Fara í innihald

Jacques Chirac

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jacques Chirac
Chirac árið 1997.
Forseti Frakklands
Í embætti
17. maí 1995 – 16. maí 2007
ForsætisráðherraAlain Juppé
Lionel Jospin
Jean-Pierre Raffarin
Dominique de Villepin
ForveriFrançois Mitterrand
EftirmaðurNicolas Sarkozy
Forsætisráðherra Frakklands
Í embætti
20. mars 1986 – 10. maí 1988
ForsetiFrançois Mitterrand
ForveriLaurent Fabius
EftirmaðurMichel Rocard
Í embætti
27. maí 1974 – 26. ágúst 1976
ForsetiValéry Giscard d'Estaing
ForveriPierre Messmer
EftirmaðurRaymond Barre
Persónulegar upplýsingar
Fæddur29. nóvember 1932
París, Frakklandi
Látinn26. september 2019 (86 ára) París, Frakklandi
Stjórnmálaflokkur
Sjá lista
  • PCF (fyrir 1962)
  • UNR (1962–1968)
  • UDR (1968–1976)
  • RPR (1976–2002)
  • UMP (2002–2007)
MakiBernadette de Courcel (g. 1956)
BörnLaurence, Claude
HáskóliInstitut d'études politiques de Paris
École nationale d'administration
Undirskrift

Jacques René Chirac (29. nóvember 1932 – 26. september 2019[1]) var franskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forseti Frakklands. Hann var kosinn í embætti árið 1995 og aftur 2002 en síðara kjörtímabil hans rann út árið 2007. Í krafti embættis síns var hann einnig meðfursti Andorra og stórmeistari Frönsku heiðursfylkingarinnar. Áður var Chirac borgarstjóri Parísar 1977 til 1995 auk þess að gegna embætti forsætisráðherra tvívegis; fyrst 1974 til 1976[2] og aftur 1986 til 1988. Áður en hann náði kjöri sem forseti hafði Chirac boðið sig fram án árangurs í forsetakosningunum árin 1981 og 1988.

Chirac sigraði frambjóðanda Sósíalistaflokksins, Lionel Jospin, í forsetakosningunum árið 1995.[3] Í byrjun forsetatíðar sinnar viðurkenndi Chirac ábyrgð og þátttöku franskra stjórnvalda í Vichy-stjórninni í ofsóknum á gyðingum á meðan á þýska hernáminu stóð í seinni heimsstyrjöldinni.[4] Hann neyddist síðar til að hefja stjórnarsamband við sósíalistana og gera Jospin að forsætisráðherra eftir ósigur hægrimanna í þingkosningum árið 1997. Á kjörtímabilinu var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrárbreytingar þar sem kjörtímbabil forsetans var stytt úr sjö árum í fimm.

Chirac vann endurkjör til forseta árið 2002 í seinni umferð með 82,2 % atkvæða á móti Jean-Marie Le Pen, frambjóðanda frönsku Þjóðfylkingarinnar. Þetta er enn í dag stærsti kosningasigur sem unninn hefur verið í forsetakosningum fimmta franska lýðveldisins. Á seinna kjörtímabili Chirac fóru vinsældir hans nokkuð dalandi en jukust á ný þegar Chirac neitaði að taka þátt í Íraksstríðinu fyrir hönd Frakklands.[5] Hann mælti einnig fyrir því í atkvæðagreiðslu að ný stjórnarskrá fyrir Evrópusambandið yrði samþykkt en hún var að endingu felld. Chirac sóttist ekki eftir þriðja kjörtímabili og settist í helgan stein þegar kjörtímabilinu lauk árið 2007.

Sem fyrrverandi forseti fékk Chirac síðan sæti á stjórnlagaþingi Frakklands og sat þar til ársins 2011, en þá sagði hann sig úr því af heilsufarsástæðum. Í desember sama ár var Chirac dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar vegna spillingarmála sem komu upp frá borgarstjóratíð hans í París.[6]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Kristján Róbert Kristjánsson (26. september 2019). „Jacques Chirac látinn“. RÚV. Sótt 26. september 2019.
  2. ↑ „Jacques Chirac“. Þjóðviljinn. 23. mars 1986. bls. 5.
  3. ↑ Steingrímur Sigurgeirsson (9. maí 1995). „Allt er þegar þrennt er“. Morgunblaðið. bls. 16-17.
  4. ↑ „Chirac viðurkennir aðild Frakka að helförinni“. mbl.is. 19. júlí 1995.
  5. ↑ „Vinsælastur í Bagdad“. Fréttablaðið. 5. október 2003. bls. 24.
  6. ↑ „Jacques Chirac fær tveggja ára dóm“. Vísir. 16. desember 2011.


Fyrirrennari:
Pierre Messmer
Forsætisráðherra Frakklands
(1974 – 1976)
Eftirmaður:
Raymond Barre
Fyrirrennari:
—
Borgarstjóri Parísar
(1977 – 1995)
Eftirmaður:
Jean Tiberi
Fyrirrennari:
Laurent Fabius
Forsætisráðherra Frakklands
(1986 – 1988)
Eftirmaður:
Michel Rocard
Fyrirrennari:
François Mitterrand
Forseti Frakklands
(1995 – 2007)
Eftirmaður:
Nicolas Sarkozy


  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.