Björt framtíð
Björt framtíð | |
---|---|
Formaður | Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir |
Stofnár | 2012 |
Höfuðstöðvar | Austurstræti 8–10 |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Frjálslyndi umhverfisvernd víðsýni Evrópustefna |
Einkennislitur | fjólublár |
Listabókstafur | A |
Vefsíða | bjortframtid.is[a] |
^a Afrit síðu frá 2018 á vefsafni. Lénið er nú í eigu ótengdra aðila. |
Björt framtíð er íslenskur stjórnmálaflokkur sem að var stofnaður árið 2012. Að stofnun flokksins komu Guðmundur Steingrímsson, sem áður hafði verið í Samfylkingunni og Framsóknarflokknum og Heiða Kristín Helgadóttir, sem hefur komið að Besta flokknum.[1] Listabókstafur Bjartrar framtíðar er A.[2] Flokkurinn var með sæti á þingi frá 2013 til 2017 en missti alla sína þingmenn í alþingiskosningum 2017. Flokkurinn fékk einnig fulltrúa kjörna í sjö sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum 2014. Í sveitastjórnarkosningunum árið 2018 bauð Björt framtíð aðeins fram í Kópavogi í samstarfi með Viðreisn. Lítið sem ekkert starf hefur farið fram í flokknum síðan 2019 og var listabókstafur flokksins lagður niður árið 2021, þrátt fyrir að flokkurinn sé ennþá til.
Stofnun
[breyta | breyta frumkóða]Björt framtíð bauð í fyrsta skipti fram í Alþingiskosningunum 2013 og fékk 8,2% og 6 þingmenn en þá var Guðmundur Steingrímsson formaður. Veturinn 2013 sameinaðist Besti flokkurinn Bjartri framtíð. Guðmundur hætti sem formaður árið 2015, meðal annars vegna slæms gengis í skoðanakönnunum.[3] Óttar Proppé var sjálfkjörinn formaður flokksins í september 2015.[4] Brynhildur S. Björnsdóttir var sömuleiðis kjörin stjórnarformaður Bjartrar framtíðar í september 2015.[5]
Ríkisstjórnarsamstarf
[breyta | breyta frumkóða]Í alþingiskosningum 2016 hlaut Björt framtíð 7,2% atkvæða og fékk fjóra menn kjörna. Björt framtíð myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokkinum og Viðreisn í janúar 2017.[6] Í september sama ár ákvað Björt framtíð að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu þar sem þau töldu Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, hafa gerst sekan um trúnaðarbrest þegar hann upplýsti ríkisstjórnina ekki um bréf sem faðir hans hafði skrifað og varðaði uppreisn æru dæmds barnaníðings.[7][8] Í kjölfarið var þing rofið og kosið á ný í október 2017. Björt framtíð hlaut 1,2% greiddra atkvæða í kosningunum og féll af þingi. Óttarr Proppé hætti sem formaður flokksins þremur dögum eftir kosningarnar[9] og Björt Ólafsdóttir tók við formennsku í flokknum í nóvember.[10]
Staðan í dag
[breyta | breyta frumkóða]Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir tók síðar við formennskunskunni árið 2018.[11] Flokkurinn bauð ekki fram neina lista í sveitarstjórnarkosningum 2018 nema í Kópavogi þegar að þau voru með Viðreisn í einn sameinaðan lista, sem að hét BF-Viðreisn, en listinn bauð einungis fram undir merkjum Viðreisnar í sveitarstjórnarkosningunum 2022. Árið 2019 lýsti Theodóra Sigurlaug, formaður flokksins yfir því að það væru uppi hugmyndir um að flokkurinn myndi sameinast Viðreisn, en það hefur ekki ennþá gerst.[11] Flokkurinn bauð ekki fram neina lista í þingkosningunum 2021 en flokkurinn er samt ennþá með skráðan listabókstaf.
Formenn
[breyta | breyta frumkóða]Formaður | Kjörinn | Hætti | Aldur við embættistöku | |
---|---|---|---|---|
Guðmundur Steingrímsson | 2013 | 2015 | 39 | |
Óttar Proppé | 2015 | 2017 | 46 | |
Björt Ólafsdóttir | 2017 | 2018 | 34 | |
Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir | 2018 | Enn í embætti | 49 |
Varaformenn
[breyta | breyta frumkóða]Varaformaður | Kjörinn | Hætti |
---|---|---|
Heiða Kristín Helgadóttir | 2013 | 2015 |
Björt Ólafsdóttir | 2015 | 2017 |
Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir | 2017 | 2018 |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ http://www.visir.is/bjort-framtid-stofnud-i-dag/article/2012120209520
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. október 2016. Sótt 29. október 2016.
- ↑ http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/08/22/haettir_sem_formadur/
- ↑ http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/09/05/ottarr_sjalfkjorinn_formadur/
- ↑ Merkið, af Bjortframtid.is
- ↑ http://www.vb.is/frettir/bjort-framtid-og-vidreisn-samthykkja/134597/?q=Björt%20framtíð
- ↑ Guðmundsdóttir, Auður Ösp (20. febrúar 2024). „„Ég skil að fólki sé misboðið" - Vísir“. visir.is. Sótt 22. febrúar 2024.
- ↑ http://www.ruv.is/frett/rikisstjornin-fallin-og-kosninga-krafist
- ↑ https://kjarninn.is/frettir/2017-10-31-ottarr-proppe-haettur-sem-formadur-bjartrar-framtidar/
- ↑ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/11/25/bjort_nyr_formadur_bjartrar_framtidar/
- ↑ 11,0 11,1 https://www.visir.is/g/20191955114d
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Heimasíða Bjartrar framtíðar Geymt 24 júní 2016 í Wayback Machine
- Björt framtíð með formann og stjórnarformann. Fyrrverandi framsóknarmenn í stjórninni Geymt 24 júní 2016 í Wayback Machine
- Björt framtíð Grein eftir Heiðu Kristínu Helgadóttur og Guðmund Steingrímsson.