Þorleifur Jónsson
Útlit
Þorleifur Jónsson (21. ágúst 1864 – 18. júní 1956) var alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins á árunum 1922 til 1928.
Þorleifur fæddist í Hólum í Hornafirði og átti heima þar til æviloka. Hann var hreppstjóri í Hornafirði frá 1890 til 1944 og gegndi oftsinnis sýslumannsstörfum í Austur-Skaftafellssýslu.
Hann var faðir Þorbergs Þorleifssonar alþingismanns, Jóns Þorleifssonar listmálara og Páls Þorleifssonar prófasts á Skinnastað. Móðurbróðir Þorleifs var Benedikt Þorleifsson, bóndi á Hala, afi Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar sem fjallar um hann í Suðursveitabókunum.[1]
Árið 1954 kom út ævisaga Þorleifs, rituð af honum sjálfum.
Fyrirrennari: Sveinn Ólafsson |
|
Eftirmaður: Tryggvi Þórhallsson |
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða] Þessi stjórnmálagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
- ↑ Þorleifur Jónsson (í Hólum) (1954). Þorleifur í Hólum. Ævisaga. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar. bls. 12.