Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1986
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1986 eða HM 1986 var haldið í Mexíkó dagana 31. maí til 29. júní. Þetta var þrettánda heimsmeistarakeppnin og urðu Argentínumenn meistarar í annað sinn eftir sigur á Vestur-Þjóðverjum í úrslitum. Diego Maradona, fyrirliði Argentínu, var í aðalhlutverki hjá sínum mönnum og skoraði minnisstæð mörk. Englendingurinn Gary Lineker varð markakóngur keppninnar með sex mörk.
Líkt og fjórum árum fyrr voru þátttökuliðin á mótinu 24 talsins. Tekið var upp nýtt keppnisfyrirkomulag, þar sem hætt var með milliriðla en þess í stað farið beint í sextán liða útsláttarkeppni eftir riðlakeppnina.
Val á gestgjöfum
[breyta | breyta frumkóða]Árið 1973 sóttist knattspyrnusamband Kólumbíu eftir því að halda HM 1986. Umsóknin vakti athygli, til að mynda hafði landið á þeim tímapunkti aldrei haldið úrslitakeppni Copa America og skorti ýmsa mikilvæga innviði. Á hinn bóginn hafði Kólumbía tveimur árum fyrr haldið Ameríkuleikana í íþróttum og náinn vinskapur var á milli forseta knattspyrnusambandsins og Stanley Rous forseta FIFA. Kólumbíumenn fengu mótinu úthlutað á FIFA-þinginu árið 1974.
Eftir því sem tíminn leið tóku tvær grímur að renna á marga íbúa Kólumbíu. Geypilegur kostnaður við HM 1978 í Argentínu var talið víti til varnaðar. Fjölgun þátttökuliða á HM 1982 úr 16 í 24 var líka talin hleypa kostnaðinum mikið upp þótt João Havelange, forseti FIFA, hafi tekið jákvætt í að fækka keppnisþjóðum tímabundið aftur. Mestu skipti þó að forseti landsins, Julio César Turbay Ayala var neikvæður í garð þess að halda mótið og stjórn hans gerði lítið til að undirbúa það.
Lokahátíð HM á Spáni lauk með því að dreginn var út gríðarstór borði þar sem gestir voru boðnir velkomnir til Kólumbíu fjórum árum síðar. Í nóvember sama ár urðu skipuleggjendur keppninnar þó að gefa hana frá sér vegna peningaskorts. Vaxandi óöld í Kólumbíu vegna vinstrisinnaðra skæruliða og uppgangs eiturlyfjahringa áttu vafalítið þátt í að FIFA féllst þegar á þessa ósk. Fjórar þjóðir buðust til þess að hlaupa í skarðið. Það voru Brasilía, sem dró sig fljótlega til baka, Kanada, Mexíkó og Bandaríkin.
Þrátt fyrir að knattspyrnuyfirvöld í Bandaríkjunum hefðu meiri áhuga á að halda HM 1994, eins og síðar varð raunin, skiluðu þau inn metnaðarfullri umsókna og það sama gilti um Kanadamenn. Fulltrúum beggja landa varð því lítt skemmt þegar Mexíkó varð fyrir valinu í maí 1983, þrátt fyrir að hafa skilað mjög efnislítilli umsókn, með völlum sem ekki uppfylltu kröfur FIFA. Fulltrúar Mexíkó voru hins vegar vel tengdir í stjórnkerfi alþjóðaknattspyrnunnar, auk þess sem landið gat státað af mun meiri fótboltahefð en grannar þess í norðri. Mexíkó varð því fyrsta landið í sögunni til að fá úthlutað heimsmeistaramóti í annað sinn.
Árið 1985 riðu harðir jarðskjálftar yfir Mexíkó með mikilli eyðileggingu. Um tíma var óttast að aflýsa þyrfti mótinu eða finna því enn nýjan stað, en að lokum ákváðu stjórnvöld að halda sínu striki og láta keppnina fara fram.
Undankeppni
[breyta | breyta frumkóða]121 þjóð skráði sig til leiks í undankeppninni og börðust þær um 22 laus sæti, til viðbótar við heimamenn og ríkjandi heimsmeistara. Evrópuliðin kepptu í fjórum fimm liða riðlum, sem hver um sig gaf tvö sæti í úrslitakeppninni og þremur fjögurra liða riðlum þar sem annað sætið fór í umspil annað hvort innan álfunnar eða við fulltrúa Eyjaálfu. Portúgal komst í úrslitakeppnina í fyrsta sinn frá HM 1966 með því að ná öðru sæti á eftir Vestur-Þjóðverjum en á kostnað liða Svíþjóðar og Tékkóslóvakíu.
Danir höfðu betur gegn Sovétmönnum og komust í fyrsta sinn í úrslitakeppni. Sterk lið á borð við Austurríki og Júgóslavíu máttu sitja heima. Ísland vann 1:0 sigur á Wales í upphafsleik síns riðils en tapaði öllum öðrum leikjum. Úrslitin urðu þó afdrifarík því þau kostuðu Wales sæti í umspili. Það kom í hlut Skota sem enduðu á að leggja Ástrali í tveggja leikja einvígi og komu sér til Mexíkó. Grannþjóðirnar Belgía og Holland léku umspilsleiki um síðasta lausa sæti Evrópu. Hvort lið vann sinn leikinn en Belgar fóru áfram á útivallarmarkareglunni.
Suður-Ameríkukeppnin fór fram í þremur riðlum, þar sem sigurvegararnir Argentína, Brasilía og Úrúgvæ fóru beint í úrslit. Paragvæ varð fjórða liðið eftir umspil.
Í Afríku höfðu lið frá álfunni norðanverðri talsverða yfirburði og komu öll fjögur liðin í undanúrslitunum frá Miðjarðarhafssvæðinu. Marokkó og Alsír tryggðu sér farseðlana. Kanada varð óvæntur fulltrúi Norður- og Mið-Ameríku í fyrsta sinn. Í Asíu var forkeppninni svæðisskipt þar sem vesturhlutinn fékk eitt sæti í úrslitunum en austurhlutinn hitt. Írak komst í fyrsta og enn sem komið er í eina skiptið í úrslit HM. Afrekið var þeim mun meira í ljósi þess að liðið þurfti að leika alla leiki á útivöllum eða hlutlausum völlum vegna stríðsins við Íran. Í austurhlutanum vann Suður-Kórea allar viðureignir sínar og komst í úrslit í fyrsta sinn frá HM 1954.
Þátttökulið
[breyta | breyta frumkóða]Tuttugu og fjórar þjóðir mættu til leiks frá fimm heimsálfum.
|
Lukkudýr
[breyta | breyta frumkóða]Einkennistákn mótsins var Pique, sem var jalapeño-kryddbelgur, en það krydd er einmitt mikið notað í mexíkanskri matargerðarlist. Pique var með barðastóran sombrero-hatt á höfði og veglegt yfirvaraskegg. Ekki kunnu allir heimamenn að meta persónuna, sem þótti mjög minna á gamaldags staðalmyndir af Mexíkóum.
Leikstaðir
[breyta | breyta frumkóða]Keppt var í ellefu borgum víðs vegar um Mexíkó. Flestir leikirnir fóru fram í höfuðborginni, þar af fjórir á Olimpico Universitario Stadium og níu viðureignir á Azteca-leikvangnum, þar á meðal opnunarleikurinn og úrslitaleikurinn sjálfur. Jalisco-leikvangurinn í Guadalajara hýsti sjö leiki og Cuauhtémoc-leikvangurinn í Puebla fimm.
Mexíkóborg | Guadalajara | Puebla | |
---|---|---|---|
Estadio Azteca | Estadio Olímpico Universitario | Estadio Jalisco | Estadio Cuauhtémoc |
Áhorfendur: 114,600 | Áhorfendur: 72,212 | Áhorfendur: 66,193 | Áhorfendur: 46,416 |
San Nicolás de los Garza | Querétaro | Nezahualcóyotl | Monterrey |
Estadio Universitario | Estadio La Corregidora | Estadio Neza 86 | Estadio Tecnologico |
Áhorfendur: 43,780 | Áhorfendur: 38,576 | Áhorfendur: 34,536 | Áhorfendur: 33,805 |
Toluca | Irapuato | León | Zapopan |
Estadio Nemesio Díez | Estadio Sergio León Chávez | Estadio Nou Camp | Estadio Tres de Marzo |
Áhorfendur: 32,612 | Áhorfendur: 31,336 | Áhorfendur: 30,531 | Áhorfendur: 30,015 |
Keppnin
[breyta | breyta frumkóða]Liðunum 24 var skipt niður í sex riðla. Tvö efstu liðin fóru áfram úr hverjum riðli og þau fjögur lið sem bestum árangri náðu í þriðja sæti sömuleiðis.
Riðlakeppni
[breyta | breyta frumkóða]A-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Heimsmeistarar Ítala ollu vonbrigðum með því að gera einungis jafntefli við Búlgara í opnunarleik keppninnar. Stórmeistarajafntefli í leik Argentínu og Ítalíu í annarri umferðinni gerði það að verkum að Ítalir urðu að vinna Suður-Kóreu í loka leiknum. Asíska liðið vakti athygli fyrir góðan leik þótt það uppskæri einungis eitt stig og sæti eftir í riðlinum. Argentína þurfti lítið fyrir toppsætinu að hafa.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Argentína | 3 | 2 | 1 | 0 | 6 | 2 | -4 | 5 | |
2 | Ítalía | 3 | 1 | 2 | 0 | 5 | 4 | +1 | 4 | |
3 | Búlgaría | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 4 | -2 | 2 | |
4 | Suður-Kórea | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 | 7 | -3 | 1 |
31. maí 1986 | |||
Búlgaría | 1-1 | Ítalía | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 96.000 Dómari: Erik Fredriksson |
Sirakov 85 | Altobelli 44 |
2. júní 1986 | |||
Argentína | 3-1 | Suður-Kórea | Estadio Olímpico Universitario, Mexíkóborg Áhorfendur: 60.000 Dómari: Victoriano Sánchez Arminio |
Valdano 6, 46, Ruggeri 18 | Park Chang-sun 73 |
5. júní 1986 | |||
Ítalía | 1-1 | Argentína | Estadio Cuauhtémoc, Puebla Áhorfendur: 32.000 Dómari: Jan Keizer |
Altobelli 6 | Maradona 34 |
5. júní 1986 | |||
Suður-Kórea | 1-1 | Búlgaría | Estadio Olímpico Universitario, Mexíkóborg Áhorfendur: 45.000 Dómari: Fallaj Al Shanar |
Kim Jong-boo 70 | Getov 11 |
10. júní 1986 | |||
Suður-Kórea | 2-3 | Ítalía | Estadio Cuauhtémoc, Puebla Áhorfendur: 20.000 Dómari: David Socha |
Choi Soon-ho 62, Huh Jung-moo 84 | Altobelli 17, 73, Cho Kwang-rae 82 (sjálfsm.) |
10. júní 1986 | |||
Argentína | 2-0 | Búlgaría | Estadio Olímpico Universitario, Mexíkóborg Áhorfendur: 65.000 Dómari: Berny Ulloa Morera |
Valdano 4, Burruchaga 77 |
B-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Írakar kepptu á sínu fyrsta og enn sem komið er eina heimsmeistaramóti. Lið þeirra tapaði öllum leikjunum með minnsta mun og fór stigalaust heim. Gestgjafar Mexíkóa hirtu efsta sæti riðilsins með fimm stig og Belgar máttu sætta sig við þriðja sætið á eftir Paragvæ en liðin gerðu 2:2 jafntefli í lokaleiknum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Mexíkó | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 2 | +2 | 5 | |
2 | Paragvæ | 3 | 1 | 2 | 0 | 4 | 3 | -2 | 4 | |
3 | Belgía | 3 | 1 | 1 | 1 | 5 | 5 | 0 | 3 | |
4 | Írak | 3 | 0 | 0 | 3 | 1 | 4 | -3 | 0 |
3. júní 1986 | |||
Belgía | 1-2 | Mexíkó | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 110.000 Dómari: Carlos Espósito |
Vandenbergh 45 | Quirarte 23, Sánchez 39 |
4. júní 1986 | |||
Paragvæ | 1-0 | Írak | Estadio Nemesio Díez, Toluca Áhorfendur: 24.000 Dómari: Edwin Picon-Ackong |
Romerito 35 |
7. júní 1986 | |||
Mexíkó | 1-1 | Paragvæ | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 114.600 Dómari: George Courtney |
Flores 3 | Romerito 85 |
8. júní 1986 | |||
Írak | 1-2 | Belgía | Estadio Nemesio Díez, Toluca Áhorfendur: 20.000 Dómari: Jesús Díaz |
Radhi 59 | Scifo 16, Claesen 21 |
11. júní 1986 | |||
Paragvæ | 2-2 | Belgía | Estadio Nemesio Díez, Toluca Áhorfendur: 16.000 Dómari: Bogdan Dotchev |
Cabañas 50, 76 | Vercauteren 30, Veyt 59 |
11. júní 1986 | |||
Írak | 0-1 | Mexíkó | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 103.763 Dómari: Zoran Petrović |
Quirarte 54 |
C-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Sovétmenn sigruðu í riðlinum og unnu stærsta sigurinn á HM 1986, þegar þeir skelltu Ungverjum 6:0. Það þýddi að Ungverjar komust ekki í 16-liða úrslitin þrátt fyrir að vinna einn sigur, á Kanadamönnum sem töpuðu öllum leikjum sínum. Frakkar fylgdu Sovétmönnum áfram í næstu umferð.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Sovétríkin | 3 | 2 | 1 | 0 | 9 | 1 | +8 | 5 | |
2 | Frakkland | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 | 1 | +4 | 5 | |
3 | Ungverjaland | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 9 | -7 | 2 | |
4 | Kanada | 3 | 0 | 0 | 3 | 0 | 5 | -5 | 0 |
1. júní 1986 | |||
Kanada | 0-1 | Frakkland | Estadio Nou Camp, León Áhorfendur: 24.000 Dómari: Edwin Picon-Ackong |
Papin 79 |
2. júní 1986 | |||
Sovétríkin | 6-0 | Ungverjaland | Estadio Sergio León Chavez, Irapuato Áhorfendur: 16.500 Dómari: Luigi Agnolin |
Yakovenko 2, Aleinikov 4, Belanov 24, Yaremchuk 66, Dajka 73 (sjálfsm.), Rodionov 80 |
5. júní 1986 | |||
Frakkland | 1-1 | Sovétríkin | Estadio Nou Camp, León Áhorfendur: 36.540 Dómari: Romualdo Arppi Filho |
Fernandez 62 | Rats 53 |
6. júní 1986 | |||
Ungverjaland | 2-0 | Kanada | Estadio Sergio León Chavez, Irapuato Áhorfendur: 13.800 Dómari: Jamal Al Sharif |
Esterházy 2, Détári 75 |
9. júní 1986 | |||
Ungverjaland | 0-3 | Frakkland | Estadio Nou Camp, León Áhorfendur: 31.420 Dómari: Carlos Silva Valente |
Stopyra 62, Tigana 62, Rocheteau 84 |
9. júní 1986 | |||
Sovétríkin | 2-0 | Kanada | Estadio Sergio León Chavez, Irapuato Áhorfendur: 14.200 Dómari: Idrissa Traoré |
Blokhin 58, Zavarov 74 |
D-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Norður-Írar og Alsíringar voru bæði spútniklið á HM 1982, en ollu vonbrigðum að þessu sinni. Jafntefli þeirra í fyrsta leik reyndist bræðrabylta, þar sem Spánverjar og Brasilíumenn reyndust of stór biti fyrir bæði lið. Brasilíumenn sigruðu í riðlinum eftir 1:0 sigur á Spáni í fyrsta leik.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Brasilía | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 | 1 | +8 | 5 | |
2 | Spánn | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 2 | +3 | 4 | |
3 | Norður-Írland | 3 | 0 | 1 | 2 | 2 | 6 | -4 | 1 | |
4 | Alsír | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 5 | -4 | 1 |
1. júní 1986 | |||
Spánn | 0-1 | Brasilía | Estadio Jalisco, Guadalajara Áhorfendur: 35.748 Dómari: Chris Bambridge |
Sócrates 62 |
3. júní 1986 | |||
Alsír | 1-1 | Norður-Írland | Estadio Jalisco, Guadalajara Áhorfendur: 22.000 Dómari: Valeri Butenko |
Zidane 59 | Whiteside 6 |
6. júní 1986 | |||
Alsír | 0-1 | Brasilía | Estadio Jalisco, Guadalajara Áhorfendur: 48.000 Dómari: Rómulo Méndez |
Careca 66 |
7. júní 1986 | |||
Norður-Írland | 1-1 | Spánn | Estadio Tres de Marzo, Guadalajara Áhorfendur: 28.000 Dómari: Horst Brummeier |
Clarke 46 | Butragueño 1, Salinas 18 |
12. júní 1986 | |||
Norður-Írland | 0-3 | Brasilía | Estadio Jalisco, Guadalajara Áhorfendur: 51.000 Dómari: Siegfried Kirschen |
Careca 15, 87, Josimar 42 |
12. júní 1986 | |||
Alsír | 0-3 | Spánn | Estadio Tecnológico, Monterrey Áhorfendur: 23.980 Dómari: Shizuo Takada |
Calderé 15, 68, Olaya 70 |
E-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Tvö jafntefli, gegn Skotum og Vestur-Þjóðvejum, dugðu liði Úrúgvæ til að komast í næstu umferð þrátt fyrir 6:1 ósigur á móti Dönum. Skotar ollu stuðningsmönnum sínum vonbrigðum og fengu bara eitt stig. Danir urðu óvænt efstir í riðlinum eftir sætan 2:0 sigur á grönnum sínum Vestur-Þjóðverjum, en þýska liðið grét þurrum tárum enda gaf annað sætið mun viðráðanlegri andstæðing í 16-liða úrslitunum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Danmörk | 3 | 3 | 0 | 0 | 9 | 1 | +8 | 6 | |
2 | Vestur-Þýskaland | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 4 | -1 | 3 | |
3 | Úrúgvæ | 3 | 0 | 2 | 1 | 2 | 7 | -5 | 2 | |
4 | Skotland | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 3 | -2 | 1 |
4. júní 1986 | |||
Úrúgvæ | 1-1 | Vestur-Þýskaland | Estadio La Corregidora, Querétaro Áhorfendur: 30.500 Dómari: Vojtěch Christov |
Alzamendi 4 | Allofs 84 |
4. júní 1986 | |||
Skotland | 0-1 | Danmörk | Estadio Neza 86, Nezahualcóyotl Áhorfendur: 18.000 Dómari: Lajos Németh |
Elkjær 57 |
8. júní 1986 | |||
Vestur-Þýskaland | 2-1 | Skotland | Estadio La Corregidora, Querétaro Áhorfendur: 30.000 Dómari: Ioan Igna |
Völler 23, Allofs 49 | Strachann18 |
8. júní 1986 | |||
Danmörk | 6-1 | Úrúgvæ | Estadio Neza 86, Nezahualcóyotl Áhorfendur: 26.500 Dómari: Antonio Márquez Ramírez |
Elkjær 11, 67, 80, Lerby 41, Laudrup 52, J. Olsen 88 | Francescoli 45 |
13. júní 1986 | |||
Danmörk | 2-0 | Vestur-Þýskaland | Estadio La Corregidora, Querétaro Áhorfendur: 36.000 Dómari: Alexis Ponnet |
J. Olsen 43, Eriksen 62 |
13. júní 1986 | |||
Skotland | 0-0 | Úrúgvæ | Estadio Neza 86, Nezahualcóyotl Áhorfendur: 20.000 Dómari: Joël Quiniou |
F-riðill
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirfram var búist við harðri baráttu Evrópuþjóðanna þriggja um toppsætið í F-riðli. Annað kom þó á daginn. Marokkó gerð jafntefli við Pólverja og Englendinga og skellti svo Portúgölum í lokaleiknum, 3:1. Portúgalska liðið mátti sætta sig við botnsætið þrátt fyrir sigur á Englendingum, en leikmenn Portúgal eyddu mestöllu undirbúningstímabilinu fyrir mótið í harðri kjaradeilu við knattspyrnusambandið þar sem þeir vildu hærri launagreiðslur. Gary Linkeker skoraði þrennu fyrir England í lokaleiknum gegn Pólverjum sem kom liði hans áfram í keppninni.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Marokkó | 3 | 1 | 2 | 0 | 3 | 1 | -2 | 4 | |
2 | England | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 | 1 | +2 | 3 | |
3 | Pólland | 3 | 1 | 1 | 1 | 1 | 3 | -2 | 3 | |
4 | Portúgal | 3 | 1 | ö | 2 | 4 | 7 | -3 | 2 |
2. júní 1986 | |||
Pólland | 0-0 | Marokkó | Estadio Universitario, Monterrey Áhorfendur: 19.900 Dómari: José Luis Martínez Bazán |
3. júní 1986 | |||
Portúgal | 1-0 | England | Estadio Tecnológico, Monterrey Áhorfendur: 23.000 Dómari: Volker Roth |
Carlos Manuel 75 |
6. júní 1986 | |||
England | 0-0 | Pólland | Estadio Tecnológico, Monterrey Áhorfendur: 20.200 Dómari: Gabriel González |
7. júní 1986 | |||
Pólland | 1-0 | Portúgal | Estadio Universitario, Monterrey Áhorfendur: 19.915 Dómari: Ali Bin Nasser |
Smolarek 68 |
11. júní 1986 | |||
England | 3-0 | Pólland | Estadio Universitario, Monterrey Áhorfendur: 22.700 Dómari: André Daina |
Lineker 9, 14, 34 |
11. júní 1986 | |||
Portúgal | 1-3 | Marokkó | Estadio Tres de Marzo, Zapopan Áhorfendur: 28.000 Dómari: Alan Snoddy |
Diamantino 80 | Khairi 19, 26, A. Merry 62 |
Útsláttarkeppni
[breyta | breyta frumkóða]16-liða úrslit
[breyta | breyta frumkóða]Heimamenn komust í fjórðungsúrslitin eftir 2:0 sigur á Búlgörum á troðfullum Azteca-vellinum í fyrstu viðureign 16-liða úrslitanna. Síðar sama dag fór fram einn æsilegasti leikur í sögu HM, þar sem Sovétmenn og Belgar gerðu 2:2 jafntefli í venjulegum leiktíma. Í framlengingu skoruðu Belgar tvívegis en Sovétmenn aðeins einu sinni.
Suður-Ameríkustórveldin Brasilía og Argentína fóru töltölulega vandræðalítið áfram eftir að hafa unnið Pólland og Úrúgvæ. Frakkar slógu heimsmeistara Ítala úr keppni og Vestur-Þjóðverjar lentu í miklum vandræðum gegn Marokkó, þar sem sigurmark frá Lothar Matthäus í blálokin réð úrslitum.
Englendingar unnu 3:0 sigur á Paragvæ þar sem Gary Liniker skoraði tvö af sex mörkum sínum í keppninni. Lokaleikur 16-liða úrslitanna var á milli Dana og Spánverja. Danmörk hafði byrjað með miklum látum í keppninni en var rækilega kippt niður á jörðina, 5:1, þar sem Emilio Butragueño skoraði fernu.
15. júní 1986 | |||
Mexíkó | 2-0 | Búlgaría | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 114.580 Dómari: Romualdo Arppi Filho |
Negrete 34, Servín 61 |
15. júní 1986 | |||
Sovétríkin | 3-4 (e.framl.) | Belgía | Estadio Nou Camp, León Áhorfendur: 32.277 Dómari: Erik Fredriksson |
Belanov 27, 70, 111 | Scifo 56, Ceulemans 77, Demol 102, Claesen 110 |
16. júní 1986 | |||
Brasilía | 4-0 | Pólland | Estadio Jalisco, Guadalajara Áhorfendur: 45.000 Dómari: Volker Roth |
Sócrates 30, Josimar 55, Edinho 79, Careca 83 |
16. júní 1986 | |||
Argentína | 1-0 | Úrúgvæ | Estadio Azteca, Puebla Áhorfendur: 26.000 Dómari: Luigi Agnolin |
Pasculli 42 |
17. júní 1986 | |||
Ítalía | 0-2 | Frakkland | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 70.000 Dómari: Carlos Espósito |
Platini 15, Stopyra 57 |
17. júní 1986 | |||
Marokkó | 0-1 | Vestur-Þýskaland | Estadio Universitario, San Nicolás de los Garza Áhorfendur: 19.800 Dómari: Zoran Petrović |
Matthäus 31 |
18. júní 1986 | |||
England | 3-0 | Argentína | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 98.728 Dómari: Jamal Al Sharif |
Lineker 31, 73, Beardsley 56 |
18. júní 1986 | |||
Danmörk | 1-5 | Spánn | Estadio La Corregidora, Querétaro Áhorfendur: 38.500 Dómari: Jan Keizer |
J. Olsen 33 | Butragueño 43, 56, 80, 88, Goikoetxea 68 |
Fjórðungsúrslit
[breyta | breyta frumkóða]Stórleikur fjórðungsúrslitanna var viðureign Brasilíu og Frakklands. Careca og Michel Platini skoruðu hvor sitt markið í leik leik sem fór í vítakeppni sem Frakkarnir unnu. Vestur-Þjóðverjar þurftu einnig á vítakeppni að halda til að sigra heimamenn Mexíkóa eftir markalausan leik. Þriðja vítaspyrnukeppnin var í viðureign Spánar og Belgíu, þar sem Belgar höfðu betur, 4:5. Eini leikurinn þar sem úrslit réðust í venjulegum leiktíma var milli Argentínumanna og Englendinga. Viðureignin var tilfinningaþrungin vegna Falklandseyjastríðsins. Diego Maradona var í aðalhlutverki í 2:1 sigri, þar sem hann skoraði annars vegar eitt minnisstæðasta einleiksmark í sögu HM en hins vegar afar umdeilt mark þar sem hann slæmdi höndinni í knöttinn.
21. júní 1986 | |||
Brasilía | 1-1 (4-5 e. vítake.) | Frakkland | Estadio Jalisco, Guadalajara Áhorfendur: 65.000 Dómari: Ioan Igna, Rúmeníu |
Careca 17 | Platini 48 |
21. júní 1986 | |||
Vestur-Þýskaland | 0-0 (4-1 e. vítake.) | Mexíkó | Estadio Universitario, San Nicolás de los Garza Áhorfendur: 41.700 Dómari: Jesús Díaz, Kólumbíu |
22. júní 1986 | |||
Argentína | 2-1 | England | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 114.500 Dómari: Ali Ben Nasser, Túnis |
Maradona 51, 55 | Lineker 81 |
22. júní 1986 | |||
Spánn | 1-1 (5-6 e. vítake.) | Belgía | Estadio Cuauhtémoc, Puebla Áhorfendur: 45.000 Dómari: Siegfried Kirschen, Austur-Þýskalandi |
Señor 85 | Ceulemans 35 |
Undanúrslit
[breyta | breyta frumkóða]Eftir afar rólega byrjun sýndu Vestur-Þjóðverjar tennurnar á móti Frökkum. Tvö mörk frá Brehme og Völler komu þýska liðinu í úrslit annað mótið í röð. Í hinum undanúrslitaleiknum skoraði Maradona tvívegis gegn spútnikliði Belga.
25. júní 1986 | |||
Frakkland | 0-2 | Vestur-Þýskaland | Estadio Jalisco, Guadalajara Áhorfendur: 45.000 Dómari: Luigi Agnolin, Ítalíu |
Brehme 9, Völler 89 |
25. júní 1986 | |||
Argentína | 2-0 | Belgía | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 114.500 Dómari: Antonio Márquez Ramírez, Mexíkó |
Maradona 51, 63 |
Bronsleikur
[breyta | breyta frumkóða]Frakkar máttu sætta sig við að leika um þriðja sætið aðra keppnina í röð. Bæði lið komust yfir í venjulegum leiktíma sem lauk 2:2. Í framlengingu reyndust Frakkarnir sterkari og skoruðu í tvígang.
28. júní 1986 | |||
Belgía | 2-4 (e.framl.) | Frakkland | Estadio Cuauhtémoc, Puebla Áhorfendur: 21.000 Dómari: George Courtney, Englandi |
Ceulemans 11, Claesen 73 | Ferreri 27, Papin 43, Genghini 104, Amoros 111 |
Úrslitaleikur
[breyta | breyta frumkóða]Vestur-Þjóðverjar mættu til leiks staðráðnir í að halda Maradaona niðri. Það hafði á hinn bóginn þau áhrif að mjög losnaði um aðra leikmenn argentínska liðsins. José Luis Brown kom þeim yfir á 23. mínútu og þar við sat í hálfleik. Jorge Valdano tvöfaldaði forystuna snemma í seinni hálfleik. Karl-Heinz Rummenigge minnkaði muninn þegar um stundarfjórðungur var eftir, með fyrsta marki sínu í keppninni. Tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma jöfnuðu Þjóðverjarnir með skallamarki frá Rudi Völler. Skömmu síðar losnaði Maradona úr strangri gæslu Lothar Matthäus, stakk knettinum inn á Jorge Burruchaga sem skoraði sigurmarkið af öryggi. Eftir leikin tóku við tryllt fagnaðarlæti þar sem fjöldi argentínskra stuðningsmanna hljóp inn á völlinn til að samgleðjast hetjunum sínum.
29. júní 1986 | |||
Argentína | 3-2 | Vestur-Þýskaland | Estadio Azteca, Mexíkóborg Áhorfendur: 114.600 Dómari: Romualdo Arppi Filho, Brasilíu |
Brown 23, Valdano 55, Burruchaga 83 | Rummenigge 74, Völler 89 |
16 liða úrslit | 8 liða úrslit | 4 liða úrslit | Úrslit | |||||||||||
16. júní – Puebla | ||||||||||||||
Argentína | 1 | |||||||||||||
22. júní – Azteca, Mexíkóborg | ||||||||||||||
Úrúgvæ | 0 | |||||||||||||
Argentína | 2 | |||||||||||||
18. júní – Azteca, Mexíkóborg | ||||||||||||||
England | 1 | |||||||||||||
England | 3 | |||||||||||||
25. júní – Azteca, Mexíkóborg | ||||||||||||||
Paragvæ | 0 | |||||||||||||
Argentína | 2 | |||||||||||||
18. júní – Querétaro | ||||||||||||||
Belgía | 0 | |||||||||||||
Spánn | 5 | |||||||||||||
22. júní – Puebla | ||||||||||||||
Danmörk | 1 | |||||||||||||
Spánn | 1(5) | |||||||||||||
15. júní – León | ||||||||||||||
Belgía (vítak.) | 1(6) | |||||||||||||
Belgía (e.framl.) | 4 | |||||||||||||
29. júní – Azteca, Mexíkóborg | ||||||||||||||
Sovétríkin | 3 | |||||||||||||
Argentína | 3 | |||||||||||||
16. júní – Guadalajara | ||||||||||||||
Vestur-Þýskaland | 2 | |||||||||||||
Pólland | 0 | |||||||||||||
21. júní – Guadalajara | ||||||||||||||
Brasilía | 4 | |||||||||||||
Brasilía | 1(3) | |||||||||||||
17. júní – Ólympíuleikvangurinn, Mexíkóborg | ||||||||||||||
Frakkland (vítak.) | 1(4) | |||||||||||||
Frakkland | 2 | |||||||||||||
25. júní – Guadalajara | ||||||||||||||
Ítalía | 0 | |||||||||||||
Frakkland | 0 | |||||||||||||
17. júní – San Nicolás de los Garza | ||||||||||||||
Vestur-Þýskaland | 2 | Bronsleikur | ||||||||||||
Vestur-Þýskaland | 1 | |||||||||||||
21. júní – San Nicolás de los Garza | 28. júní – Puebla | |||||||||||||
Marokkó | 0 | |||||||||||||
Vestur-Þýskaland (vítak.) | 0(4) | Belgía | 2 | |||||||||||
15. júní – Azteca, Mexíkóborg | ||||||||||||||
Mexíkó | 0(1) | Frakkland (e.framl.) | 4 | |||||||||||
Mexíkó | 2 | |||||||||||||
Búlgaría | 0 | |||||||||||||
Markahæstu leikmenn
[breyta | breyta frumkóða]Gary Lineker hreppti gullskó FIFA með sex mörk skoruð. Alls skiptu 82 leikmenn á milli sín 132 mörkum, þar af töldust tvö vera sjálfsmörk.
- 6 mörk
- 5 mörk
- 4 mörk
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir: