Siv Friðleifsdóttir
Siv Friðleifsdóttir (SF) | |||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Formaður félagsmálanefndar | |||||||||||||||||||||
Í embætti 2004–2006 | |||||||||||||||||||||
Umhverfisráðherra | |||||||||||||||||||||
Í embætti 1999–2004 | |||||||||||||||||||||
Heilbrigðisráðherra | |||||||||||||||||||||
Í embætti 2006–2007 | |||||||||||||||||||||
Þingflokksformaður | |||||||||||||||||||||
Í embætti 2007–2009 | |||||||||||||||||||||
Alþingismaður | |||||||||||||||||||||
| |||||||||||||||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||||||||||||||
Fædd | 10. ágúst 1962 Ósló | ||||||||||||||||||||
Nefndir | Allsherjar- og menntamálanefnd, Íslandsdeild Norðurlandaráðs | ||||||||||||||||||||
Vefsíða | http://www.althingi.is/siv | ||||||||||||||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Siv Friðleifsdóttir (f. í Ósló 10. ágúst 1962), skírð Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir, er fyrrum alþingismaður Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Siv er hálf-norsk.
Siv sat á Alþingi frá árinu 1995 til 2013; fyrst fyrir Reykjaneskjördæmi 1995-2003 og fyrir Suðvesturkjördæmi frá 2003. Hún var umhverfisráðherra 1999-2004 og heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra 2006-2007. Siv var þingflokksformaður Framsóknarflokksins 2007-2009.
Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1982 og BS-prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1985. Siv starfaði hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og Sjúkraþjálfun Reykjavíkur áður en hún settist á þing.
Siv var bæjarfulltrúi Neslistans á Seltjarnarnesi á árunum 1990-1998 og varð fyrst kvenna formaður Sambands ungra framsóknarmanna árið 1990 og gegndi formennsku í tvö ár, til 1992.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Heimasíða Sivjar Geymt 5 febrúar 2007 í Wayback Machine
- Æviágrip á heimasíðu Alþingis
- Siv Friðleifsdóttir; grein í DV 2002
- Viðtal við Siv Friðleifsdóttur Geymt 10 mars 2007 í Wayback Machine, í tímaritinu Reykjavík Grapevine
Fyrirrennari: Guðmundur Bjarnason |
|
Eftirmaður: Sigríður Anna Þórðardóttir | |||
Fyrirrennari: Jón Kristjánsson |
|
Eftirmaður: Guðlaugur Þór Þórðarson |