Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1954
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1954 eða HM 1954 var haldið í Sviss dagana 16. júní til 4. júlí. Þetta var fimmta heimsmeistarakeppnin og urðu Vestur-Þjóðverjar meistarar í fyrsta sinn eftir sigur á Ungverjum. Nærri 5,4 mörk voru skoruð í leikjum mótsins að meðaltali og er það met.
Val á gestgjöfum[breyta | breyta frumkóða]
Ákvörðunin um að fela Svisslendingum að halda HM var tekin á þingi Alþjóðaknattspyrnusambandsins árið 1946, um leið og Brasilíumönnum var úthlutað HM 1950.
Undankeppni[breyta | breyta frumkóða]
Sviss og Úrúgvæ komust sjálfkrafa í úrslitakeppnina sem gestgjafar og ríkjandi meistarar. Hin 14 sætin skiptust þannig að Norður-Ameríka, Suður-Ameríka og Asíu hlutu eitt sæti hvert og Evrópa þau 11 sem eftir voru (Tyrkland, Ísrael og Eyptaland tóku þátt í Evrópukeppninni). Alls skráðu 37 lið sig til keppni, en að venju drógu nokkur þeirra sig í hlé.
Aðra keppnina í röð tóku Argentínumenn ekki þátt og átti Brasilía greiða leið sem fulltrúi Suður-Ameríku. Suður-Kórea komst í fyrsta sinn í úrslit eftir sigur á Japan og Mexíkó vann Norður-Ameríkukeppnina.
Í Evrópu bar það helst til tíðinda að bronslið Svía frá fyrri keppni féll úr leik fyrir Belgum. Óvæntustu tíðindin voru þó í einvígi Tyrkja og Spánverja. Spánverjar unnu heimaleikinn 4:1 en Tyrkir náðu að knýja fram 1:0 sigur á sínum heimavelli. Þar sem ekki var horft til markatölu þurfti að leika oddaleik á hlutlausum velli, í Rómarborg á Ítalíu. Þeim leik lauk með jafntefli, en Tyrkir komust áfram á hlutkesti.
Þátttökulið[breyta | breyta frumkóða]
Sextán þjóðir mættu til leiks frá fjórum heimsálfum.
|
|
Leikvangar[breyta | breyta frumkóða]
Sex leikvangar í jafnmörgum borgum voru notaðir á mótinu. Flestir leikjanna 26 fóru fram í Basel, sex talsins.
Basel | Bern | Genf |
---|---|---|
St. Jakob Stadium | Wankdorf Stadium (endurnýjaður) |
Charmilles Stadium |
Áhorfendur: 54,800 | Áhorfendur: 64,600 | Áhorfendur: 35,997 |
![]() |
![]() |
![]() |
Lausanne | Lugano | Zürich |
Stade olympique de la Pontaise (endurnýjaður) |
Cornaredo Stadium | Hardturm Stadium |
Áhorfendur: 50,300 | Áhorfendur: 35,800 | Áhorfendur: 34,800 |
![]() |
![]() |
![]() |
Keppnin[breyta | breyta frumkóða]
Riðlakeppnin[breyta | breyta frumkóða]
Notast var við óvenjulegt keppnisfyrirkomulag, þar sem liðin voru dregin í fjóra fjögurra liða riðla, en í stað þess að öll liðin í hverjum riðli mættust innbyrðis, lék hvert lið einungis tvær viðureignir.
Riðill 1[breyta | breyta frumkóða]
Brasilíumenn urðu hlutskarpastir í riðlinum eftir stórsigur á Mexíkó og jafntefli í framlengdum leik gegn Júgóslavíu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ![]() |
Brasilía | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 | 1 | +5 | 3 |
2 | ![]() |
Júgóslavía | 2 | 1 | 1 | 0 | 2 | 1 | +1 | 3 |
3 | ![]() |
Frakkland | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 | 3 | 0 | 2 |
4 | ![]() |
Mexíkó | 2 | 0 | 0 | 2 | 2 | 8 | -6 | 0 |
16. júní - Charmilles Stadium, Genf
16. júní - Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne
19. júní - Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne
19. júní - Charmilles Stadium, Genf
Riðill 2[breyta | breyta frumkóða]
Ungverjar léku sér að Vestur-Þjóðverjum í Basel og unnu 8:3 í ótrúlegum fótboltaleik. Vestur-þýska liðið var í neðri styrkleikaflokki ásamt Suður-Kóreu en komst þó áfram eftir tvo stórsigra á Tyrkjum. Ungverjar settu markamet á HM með sigri sínum á Suður-Kóreu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ![]() |
Ungverjaland | 2 | 2 | 0 | 0 | 17 | 3 | +12 | 4 |
2 | ![]() |
Vestur-Þýskaland | 2 | 1 | 0 | 1 | 7 | 9 | -2 | 3 |
3 | ![]() |
Tyrkland | 2 | 1 | 0 | 1 | 8 | 4 | 4 | 2 |
4 | ![]() |
Suður-Kórea | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 | 16 | -16 | 0 |
17. júní - Wankdorf Stadium, Bern
17. júní - Hardturm Stadium, Zürich
20. júní - St. Jakob Stadium, Basel
20. júní - Charmilles Stadium, Geneva
Aukaleikur: 23. júní - Hardturm Stadium, Zürich
Riðill 3[breyta | breyta frumkóða]
Þriðji riðill reyndist sá ójafnasti í riðlakeppninni. Hlutkesti réði hvort Úrúgvæ eða Austurríki hlyti toppsæti riðilsins. Athygli vakti að þótt keppnisliðum væri heimilað að senda 22 manna leikmannahóp kaus Skotland að senda bara 13 leikmenn til mótsins og olli frammistaða þeirra miklum vonbrigðum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ![]() |
Úrúgvæ | 2 | 2 | 0 | 0 | 9 | 0 | +9 | 4 |
2 | ![]() |
Austurríki | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 | 0 | +6 | 4 |
3 | ![]() |
Tékkóslóvakía | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 | 7 | -7 | 0 |
4 | ![]() |
Skotland | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 | 8 | -8 | 0 |
16. júní - Wankdorf Stadium, Bern
16. júní - Hardturm Stadium, Zürich
19. júní - St. Jakob Stadium, Basel
19. júní - Hardturm Stadium, Zürich
Riðill 4[breyta | breyta frumkóða]
Heimamenn komust upp úr riðlinum ásamt Englendingum. Þetta var eini riðillinn sem einvörðungu var skipaður Evrópuliðum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ![]() |
England | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 | 4 | +2 | 3 |
2 | ![]() |
Sviss | 2 | 1 | 0 | 1 | 2 | 3 | -1 | 2 |
3 | ![]() |
Ítalía | 2 | 1 | 0 | 1 | 5 | 3 | +2 | 2 |
4 | ![]() |
Belgía | 2 | 0 | 1 | 1 | 5 | 8 | -5 | 1 |
17. júní - Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne
17. júní - St. Jakob Stadium, Basel
20. júní - Cornaredo Stadium, Lugano
20. júní - Wankdorf Stadium, Bern
Aukaleikur: 23. júní - St. Jakob Stadium, Basel
Fjórðungsúrslit[breyta | breyta frumkóða]
Aldrei hafa fleiri mörk verið skoruð í leik HM en í viðureign Alpaþjóðanna, Austurríkis og Sviss, 12 talsins. Úrúgvæ og Vestur-Þýskaland fylgdu Austurríkismönnum í undanúrslitin. Mest var þó dramatíkin í leik Ungverja og Brasilíumanna í Bern, þar sem þremur leikmönnum var vísað af leikvelli og slagsmál brutust út milli liðanna í búningsklefum að leik loknum.
26. júní - Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne, áh. 35.000
26. júní - St. Jakob Stadium, Basel, áh. 28.000
27. júní - Charmilles Stadium, Genf, áh. 17.000
27. júní - Wankdorf Stadium, Bern, áh. 40.000
Undanúrslit[breyta | breyta frumkóða]
Vestur-Þjóðverjar völtuðu yfir Austurríkismenn í Basel og tryggðu sér í fyrsta sinn sæti í úrslitaleik HM. Leikur Úrúgvæ og Ungverjalands var sögulegur og sagður einhver besti knattspyrnuleikur sem sést hefði. Liðin skildu jöfn eftir venjulegan leiktíma, 2:2, þar sem Úrúgvæ átti hörkuskot í stöng undir blálokin. Í framlengingunni reyndust Ungverjar sterkari og komust í úrslitaleik í annað sinn. 30. júní - St. Jakob Stadium, Basel, áh. 58.000
30. júní - Stade Olympique de la Pontaise, Lausanne, áh. 45.000
Bronsleikur[breyta | breyta frumkóða]
Austurríkismenn unnu leikinn um þriðja sætið og er það enn í dag besti árangur landsins á HM.
3. júlí - Hardturm Stadium, Zürich, áh. 32.000
Úrslitaleikur[breyta | breyta frumkóða]
Flestir áttu von á ungverskum sigri í úrslitaleiknum gegn Vestur-Þjóðverjum en annað átti eftir að koma á daginn. Ungverska liðið hafði ekki tapað leik í fimm ár og ári fyrr varð það fyrsta liðið utan Bretlandseyja til að sigra Englendinga á Wembley. Leikmenn vestur-þýska liðsins voru flestir hálf-atvinnumenn og var þjálfaranum Sepp Herberger öðrum fremur eignað afrekið.
4. júlí - Wankdorf Stadium, Bern, áh. 62.472
Markahæstu leikmenn[breyta | breyta frumkóða]
Sándor Kocsis frá Ungverjalandi varð markakóngur keppninnar með ellefu mörk. Alls voru 140 mörk skoruð af 63 leikmönnum, fjögur þeirra voru sjálfsmörk.
- 11 mörk
- 6 mörk
- 4 mörk