Fara í innihald

Alþingiskosningar 1963

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Alþingiskosningar 1963 voru kosningar til Alþingis Íslands sem haldnar voru 9. júní 1963. Kosningaþátttaka var 91,1%. Í kosningunum hélt Viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks velli með 32ja þingmanna meirihluta. 14. nóvember tók Bjarni Benediktsson við forsætisráðuneytinu af Ólafi Thors og Jóhann Hafstein tók við ráðuneytum Bjarna: dóms- og kirkjumálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti.

Niðurstöður

[breyta | breyta frumkóða]

Niðurstöður kosninganna voru þessar:

Flokkur Formenn Atkvæði % +/- Þingmenn +/-
Alþýðuflokkurinn Emil Jónsson 12.697 14,2 -1 8 -1
Framsókn Eysteinn Jónsson 25.217 28,2 +2,5 19 +2
Sjálfstæðisflokkurinn Bjarni Benediktsson 37.021 41,4 +1,7 24
Alþýðubandalagið Hannibal Valdimarsson 14.274 16,0 9 -1
Óháð framboð í Austurlandskjörd. Einar Ö. Björnsson 143 0,2 0
Alls 89.352 100 60

Forseti Alþingis var kjörinn Birgir Finnsson, Alþýðuflokki.


Fyrir:
Alþingiskosningar 1959 (október)
Alþingiskosningar Eftir:
Alþingiskosningar 1967

Kosningasaga