Suðurnesjabær
Suðurnesjabær | |
---|---|
Land | Ísland |
Kjördæmi | Suðurkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Sandgerði (íb. 1874) Garður (íb. 1744) |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Magnús Stefánsson |
Flatarmál | |
• Samtals | 82 km2 |
• Sæti | 55. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 3.897 |
• Sæti | 16. sæti |
• Þéttleiki | 47,52/km2 |
Póstnúmer | 245–250 |
Sveitarfélagsnúmer | 2510 |
Vefsíða | https://www.sudurnesjabaer.is |
Suðurnesjabær er sveitarfélag á Reykjanesskaga. Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Garður sameinuðist í eitt sveitarfélag þann 10. júní 2018 eftir að sameining hafði verið samþykkt í kosningum í báðum sveitarfélögunum. Í nóvember 2018 voru íbúar sveitarfélagsins beðnir um að kjósa nafn á sameinaða sveitarfélagið. Nafnið Suðurnesjabær var vinsælast og hlaut 75,3% atkvæða.[1]
Samanlagður íbúafjöldi Sandgerðis og Garðs var 3.374 þann 1. janúar 2018 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands og er nýja sveitarfélagið því næst mannflest á Suðurnesjum á eftir Reykjanesbæ. Í Grindavík voru á sama tíma 3.323 svo að fjöldinn er nánast sá sami.
Bæjarstjóri var ráðinn á fundi bæjarstjórnar þann 18. júlí 2018, Magnús Stefánsson, sem áður gegndi stöðu bæjarstjóra í Sveitarfélaginu Garði, en Sigrún Árnadóttir, fráfarandi bæjarstjóri Sandgerðis sótti ekki um. Magnús tók við embætti þann 15. ágúst.[2]