Albert Camus
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | Albert Camus |
Fæddur: | 7. eða 8. nóvember 1913 |
Látinn: | 4. janúar 1960 (46 ára) |
Skóli/hefð: | Meginlandsheimspeki |
Helstu ritverk: | Útlendingurinn |
Helstu viðfangsefni: | Tilvistarstefna |
Áhrifavaldar: | Friedrich Nietzsche, Jean-Paul Sartre, Victor Hugo, George Orwell |
Hafði áhrif á: | Jean-Paul Sartre |
Albert Camus (7. eða 8. nóvember 1913 – 4. janúar 1960) var franskur höfundur og heimspekingur, hann er oft kenndur við tilvistarstefnuna þótt svo að hafa kallað sjálfan sig fáránleikasinna. Hann var næst yngsti nóbelsverðlaunahafi fyrir bókmenntir þegar hann hlaut þau árið 1957 (áður var sá yngsti Rudyard Kipling). Hann var einnig skammlífastur af handhöfum nóbelsverðlauna fyrir bókmenntir og er það enn í dag.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Camus fæddist við sára fátækt í Alsír og missti hann föður sinn í fyrri heimsstyrjöldinni. Með aðstoð leiðbeinanda að nafni Louis Germain komst hann í Háskóla Alsír. Hann greindist snemma með berkla og gat af þeim sökum ekki fengið að kenna eins og hann óskaði, einnig varð hann að hætta íþróttaiðkun sinni sem hann hafði stundað af kappi. Hann útskrifaðist með BA í heimspeki og því sem samsvarar M.A. í heimspeki með lokaritgerð um Plótínos.
Í síðari heimsstyrjöldinni tók hann fyrst afstöðu sem friðarsinni (hann hafði ekki verið kvaddur í herinn vegna berkla), en eftir að verða vitni af aftöku Gabriel Peri, snéri hann blaðinu við og gekk í frönsku mótspyrnuna. Á stríðsárunum tók hann þátt í útgáfu áróðursrits að nafni Combat og gaf út tvær af sínum frægustu bókum, Le Mythe de Sisyphe og L'Étranger.
Hann dó árið 1960 í bílslysi nálægt Sens. Hann lét eftir sig tvíburadætur að nafni Catherine and Jean, þær eiga höfundarrétt að verkum hans enn í dag.
Þekktustu verk
[breyta | breyta frumkóða]Skáldsögur
[breyta | breyta frumkóða]- Útlendingurinn (L'Étranger) (1942)
- Plágan (La Peste) (1947)
- Fallið (La Chute) (1956)
- La Mort heureuse (eldri útgáfa af Útlendingurinn, útgefið eftir dauða árið 1970)
- Fremmandamaðurinn (Le premier homme) (óklárað rit, útgefið eftir dauða árið 1995)
Smásögur
[breyta | breyta frumkóða]- L'exil et le royaume (1957)
- Gesturinn
Óskálduð ritverk
[breyta | breyta frumkóða]- L'envers et l'endroit (1937)
- Combat (1946)
- Le Mythe de Sisyphe (1942)
- L'Homme révolté (1951)
- Carnets, mai 1935 -- fevrier 1942 (1962)
- Carnets II: janvier 1942-mars 1951 (1965)
- Albert Camus, Maria Casarès. Correspondance inédite (1944-1959). Édition de Béatrice Vaillant. Avant-propos de Catherine Camus. Collection Blanche, Gallimard. Parution : 09-11-2017.
Leikrit
[breyta | breyta frumkóða]- Caligula (sett á svið 1945, skrifað 1938)
- Le Malentendu (1944)
- L'État de siège (1948)
- Les Justes (1949)
Safnverk
[breyta | breyta frumkóða]- Écrits de jeunesse d'Albert Camus
- Lettres à un ami allemand (1961 - Safn ritgerða valin af Comte)
Kvikmyndir
[breyta | breyta frumkóða]- Luchino Visconti kvikmyndaði Útlendinginn árið 1967, einn af leikurunum var Marcello Mastroianni.
- Luis Puenzo og Felix Monti kvikmynduðu nútímavædda útgáfu af Plágunni árið 1991. Einn af leikurunum var William Hurt.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Camus; 1. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1964
- Camus; 2. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1964
- Bókmenntaverðlaun Nóbels (1957) Geymt 15 júní 2006 í Wayback Machine
- Tilvistarstefnan og Albert Camus Geymt 29 júní 2006 í Wayback Machine
- Um „L'Homme révolté“ hjá Salon.com Geymt 28 janúar 2007 í Wayback Machine
- The Absurd Hero & The Ruthless Critic Geymt 26 október 2006 í Wayback Machine
- "Accidental Friends" the story of the Camus-Sartre friendship and very public breakup Geymt 19 mars 2005 í Wayback Machine
- http://www.romanistik.info/camus.html
- Camus's Choice: An Existential (Humanist) Antiplot Geymt 18 júní 2006 í Wayback Machine
- Interview with daughter Catherine - 3AM
- Another interview with daughter Catherine - Spike
- The Myth of Sysiphus Geymt 27 ágúst 2005 í Wayback Machine
- Biography and quotes of Albert Camus Geymt 28 júní 2006 í Wayback Machine
- Albert Camus Society UK
- Société des Études Camusiennes Geymt 6 janúar 2018 í Wayback Machine
- Fonds Albert Camus - Cité du livre d'Aix en Provence