Norður-Kórea 0-3 Fílabeinsströndin Mbombela leikvangurinn, Nelspruit
Áhorfendur: 34.763
Dómari: Alberto Undiano Mallenco
Y. Touré 14, Romaric 20, Kalou 82

Svisslendingar fengu óskabyrjun þegar þeir sigruðu Spánverja í upphafsleik riðilsins á meðan Síle lagði Hondúras. Spánverjar hrukku þó í gang og unnu tvo næstu leiki. Hondúras hafnaði á botninum en náði þó að setja strik í reikninginn hjá Svisslendingum með því að gera jafntefli við þá í lokaleiknum og bæði lið sátu eftir í riðlinum.

Sæti Lið L U J T Sk Fe M.munur Stig
1 Spánn 3 2 0 1 4 2 +2 6
2 Síle 3 2 0 1 3 2 +1 6
3 Sviss 3 1 1 1 1 1 0 4
4 Hondúras 3 0 1 2 0 3 -3 1
16. júní 1998
Hondúras 0-1 Síle Mbombela leikvangurinn, Nelspruit
Áhorfendur: 32.664
Dómari: Eddy Maillet
Beausejour 34
16. júní 1998
Spánn 0-1 Sviss Moses Mabhida Stadium, Durban
Áhorfendur: 62.453
Dómari: Howard Webb
Fernandes 52
21. júní 1998
Síle 1-0 Sviss Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Elísabetarhöfn
Áhorfendur: 34.872
Dómari: Khalil Al Ghamdi
González 75
21. júní 1998
Spánn 2-0 Hondúras Ellis Park leikvangurinn, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 54.386
Dómari: Yuichi Nishimura
Villa 17, 51
25. júní 1998
Síle 1-2 Spánn Loftus Versfeld leikvangurinn, Pretoría
Áhorfendur: 41.958
Dómari: Marco Rodríguez
Millar 47 Villa 24, Iniesta 37
25. júní 1998
Sviss 0-0 Hondúras Free State leikvangurinn, Bloemfontein
Áhorfendur: 28.042
Dómari: Héctor Baldassi

Útsláttarkeppni

[breyta | breyta frumkóða]

Tvö efstu liðin úr hverjum forriðli fóru áfram í 16-liða úrslit sem leikin voru með útsláttarfyrirkomulagi.

16-liða úrslit

[breyta | breyta frumkóða]

Fjögur suður-amerísk lið komust áfram í fjórðungsúrslitin, en það fimmta, Síle, tapaði fyrir Brasilíu. Tap Englendinga gegn Þjóðverjum var það stærsta í sögu þeirra í úrslitakeppni HM. Gana varð eina afríska liðið til að komast upp úr 16-liða úrslitunum að þessu sinni og einungis það þriðja í sögunni. Mark Carlos Tevez fyrir Argentínu, sem ranglega fékk að standa og þrumufleygur frá Frank Lampard sem ekki var dæmt mark þrátt fyrir að boltinn hefði greinilega farið yfir marklínuna leiddu til fáheyrðrar afsökunarbeiðni frá Sepp Blatter og áttu stóran þátt í að þróa marklínutækni og myndbandsdómgæslu.

26. júní 2010
Úrúgvæ 2:1 Suður-Kórea Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Elísabetarhöfn
Áhorfendur: 30.597
Dómari: Wolfgang Stark, Þýskalandi
Suárez 8, 80 Lee Chung-yong 68
26. júní 2010
Bandaríkin 1:2 (e.framl.) Gana Royal Bafokeng leikvangurinn, Rustenburg
Áhorfendur: 34.976
Dómari: Viktor Kassai, Ungverjalandi
Donovan 62 (vítasp.) Boateng 5, Gyan 93
27. júní 2010
Þýskaland 4:1 England Free State leikvangurinn, Bloemfontein
Áhorfendur: 40.510
Dómari: Jorge Larrionda, Úrúgvæ
Klose 20, Podolski 32, Müller 67, 70 Upson 37
27. júní 2010
Argentína 3:1 Mexíkó Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 84.377
Dómari: Roberto Rosetti, Ítalíu
Tevez 26, 52, Higuaín 33 Hernández 71
28. júní 2010
Holland 2:1 Slóvakía Moses Mabhida leikvangurinn, Durban
Áhorfendur: 61.962
Dómari: Alberto Undiano Mallenco, Spáni
Robben 18, Sneijder 84 Vittek 90+4 (vítasp.)
28. júní 2010
Brasilía 3:0 Síle Ellis Park leikvangurinn, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 54.096
Dómari: Howard Webb, Englandi
Juan 34, Fabiano 38, Robinho 59
29. júní 2010
Paragvæ 0:0 (5:3 e.vítak.) Japan Loftus Versfeld leikvangurinn, Pretoríu
Áhorfendur: 36.742
Dómari: Frank De Bleeckere, Belgíu
29. júní 2010
Spánn 1:0 Portúgal Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 62.955
Dómari: Héctor Baldassi, Argentínu
Villa 63

Fjórðungsúrslit

[breyta | breyta frumkóða]

Hollendingar lentu undir gegn Brasilíumönnum en sneru leiknum sér í vil með tveimur mörkum Wesley Sneijder. Augu margra Afríkubúa voru á liði Gana sem freistaði þess að komast í undanúrslit fyrst Afríkuliða. Á lokasekúndum framlengingar var Luis Suárez rekinn af velli fyrir að slá knöttinn á marklínu, Gana misnotaði vítaspyrnuna sem dæmd var og Úrúgvæ hafði að lokum betur í vítaspyrnukeppni. Argentínumönnum var kippt niður á jörðina með 4:0 skelli á móti Þjóðverjum. Spánn varð svo síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum. Eitt mark undir lokinn dugði til sigurs í bragðdaufum leik gegn Paragvæ.

2. júlí 2010
Holland 2:1 Brasilía Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Elísabetarhöfn
Áhorfendur: 40.186
Dómari: Yuichi Nishimura, Japan
Sneijder 53, 68 Robinho 10
2. júlí 2010
Úrúgvæ 1:1 (5:3 e.vítake.) Gana Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 84.017
Dómari: Olegário Benquerença, Portúgal
Forlán 55 Muntari 45+2
3. júlí 2010
Argentína 0:4 Þýskaland Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 64.100
Dómari: Ravshan Irmatov, Úsbekistan
Müller 33, Klose 68, 89, Friedrich 74
3. júlí 2010
Spánn 1:0 Paragvæ Ellis Park leikvangurinn, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 55.359
Dómari: Carlos Batres, Gvatemala
Villa 83

Undanúrslit

[breyta | breyta frumkóða]

Hollendingar unnu sigur á Úrúgvæ í hörkuleik, 3:2. Aðeins eitt mark leit dagsins ljós í hinum undanúrslitaleiknum þar sem Carles Puyol kom Spánverjum í sinn fyrsta úrslitaleik. Í fyrsta sinn í sögunni fór því fram úrslitaleikur án þess að Argentína, Ítalía, Brasilía eða Þýskaland tækju þátt.

6. júlí 2010
Úrúgvæ 2-3 Holland Höfðaborgarleikvangurinn, Höfðaborg
Áhorfendur: 62.479
Dómari: Ravshan Irmatov, Úsbekistan
Forlán 41, M. Pereira 90+2 Van Bronckhorst 18, Sneijder 70, Robben 73
7. júlí 2010
Spánn 1:0 Þýskaland Moses Mabhida leikvangurinn, Durban
Áhorfendur: 60.960
Dómari: Viktor Kassai, Ungverjalandi
Puyol 73

Bronsleikur

[breyta | breyta frumkóða]

Leikurinn um þriðja sætið var fjörlegur, þar sem bæði lið komust yfir áður en Þjóðverjar knúðu fram 3:2 sigur. Thomas Müller og Diego Forlán náðu báðir að skora í keppninni um gullskóinn. Þýskaland hefur oftast allra hafnað í 3ja sæti á HM (fjórum sinnum) en Úrúgvæ á metið yfir að enda í fjórða sæti (þrisvar sinnum).

10. júlí 2010
Úrúgvæ 2-3 Þýskaland Nelson Mandela Bay leikvangurinn, Port Elizabeth
Áhorfendur: 36.254
Dómari: Benito Archundia, Mexíkó
Cavani 28, Forlán 51 Müller 19, Jansen 56, Khedira 82

Úrslitaleikur

[breyta | breyta frumkóða]

Viðureign Spánverja og Hollendinga var í járnum og einkenndist af grófum varnarleik, þar sem fjórtán gul spjöld voru gefin og Hollendingar léku manni færri síðustu tíu mínúturnar, en áður höfðu mest verið gefin sex spjöld í úrslitaleik. Bæði lið fengu færi til að skora í venjulegum leiktíma. Allt stefndi þó í vítaspyrnukeppni þar til Andrés Iniesta skoraði sigurmarkið á 116. mínútu. Spánverjar urðu þar með fyrsta liðið til að heimsmeistarar sem ríkjandi Evrópumeistarar frá því að Vestur-Þjóðverjar unnu það afrek árið 1974.

11. júlí 2010
Holland 0:1 (e. framl.) Spánn Soccer City, Jóhannesarborg
Áhorfendur: 84.490
Dómari: Howard Webb, Englandi
Iniesta 116

Markahæstu leikmenn

[breyta | breyta frumkóða]

Thomas Müller hreppti gullskó FIFA með fimm mörk skoruð. Þrír aðrir leikmenn skoruðu jafn mörg mörk en áttu ekki jafnmargar stoðsendingar og Müller. Alls skiptu 98 leikmenn á milli sín 145 mörkum, tvö þeirra voru sjálfsmörk.

5 mörk
4 mörk
3 mörk