Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi 1998
Útlit
Sveitarstjórnarkosningar árið 1998 voru haldnar 23. maí 1998.
Reykjavík
[breyta | breyta frumkóða]Reykjavíkurlistinn hélt meirihluta sínum, hlaut 8 borgarfulltúa og Sjálfstæðisflokkurinn fékk 7. Í framboði: Sjálfstæðisflokkurinn, Reykjavíkurlistinn, Húmanistar (áður Flokkur Mannsins) og Launalistinn.
Sameiningar sveitarfélaga
[breyta | breyta frumkóða]- Sveitarfélagið Árborg varð til við sameiningu 4 sveitarfélaga: Selfossbæjar, Eyrarbakkahrepps, Stokkseyrarhrepps og Sandvíkurhrepps
- Kjalarneshreppur sameinaðist Reykjavíkurborg.
- Borgarbyggð varð til við sameiningu Álftaneshrepps, Borgarbyggðar, Borgarhrepps og Þverárhlíðarhrepps.
- Borgarfjarðarsveit varð til við sameiningu Andakílshrepps, Hálsahrepps, Lundarreykjardalshrepps og Reykholtsdalshrepps.
- Sveitarfélagið Skagafjörður varð til með sameiningu ellefu hreppa: Skefilsstaðahrepps, Sauðárkrókskaupstaðar, Skarðshrepps, Staðarhrepps, Seyluhrepps, Lýtingsstaðahrepps, Rípurhrepps, Viðvíkurhrepps, Hólahrepps, Hofshrepps og Fljótahrepps.